Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 2

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 2
2 Fréttir / Fimmtudagur 3. júli 2003 Göngumessa Göngumessa verður í Vest- mannaeyjum til að fagna því að 30 ár eru liðin frá goslokum á Heima- ey. Verður hún með svipuðu sniði og undanfarin ár. Hugmyndin er byggð á því sem kallað hefur verið pílagrímamessa, þ.e. guðsþjónustan er á ferð og þátttakendur vitja minnisverðra og helgra staða. Hefst hún með messuupphafi í Landakirkju sunnudaginn 6. júlí kl. 11.00. Þaðan verður gengið austur í kirkjugarðinn. I garðinum verður bæn fyrir minningu látinna. Við krossinn í gíg Eldfellsins verður guðspjallið lesið og lagt verður út af texta dagsins. Þaðan verður gengið sem leið liggur niður að Hringskersgarði og messulokin verða í Stafkirkjunni. A öllum stöð- um verða sungnir sálmar sem flestir ættu að þekkja. Kór Landakirkju og organisti, Guðmundur H. Guðjóns- son, leiða sönginn og leikur hann á orgelið í Landakirkju, en einnig verður leikið á flautur eða lúðra á viðkomustöðum. Göngufólk er hvatt til að taka virkan þátt í söng og svörum en til að auðvelda það fá allir sálmablöð í hendurnar á staðnum. Fólk er hvatt lil að vera klætt eftir veðri. Þess má geta að rútuferð verður frá Landa- kirkju, upp í gíg og niður að Staf- kirkju fyrir þá sem vilja taka þátt en sleppa sjálfri göngunni. Eftir göngu- messuna mun sóknamefnd Ofan- leitissóknar (Landakirkju) bjóða kirkjufólki upp á súpu og brauð á lóð Stafkirkjunnar. Samkvæmt dag- skrá hátíðarnefndarinnar má búast við óvæntri uppákomu á Skans- inum í kjölfar guðsþjónustunnar. Sr. Kristján Björnsson. Fín sfld, stór og falleg Á föstudag hófst sfldarvinnsla ísfélagins en Harpa VE landaði þá fyrstu síldinni. Harpa hefur leyfi til að stunda veiðamar í einn mánuð frá 25. júní til 25. júlí en hrygningarsvæði sumargotssíldar- innar er við Eyjar. Andrés Sigurðsson, skipstjóri, á Höipu VE, sagði á þriðjudag að veiðamar fæm eðlilega af stað en þá höfðu náðst um 500 tonn. „Við erum við Suðurey og Hellisey og erum að veiða þetta yfir daginn. Þetta kom vel út í fyrra og vonandi verður sama upp á teningnum núna. Þessar veiðar skaffa vinnu og tekjur til bæjarfélagsins, sagði Andrés og varð að hætta spjallinu enda upptekinn við veiðamar. Óskar Óskarsson, vinnslustjóri Isfélagsins, segir vinnsluna ganga vel. „Þetta er rosalega fín sfld, stór og falleg, engin áta í henni eins og í fyrra. Þetta verður með svipuðu sniði og í fyrra en leyfið stendur í einn mánuð. Harpan fer út um tvö á daginn og er að koma inn aftur um kvöldmat. Við emm því að vinna hráefnið jafnóðum, flökum og frystum." Fimmtíu manns starfa nú í frystihúsi ísfélagsins en jafnframt síldarvinnslunni er unnið í bolfiski en í minna mæli en verið hefur. Heimaey VE hefur séð frystihúsi ísfélagsins fyrir hráefni og að sögn Siguijóns Ingvarssonar hefur fiskirí gengið ágætlega undanfarið. Heimaey hefur verið að fá um 60 tonn á viku. Eyþór Harðarson, rafmagnsverkfræðingur vann að stóru verkefni í Þýskalandi: Eldd spáð í það hvort maður er frá Eyjum eða af höfuðborgarsvæðinu EYÞÓR: Ég notaði internetið og fór á tveggja daga vinnufund í nóvember en leysti 80 prósent af verkinu hér heima en var um það bil þrjár vikur úti í Þýskalandi. Það var mikil reynsla fyrir mig að taka þátt í uppbyggingu af þessari stærðargráðu. Eyþór Harðarson hefur að undanfömu unnið fyrir Euro-Baltic við að reisa uppsjávarfrystihús f Sassnilz í Þýska- landi. Euro-Baltic er í eigu Parleviet & Van der Plas B.V. en fyrirtæki frá ýmsum löndum komu að hönnun og byggingu vinnslubúnaðar í húsinu. Eyþór þekkir vel til í Þýskalandi þar sem hann var þar við nám í ijögur ár en hann er rafmagnsverkfræðingur að mennt. „Það má segja að þetta sé dæmi um hvað hægt er að vinna héðan frá Eyjum. Ég vann verkefni l'yrir Skag- ann hf. á Akranesi en ég kynntist þeim í gegn um vinnu þeirra við uppsetn- ingu á uppsjávarvinnslu Isfélagins. Þegar það kom upp að þeir tæku að sér að vinna karaflutningskerfi fyrir uppsjávarfrystihús í Sassnitz í Þýska- landi óskuðu þeir eftir því að ég ynni þetta með þeim. Ég tók að mér að forrita karfaflutningskerfið sem flytur 700 lítra kör um húsið, allt eftir því hvaða vinnsluleiðireru valdar. í þessi kör eru sett sfldarflök sem liggja í marineringu í nokkra daga áður en þau em fullunnin. Þetta er fullkomnasta uppsjávarfrystihús í heiminum í dag og hefur kostað miklu meira en nokkur íslensk fiskvinnsla hefði tök á að framkvæma. Hollendingarnir byggja það í Austur-Þýskalandi m.a. vegna þess að Evrópusambandið er að setja mikla peninga í þetta. Á þessu svæði er mikið atvinnuleysi. Verksmiðjan mun skapa störf fyrir um það bil 150 manns og þeir reikna með að vinna 50 til 60 þúsund tonn af sfld á ári. I hillukerfi frystiklefanna geta verið allt að 20 þúsund tonn. Þarna eru mannlausir lyftarar sem flytja körin til og frá karakerfinu.