Fréttir - Eyjafréttir - 15.05.2003, Page 14
14
Fréttir
Fimmtudagur 15. maí 2003
Þórunn Engilbertsdóttir skrifar:
Byggjum nýjan leikskóla
í umræðunni um byggingu nýs leikskóla hefur verið horft á
svæðið milli Sóla og hússins Breiðabliks og er bærinn búinn að
tryggja að hluta þá lóð. I okkar hópi hefur komið fram sú
hugmynd að byggja nýjan Sóla við Stakkó. Þ.e.a.s. byggja
nýjan leikskóla í bænum á gömlu löggustöðvar-lóðinni. Það er
ekki nokkur vaft á að slík bygging og starfsemi myndi sóma sér
vel í miðbænum. Þétta byggðina, gera bæinn líflegri og
skemmtilegri. Margir kostir em við þessa staðsetningu á nýjum
leikskóla t.d. gott aðgengi, nálægðin við Stakkó sem að
sjálfsögðu má nota meira og ýmislegt fleira.
Af hverju
treystir G.
Ásta H sér
ekki til að
standa við
kosningalof-
orð
B-listans?
Það vakti
verðskuldaða
athygli er
fulltrúar
Sjálfstæðisflokksins í skólamálaráði,
þær Guðríður Ásta Halldórsdóttir og
Bergþóra Þórhallsdóttir treystu sér
ekki til að samþykkja þá sjálfsögðu og
eðlilegu tillögu er við fulltrúar
meirihlutans í bæjarstjóm bárum fram,
um að hefjast handa við byggingu nýs
leikskóla í stað leikskólans Sóla.
Tillagan er við fluttum og þær stöllur
treystu sér ekki til að samþykkja er
svohljóðandi:
„Skólamálaráð samþykkir að leggja til
við bæjarstjóm að á þessu ári verði
hafist handa um byggingu nýs
leikskóla í stað leikskólans Sóla. Gert
verði ráð fyrir fjárveitingu til málsins í
endurskoðaðri fjárhagsáætlun fyrir
árið 2003. Skólamálaráð felur for-
manni ráðsins og skólamálafulltrúa að
taka saman upplýsingar sem þegar em
fyrir hendi um nýjan leikskóla og
leggja þær fyrir skólamálaráð til
afgreiðslu svo fljótt sem verða má.
Við skipulag verksins verði kapp-
kostað að hafa fullt samráð við
fagaðila, svo sem stjórnendur og
starfsmenn þannig að þeirra sjónarmið
og þekking komi fram”.
Ragnar Oskarsson. Þórunn Engil-
bertsdóttir. Jóhann Guðmundsson.
Allir þeir er tóku þátt í síðustu
bæjarstjómarkosningum muna það vel
að eina loforðið er B-listinn gaf fyrir
síðustu kosningar var að byggja nýjan
leikskóla. Það er ætlast til þess að
staðið sé við þau loforð er framboðin
gefa kjósendum. Það virðist vera
gagnvart Guðríði Ástu að hún ætli sér
ekki að standa við þetta loforð annars
hefði hún að sjálfsögðu samþykkt
tillögu okkar, sem hún gerði ekki. Svo
einlæg er hún í hlutverki sínu sem
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í skóla-
málaráði að hún treystir sér ekki að
taka þátt í uppbyggingu á nýjum
leikskóla. Það þarf ekki að fara
mörgum orðum um ástandið í þessum
málum. Starfsfólk leikskólanna veit
það manna best, sömuleiðis foreldrar.
Mjög brýnt er að bregðast við og bæta
ástandið eins fljótt og auðið er.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins, þær
Ásta og Bergþóra, vom á öðm máli og
vilja nánast óbreytt ástand í málefnum
leikskólanna. Mér frnnst þetta afar
sérkennilegt, sérstaklega ef borinn er
saman fagurgalinn um að fólk ætli sér
að vinna bæjarfélaginu heilt sama
hvort það er í meiri- eða minnihluta.
Nú vita allir bæjarbúar fyrir hvað
Guðríður Ásta stendur.
