Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 22

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 22
22 Fréttir / Fimmtudagur 3. júlf 2003 Dagbók úr ferð kennara og nemenda til Litháen í vor: Alls staðar tekið opnum örmum -og stjanað við okkur á alla lund. Það er líka gaman að segja frá því að íslensku krakkarnir og þeir litháensku hafa verið í SMS og tölvusambandi síðan þau komu heim Þann 9. til 16. maí fóm fjórir kennarar og fimm nemendur frá grunn- skólunum í Vestmannaeyjum til Litháen. Tengist þessi ferð Comeni- usarverkefni sem skólamir taka þátt í og erum við að ljúka öðru ári af þremur. Sólrún Bergþórsdóttir, Bama- skólanum og Svava Bogadóttir, Hamarsskóla, hafa haft umsjón með þessari vinnu og fengu í vetur til liðs við sig Selmu Ragnarsdóttur í fata- hönnunina. Bjöm Elíasson, aðstoðarskólastjóri Barnaskólans, var einnig með í ferðinni til Litháen og kynntist skólastarfi þar sem er að ýmsu leyti frábmgðið því sem við eigum að venjast. Tilgangur verkefnisins er að tengja betur saman lönd í Evrópu og auka samstarf þeirra á milli. Fyrsta veturinn sendum við kynn- ingarmyndband milli landa og gáfum út tímarit. I vetur hafa nemendur hér í Eyjum verið að hanna og síðan sauma fatnað og var hugmyndin að búa til nýtt út frá áhrifum og hefðum allra þátttökulandanna en þau em auk Islands, Litháen, Rúmenía og Þýska- land. Af verkefnum vetrarins má nefna ýmsar skemmtilegar útfærslur á mat- reiðslu og fatagerð. Litháar útbjuggu matseðil, m.a. „Geysers in Pancakes“ og það eina íslenska í þeim rétti er nafnið, Þjóðverjar nútíma þjóðsögu og Rúmenar dansa. Nemendur sýndu svo afrakstur vinnu sinnar á sýningu sem var í Litháen. Síðasta veturinn ætlum við síðan að bera saman slangur og slettur unglinga í þátttökulöndunum og búa til orðabók. Evrópusambandið greiðir mestan hluta verkefnisins en Vestmannaeyja- bær styrkir á móti. Dregið var úr nöfttum þeirra nemenda sem stóðu sig vel í fatahönnun og saumaskap og fóm þau með í ferðina. Ferðalagið byrjaði 9. maí og þurft- um við að gista eina nótt í Kaup- mannahöfn. Að sjálfsögðu fómm við bæði á Strikið og íTívolí. Stemmning- in í Tívolí minnti einna helst á þjóðhátíð, það vantaði bara tjöldin! Daginn eftir flugum við til Vilnius, höfuðborgar Litháens, og mikil HÓPURINN samankominn í hádegismat, íslendingar, Litháar, Rúmenar og Þjóðverjar. nágrenni. Þar var alveg greinilegt að skólahúsnæði og skólabúnaði er ekki jafnvel viðhaldið og við eigum að venjast. Allir fengu að æfa sig fyrir sýningu sem var seinna um daginn en okkar hópur sýndi föt sem 9. bekkingar í báðum skólum höfðu hannað og saumað. Sýningin gekk ljómandi vel og vakti rnikla athygli en í fatahönnun var blandað saman efnum eins og laxaroði, Iopa, silki, bómull o.fl. Þau sem sýndu fötin vom: Sólveig Rut Magnúsdóttir, Sveinn Agúst Kristins- son úr Bamaskólanum og Annika Vignisdóttir og Lilja Dröfn Kristins- dóttir úr Hamarsskóla. Amar Ingólfs- son úr Bamaskólanum hafði ekki minna hlutverki að gegna en hann tók alla sýninguna upp á myndband. Að sýningu lokinni var síðan diskótek fyrir krakkana. Grimmd mannanna eftirvænting lá í loftinu þar sem ekkert okkar hafði komið þangað áður. Nemendur áttu að gista í heimahúsum hjá jafnöldrum sínum og það var spennandi að sjá hvemig það gengi. I Litháen Eftir tæplega þriggja tíma rútuferð frá Vilnius komum við til Vilkaviskis en það er 15.000 manna bær. Þar biðu okkar bæði foreldrar og nemendur og hver nemandi fékk sitt „heimili". Annan daginn fómm við að Vistytis vatninu sem er alveg við landamæri Rússlands en þar grilluðum við og komumst að því að körfubolti er hátt skrifaður í Litháen. Þar skoðuðum við líka myndbönd sem nemendur í hverju landi höfðu gert um undirbún- ing verkefnisins. Þriðji dagurinn var skipulagður frá morgni til kvölds í Ziburys skólanum en þar starfa kennarar og nemendur sem við höfum verið