Fréttir - Eyjafréttir - 15.05.2003, Side 18
18
Fréttir
Fimmtudagur 15. maí 2003
Handbolti: Fréttabikarinn 2003
Lokahóf handboltans
Stelpurnar stálu senunni
ÍSLANDSMEISTARAR ÍBV 2003 voru marghylltir á lokahófinu og hér cr verið að afhcnda þeim hálsmcn til minningar um góðan árangur.
INGIBJÖRG Jónsdóttir var kjörin besti lcikmaður íslandsmeistaranna, Robcrt Bognar Eyjólfur Hannesson og Hildur Sólveig Sigurðardóttir voru
var bestur hjá körlunum og Alla Gorgorian var markahæst. valin efnilegustu leikmennirnir.
Það var mikið um dýrðir í Höllinni
á föstudagskvöldið þegar IBV-
íþróttafélag efndi til mikillar
samkomu þar sem saman voru
komnir forráðamenn félagsins,
leikmenn, bæði handboltafólk og
knattspyrnumenn auk fjölda
stuðningsmanna, í allt um 250
manns. Hápunktur kvöldsins var
svo uppgjör vetrarins í
handboltanum þar sem stelpurnar
í meistaraflokki stálu senunni með
sína þrjá titla eftir veturinn. Þær
eru meistar meistaranna 2002,
dcildarmeistarar 2003 og loks
Islandsmeistarar ársins 2003.
Kvöldið var í alla staði hið
glæsilegasta og umgjörðin eins og
hún getur best orðið og á borðum
voru dýrindis réttir. Mikið var um
ræðuhöld þar sem mikið lof var
horið á félagið, stjórnendur þess
og ekki síst það mikla starf sem
bæði keppendur og sjálfboðaliðar
eru tilbúnir að leggja á sig.
Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari
Kvennaliðs ÍBV, stiklaði á stóru í
árangri vetrarins. Þar kom fram
að lcikjafjöldi liðsins var í vetur
55; æfingaleikir, bikarleikir,
deildarleikir og úrslitakcppni.
Þrír leikir töpuðust, tveir urðu
jafntefli og 50 unnust, „og geri
aðrir betur,“ sagði Unnur.
Þá kom einnig fram að liðið hefði
verið 318 klst. við æfingar og 230
klst. hefðu farið í ferðalög, eða
samtals 3,5 mánuðir miðað við
átta stunda vinnudag!
Davíð Þór
og Þórsteina
Að venju voru Fréttabikaramir, sem
koma í hlut efnilegstu leikmanna
handboltans karla og kvenna, afhentir
á lokahófi handboltans. Komu þeir í
hlut Davíðs Þórs Óskarssonar og
Þórsteinu Sigurbjömsdóttur.
I forsendum segir um Davíð Þór:
„Davíð hefur sýnt miklar framfarir á
undanförnum ámm og bankar nú
orðið hressilega á dyr byrjunarliðs
ÍBV. Hann lék töluvert með liðinu í
vetur, skoraði 91 mark í 24 leikjum
sem gerir tæp fjögur mörk að
meðaltali í leik en auk þess var hann í
lykilhlutverki hjá öðrum flokki karla
sem er kominn í úrslitakeppni Islands-
mótsins.
Davíð hefur lengi verið í íþróttum,
bæði fótbolta og handbolta en hefur
nú snúið sér alfarið að handboltanum.
Hann er stór og sterkur og ef spilað
verður rétt úr þeim spilum, mun Davíð
verða lykilmaður IBV innan
skamms."
Um Þórsteinu segir: „Meiri skyldur
hafa verið lagðar á Þórsteinu í
meistaraflokksliði IBV og undir lok
tímabilsins var hún oftar í byrjunar-
liðinu en ekki. Þórsteina lék auk þess
stórt hlutverk í unglingaflokki sem
HANDHAFAR Fréttabikarsins 2003, Davíð Þór og Þórsteina.
náði sínum besta árangri á íslands-
mótinu í háa herrans tíð.
Iþróttir hafa skipað stórt hlutverk
hjá Þórsteinu og bakgrunnurinn er
ekki af verri endanum því hún stund-
aði lengi fimleika og varð m.a.
Islandsmeistari í þeirri grein árið
2002. Það sést líka á leik hennar á
handboltavellinum að þar fer leik-
maður í góðu líkamlegu formi.
Þórsteina var ennfremur valin í ung-
lingalandslið íslands sem tók þátt í
undankeppni Evrópumótsins í Júgó-
slavíu á dögunum. Meistaraflokkur
kvenna hefur lengi haft á sér það orð
að kaupa leikmenn en Þórsteina er
gott dæmi um það góða unglingastarf
sem hefur farið fram hjá IBV
undanfarin ár og hún mun án efa leika
stórt hlutverk með ÍBV á næsta ári.
Landa-
KIRKJA
Fimmtudagur 15. maí
Kl. 10.00. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu. Gott tækifæri
til að koma saman og spjalla.
Föstudagur 16. maí
KI. 16.00. Útför Jóhanns Bjöms-
sonar.
Laugardagur 17. maí
Kl. 14.00. UtförÖnnu Ragnheiðar
Ivarsdóttur.
Sunnudagur 18. maí
Kl. I 1.00. Messa. Sérstaklega
verður beðið fyrir bata og huggun
eftir umferðarslysið aðfaranótt
síðsta sunnudags. Söfnuðurinn er
hvattur til að mæta í þessa messu
og taka þátt í fyrirbæninni.
Altarisganga. Kaffisopi á eftir.
Miðvikudagur 21. maí
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum.
Kl. 20.00. Opið hús í KFUM&K
heimilinu.
Fimmtudagur 22. maí
Kl. 10.00. Mömmumorgunn í
Safnaðarheimilinu.
Fastir viðtalstímar presta Landa-
kirkju eru þriðjudaga til föstudag
kl. I 1.00 - 12.00. Símar prestanna
eru 4881501 (sr. Kristján) og
4881502 (sr. Þorvaldur).
Hvítasunnu-
KIRKJAN
Fimmtudagur 15. maí
Kl. 20:30 Biblíufræðslaþarsem
nútímamál em skoðuð í ljósi
Guðsorðs. Allir velkomnir.
Föstudagur 16. maí
Kl. 20:30 Unglingakvöld.
Allt ungt fólk velkomið.
Laugardagur 17. maí
Kl. 20:30 Bænasamvera og
brauðsbrotning.
Sunnudagur 18. maí
Kl. 15:00 SAMKOMA
Komið og takið þátt í lofsöng lil
Drottins. Lilja Óskarsdóttir
predikar og beðið verður fyrir
þeim sem óska. „gleði Drottins er
hlífiskjöldur yðar.“ Nehemía 8:10.
Allir hjartanlega velkomnir.
Bænastundir á hverjum morgni kl.
7:30.
Aðventkirkjan
Laugardagur 17. maí
Kl. 10.30 Biblíurannsókn.
Biblían
talar
Sími
481-1585