Nýr Sóli
í greinargerð með tillögunni kemur
m.a. eftirfarandi fram: „Húsnæði
leikskólans Sóla er löngu orðið úr sér
gengið. í því sambandi vísast m.a. til
minnispunkta fundar vegna leikskóla
dags. 4. mars og greinargerðar vegna
leikskólans Sóla fyrir haustið 2003
dags. 14. mars 2003. í raun sætir furðu
hve mikla þolinmæði og biðlund
foreldrar og starfsfólk hafa haft um
margra ára skeið vegna húsnæðisins. f
tillögunni er gert ráð fyrir að
framkvæmdir heljist svo fljótt sem
verða má þannig að sem fyrst megi
ljúka því ófremdarástandi sem ríkir í
húsnæðismálum leikskólans Sóla.”
Eðlilegt er að taka saman allar þær
upplýsingar um hönnun og byggingu
nýs leikskóla og byggja á þeim sem
og sjónarmiðum stjómenda og
starfsmanna. Undir þessi sjónarmið
gátu fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í
skólamálaráði, þær Ásta og Bergþóra,
ekki tekið og það er ekki að undra að
afstaða þeirra veki verðskuldaða
athygli og undmn svo ekki sé fastar að
orði kveðið.
Ný staðsctning Sóla?
I umræðunni um byggingu nýs
leikskóla hefur verið horft á svæðið
milli Sóla og hússins Breiðabliks og er
bærinn búinn að tryggja að hluta þá
lóð. I okkar hópi hefur komið fram sú
hugmynd að byggja nýjan Sóla við
Stakkó. Þ.e.a.s. byggja nýjan leikskóla
í bænum á gömlu löggustöðvar-
lóðinni. Það er ekki nokkur vafi á að
slík bygging og starfsemi myndi sóma
sér vel í miðbænum. Þétta byggðina,
gera bæinn líflegri og skemmtilegri.
Margir kostir em við þessa stað-
setningu á nýjum leikskóla t.d. gott
aðgengi, nálægðin við Stakkó sem að
sjálfsögðu má nota meira og ýmislegt
fleira. Ég varpa þessu hér fram og
vona að fólk velti þessu fyrir sér. 1
lokin vil ég aðeins ítreka að það er leitt
til þess að vita að fólk sem segist ætla
að vinna bæjarfélaginu heilt skuli ekki
vera með okkur í meirihlutanum í svo
sjálfsögðu og jafn skemmtilegu verki
og bygging nýs leikskóla er.
Þórunn Engilbertsdóttir.
Situr í Skólamálaráði fyrir B-listann.
Þessi leðurblaka var á flugi í miðbænum á sunnudagskvöldið ásamt
annarri þegar nokkrir krakkar komu auga á þær. Kölluðu krakkarnir til
meindýraeyði sem náði að skjóta aðra en hin hvarf út í buskann.
Kristján Egilsson, forstöðumaður Náttúrugripasafnsins, fékk leður-
blökuna í hendur á mánudaginn og sagðist ekki vita hvort hún er ættuð frá
Evrópu eða Ameríku. Leðurblökur eru heldur sjaldgæfir gestir á Islandi
og segir Kristján að þessi sé sú sjöunda scm vitað er um. Á Byggðasafninu
er leðurblaka sem var veidd í lundaháf við Framhaldsskólann og ein er til
uppstoppuð á Náttúrugripasafninu. Hún var skotin uppi á landi og er mun
stærri en þessi.
m &
i.tfj ^ .
KRAKKARNIR með leðurblökuna sem minnti á mús með vængi.
Pálína og Aldís tóku áskorun Hressó:
Þær eru léttari bæði til sálar og líkama
ÁNÆGÐAR, Pálínu, Jóhanna, Aldís og Anna Dóra höfðu ástæðu til að brosa í lok átaksins.
Baráttan við aukakílóin hefur
reynst mörgum erfið. Það höfðu
þær reynt konurnar þrjár sem tóku
áskorun Hressó í vetur um tólf
vikna átak. Með góðum stuðningi
hafa þær lést um samtals tæplcga
40 kfló og eru í dag léttari á bæði sál
og líkama.
Pálína Buch var 116,5 kíló íbyrjun
árs en þá ákvað hún að gera eitthvað í
málinu og tók áskorun Hressó um tólf
vikna átak sem lauk í síðustu viku.