“ Fleiri íslensk fyrirtæki unnu að verk- efninu, Sæplast seldi plastkörin, 3x stál seldi karaþvottavél og Pólstækni sá um vogakerli. „Þetta em dæmi um fyrirtæki sem líta út fyrir bæjarmörkin og búa til sín eigin tækifæri á heims- markaði. Við eigum það til hér í Eyjum að pæla bara í hvort okkur sé að fækka eða ekki. Hjá Euro-Baltic eru menn ekki að spá í það hvort maður er frá Vestmannaeyjum eða höfuðborgarsvæðinu. Fyrirtækið 3x stál er frá Isafirði og það hamlar þessum mönnum ekki að fara á heimsmarkað. Ég spurði þá út í þetta og þeir sjá engin vandamál við það að vera á Isafirði og eru ekkert á leiðinni suður.“ Eyþór segist hafa unnið verkið að mestu hér heima í samvinnu við þá útlendu aðila sem að því stóðu. „Ég notaði internetið og fór á tveggja daga vinnufund í nóvember, leysti 80 prósent af verkinu hér heima en var um það bil þrjár vikur úti í Þýskalandi. Það var mikil reynsla fyrir mig að taka þátt í uppbyggingu af þessari stærðargráðu. Hjá Isfélaginu eru fimm flökunarvélar en þeir eru með fimmtán. Þetta er samt sem áður svipuð vinnsla og hjá okkur á margan hátt. Einnig eru þeir með fiski- mjölsverksmiðju inni í húsinu. Það var mjög athyglisvert og lærdómsríkt að koma að þessu. Þama eru m.a. kröfur um að vatnið sem rennur frá verk- smiðjunni sé allt að því drykkjarhæft. Maritech, fyrirtæki í Reykjavík, sá um stóran hluta af upplýsingakerfinu og það er skemmtilegt að segja frá því að þegar ég kom til Euro þá var Eyjamaðurinn Þór Jónatansson að vinna fyrir þá þarna úti. Tækifærin liggja víða." Tónleikar og dansleikur með Pöpunum Annað kvöld verða haldnir stór- tónleikar í Höllinni. Þar kemur fram hljómsveitin Papar ásamt nokkurum af helstu dægurlagasöngvurum lands- ins. Á dagskránni verða aðallega lög af tveimur nýjustu plötum Papanna, Riggarobb, sem kom út í fyrra og varð þriðja söluhæsta innlenda platan á árinu og geymir lög eins og Rigga- robb, Lífið er lotterí, Þá stundi Mundi, Efemía, Hún söng dirrindí, ásamt fieiri lögum. Nýja platan sem ber heitið Þjóðsaga kom svo út fyrir tæpri viku og er í raun sjálfstætt framhald af Riggarobb, þ.e.a.s. þar eru öll lögin við texta Jónasar Ámasonar. Að auki munu Einar Ágúst og Gunni Ola úr Skítamóral frumflytja lag sem á eftir að óma í Dalnum á Þjóðhátíðinni. Sem og á i'yrri plötunni fá Papamir til sín marga af ástsælustu söngvumm landsins. Þar á meðal em; Andrea Gylfadóttir, Bubbi Morthens, Einar Ágúst Víðisson, Birgitta Haukdal, Hermann Ingi Hermansson og Berg- sveinn Arilíusson. Þrjú af þeim, þau Andrea, Einar Ágúst og Bergsveinn verða í för með Pöpunum ásamt Gunnari Ólafssyni, söngvara Skíta- mórals. Tónleikamir hefjast kl 22.00 stundvíslega. Á eftir verður svo stiginn dans með Pöpunum til kl. 03.00. JÖL r t •tScjLíá ^ * rflí TSÍfii? * ‘*m iViJwwdb* -%Y-. > Y » '..x ... ‘V/ \ / t Margo sýnir Gos og gler Um helgina verður Margo Renner með glerlistarsýningu í Listakoti, Bárustíg 11. Margo hefur unnið gler í mismunandi formum undanfarin tuttugu og fimm ár. í tilefni af goslokaafmælinu hefur hún unnið nokkra skúlptúra þar sem notað er hraun úr eidgosinu. Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549 - Vestmannaeyjum. Ritstjóri: Ómar Garðarsson. Blaðamenn: Sigursvejnn Þórðarson, Guðbjörg Sigurgeirsdóttir. íþróttir: Júlíus Ingason. Ábyrgðarmenn: Ómar Garðarsson & Gísli Valtýsson. Prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent. Vestmannaeyjum. Aðsetur ritstjórnar: Strandvegi 47. Símar: 481 1300 & 481 3310. Myndriti: 481-1293. Netfang/rafpóstur: frettir@ eyjafrettir.is. Veffang: http//www.eyjafrettir.is FRÉTTIR koma út alla fimmtudaga. Blaðið er selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum, Toppnum, Kránni, Vöruval, Herjólfi, Flughafnarversluninni, Krónunni, ísjakanum, Bónusvídeó, verslun 11-11, Skýlinu í Friðarhöfn og í Jolla í Hafnarfirði og afgreiðslu Hejrólfs í Þorlákshöfn. FRETTIR eru prentaðar í 2000 eintökum. FRÉTTIR eru aðilar að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða. Eftirprentun, hljóðritun, notkun Ijósmynda og annað er óheimilt nema heimilda sé getið.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.