í samskiptum við. I þeim skóla em aðeins 120 nemendur á aldrinum 11 til 16 ára. Þau berjast fyrir tilvist sinni en til stendur að flytja þau í 1200 bama „nýjan“ skóla „Ausra“ í næsta Á útsýnispalli í Kaunas. Fjórða daginn fórum við til Kaunas, sem er næststærsta borg Litháen. Hún er mjög falleg og snyrtileg borg og þar er m.a. að finna glæsilega verslunar- götu. Þar skoðuðum við KGB-safnið sem er gamalt fangelsi. Þar fræddi leiðsögumaður okkur um þær pynd- ingaraðferðir sem beitt var gegn þeim sem ekki voru hliðhollir hinu komm- úníska þjóðfélagskerfi sem var við lýði í Litháen fram til 1991. Mjög óhugnanleg sýning sem upplýsti okkur svo sannarlega um það hversu grimmir menn geta orðið. Fimmta daginn fómm við síðan til Vilnius, höfúðborgarinnar, og skoðuð- um þar kirkju áður en við fómm í nýja verslunarmiðstöð. Þó þeir kölluðu bygginguna verslunarmiðstöð var greinilegt að ekki skipti minna máli að hafa afþreyingu en verslanir því stórt skautasvell var í miðjunni og matsölu- staðir allt í kring. Ferðalagið hvora leið tók 3 tíma svo við gerðum ekki meira þann daginn. Sjötta daginn heimsóttum við bæjarstjórann í Vilkaviskis og færðum honum að gjöf bók um Vestmanna- eyjar. Hann hafði á orði að Islendingar væm hátt skrifaðir hjá sér og öðmm Margt að skoða og skemmtilegir krakkar -segja þau Annika, Arnar og Sóveig Rut um ferðina til Litháen Annika Vignisdóttir segir verkefn- um hafa verið skipt á milli þjóðanna sem þátt tóku í verkefninu en þau em Island, Rúmenía, Þýskaland og Litháen þar sem hópamir hittust. „Það kom í okkar hlut að hanna föt og sauma þau og við unnum öll saman að því. Krakkar frá hinum löndunum tóku fyrir mat og annað. Fötin áttu að sameina strauma frá öllum löndunum fjómm og sóttum við fyrirmyndimar í þjóðbúninga þeirra allra.“ Hvað vissir þú um Litháen áður en þú fórst út? „Það var lítið annað en að það er land. Mér fannst eins og margir væm fátækir og öðm vísi en hjá okkur. I bænum, þar sem Sólveig og Lilja bjuggu, vom öll ljós slökkt á kvöldin. Eg held að fjölskyldan sem ég var hjá hafi verið mjög rík miðað við það sem gerist þama og inni hjá þeim var svipað og á Islandi." Hvað kom þér mest á óvart? „Það ANNIKA. voru kannski krakkarnir. Ég bjóst ekki við að þeir væru eins skemmti- legir og kom í ljós. Eg á nokkra vini þama úti. Strákamir? Jú, þeir em allt í lagi. Eg hef verið í sambandi við stelpuna sem ég bjó hjá og svo er fullt af krökkum að sendá mér póst á Netinu og SMS-skilaboð.“ ARNAR. Hvað vissu krakkarnir í Litháen um ísland? „Það var ekki mikið. Þau vissu um gosið í Vestmannaeyjum en það var lítið annað. Já, ég mundi vilja fara þangað aftur,“ sagði Annika að lokum. Arnar Ingólfsson var eins og hinir krakkamir að ljúka 9. bekk í vor og SÓLVEIG RUT. hans hlutverk var að taka upp á myndband undirbúning ferðarinnar til Litháen. Því verki hélt hann áfram í ferðinni því hann fór út sem töku- maður. „Eg og Sveinn Ágúst vomm að mynda krakkana á meðan þeir vom að hanna og sauma fötin sem við fómm með út. Ég tók líka svona um- hverfismynd af eýjunni sem við fómm með út. Sveinn Ágúst, sem á tökuvélina, tók myndir í rútuferðum en ég tók myndir af sýningunum þar sem hann var að sýna föt.“ Þarna vom samankomnir krakkar frá Islandi, Rúmeníu og Þýskalandi auk gestgjafanna. Gaf það ferðinni enn meira gildi. „Mér fannst mjög gaman að koma til Litháen, þetta er öðruvísi land en Island og margt að skoða. Mér fannst athyglisverðast þegar þau sýndu okkur stærsta heila steininn sem er að finna í landinu. Það liggja tröppur upp á hann en mér fannst hann ekki mjög stór.“ Mamman og pabbinn, sem Amar dvaldi hjá, em bæði lögfræðingar og sagði Amar að sér hefði sýnst þau vera svona í meðallagi vel stæð miðað við það sem þama þekkist. „Krakk- amir töluðu svipaða ensku og við þannig að okkur gekk vel að ná

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.