Hún setti sér það takmark að fara
niður í 99,9 kíló sem tókst reyndar
ekki alveg en árangurinn er engu að
síður góður og hún er ákveðin í að
halda áfram.
„Núna er ég 100,5 kíló þannig að ég
hef lést um 16 kfló, missti 16 sm um
mittið, 14 sm um mjaðmir og fimm
um læri og loks fuku 4,6% af fitu,"
sagði Pálína sem vonast til að verða
öðrum hvatning. „Fyrst ég gat þetta
geta það allir,“ hélt hún áfram. „Við
æfðum sex sinnum í viku undir stjóm
Önnu Dóm og Jóhönnu á Hressó. Þær
hafa reynst mér frábærlega og vil ég
þakka þeim sérstaklega því án þeirra
hefði ég aldrei náð þessu takmarki.
Þær vom þrjár sem byijuðu og æfðu
þær sex sinnum í viku. „Við lyftum
þrisvar í viku og brenndum þrisvar í
viku. Svo að sjálfsögðu lagaði maður
mataræðið. Borðaði sex sinnum á dag
en mín mistök áður vom að ég svelti
mig allan daginn, borðaði svo góðan
kvöldmat og var nartandi á kvöldin.
Þetta vom mín mistök ásamt hreyf-
ingarleysi. Það var ekki svo að ég vissi
ekki betur en ég gerði bara ekkert í
málinu.“.
Hvaða ráðleggingar hefur þú til
fólks sem hefur áhuga á að taka upp
breytt og betra lífemi? „Það eina sem
ég get sagt, byijið sem fyrst því það er
ekki eftir neinu að bíða,“ sagði Pálína
sem ætlar að halda áfram. „Það er
alveg þess virði því það er ekki aðeins
að rnanni líði betur líkamlega, þetta
hefur líka áhrif á sálina, allt verður
léttara og skemmtilegra. Það hefur
mikið að segja að fá leiðsögn því
maður hefur ekkert að gera inn í
þreksal ef maður kann ekki að nota
tækin. Hvatningin þarf líka að vera til
staðar og þar gera þær systur krafta-
verk.“
Aldís Atladóttir var nærri því að ná
markmiðum sínum í áskomnHressó
en hún missti níu og hálft kfló en hafði
sett stefnuna á tíu kfló á þessu tólf
vikna námskeiði. „Það var rosalega
svekkjandi að vera svona nálægt en
þetta gekk alveg rosalega vel hjá mér.“
Aldís hafði að vísu smá forskot þar
sem hún hafði byijað í Hressó mánuði
áður og hafði þá þegar misst fimm
kfló. „Þannig að þetta hafa verið
ijórtán og hálft kfló á sextán vikum.“
Aldís segir þetta hafa verið gríðar-
lega skemmtilegan tíma og það sé
engin spuming að hún ætli sér að
halda áfram. „Það var rosalega erfitt
að fara af stað. Það var ekkert mál að
taka ákvörðunina en að fara í fyrsta
tímann tók á og fyrstu vikumar vom
rosalega erfiðar," sagði Aldís en bætti
við að frábært starfsfólk á Hressó og
jákvæður mórall hafi hjálpað sér
mikið fyrstu dagana.
„Starfsfólkið fær tíu hjá mér.“ Hún
sagðist hafa orðið vör við mikinn
áhuga bæjarbúa á átakinu. „Það var
vel fylgst með okkur, bæði upp í
Hressó og eins í bæjarfélaginu. Við
fengum klapp á bakið sem var
þýðingarmikið og við fundum það vel
að dálkurinn í Fréttum þar sem
þyngdin var tíunduð var vel lesinn.“
Aldís sagði einnig að nú sé hún
farin að hugsa mikið meira um matar-
æðið. „Ég hugsa mikið um það sem ég
set ofan í mig og les á allar umbúðir,“
sagði Aldís og bætti við að hún vildi
hvetja þá sem hafa verið að hugsa um
að byija í átaki að drífa sig af stað.
„Það er erfiðast að byija en eftir það
verður þetta bara skemmtilegra og
skemmtilegra." Árangur Aldísar var
eftirfarandi: Mitti 12 sm, mjaðmir 13
sm, læri 3 sm, 9,5 kg.