Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 24

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 24
24 Fréttir/ Fimmtudagur 3. júlf 2003 Stórglæsilegt Shellmót -sem var haldið í tuttugasta sinn Það hefur varla farið framhjá nokkrum manni í Vestmannaeyjum að Shellmótið fór fram um helgina. Þetta var tuttugasta mótið og voru þátttakendur tæplega 1200, þjálfarar, leikmenn og fararstjórar en óhætt er að fullyrða að um tvö þúsund manns hafl verið í Eyjum í tengslum við Shellmótið. Mótið var sett á fimmtudags- kvöldinu í blíðviðri en fyrstu tvo dagana var sól og blíða. A þriðja degi fór að rigna þegar leið á daginn en það kom ekki niður á mótshaldinu og strákarnir létu engan bilbug á sér finna þótt aðstæður væru hlautar. Dagskrá mótsins var með hefð- hundnu sniði, setning á fimmtudegi, kviildvaka á föstudegi, grillveisla á laugardegi og lokahóf á sunnudegi en alla dagana var leikið frá níu á morgn- ana og frarn eftir degi. Þess á milli fóru liðin í hátsferðir og rútuferðir og einhverjir reyndu fyrir sér í Spröngunni. Allt gekk sinn vanagang í mótinu enda er Shcllmótsnefndin vakin og sofln yflr mótinu þá daga sem það stendur. Njarðvík, A-lið, varði titil sinn í Shcllmótinu en þeir urðu meistarar árið 2002. Úrslitaleikurinn var jafn og spcnnandi, Njarðvíkingar voru mcð léttleikandi lið en Hafnfirðingar hiifðu í sínum riiðum sterka stráka. Ekkert mark var skoraði í fyrri hálfleik en í þeim síðari komust Njarðvíkingar yfir. FH-ingar reyndu hvað þeir gátu að jafna, þeir þurftu að skora tvö mörk til þess að tryggja sér titilinn en Njarðvíkingum dugði jafntcili þar sem þeir voru fyrri til að skora. FH-ingar jöfnuðu einmitt leikinn á lokamínútunni en komust ekki lengra og því var það Njarðvík sem fagnaði titlinum. Það var hins vegar aðdáunarvert að sjá liðin fagna í sameiningu í lcikslok og ljóst að enginn gekk sár af velli. I B-liðum var það svo IA sem sigraði, í C-liðum Víkingur og í D- liðum voru það Eeiknismenn sem báru sigur úr býtum. Eyjaliðunum gekk þokkalega í mótinu í þetta sinn þó að liðin hafl ekki komist á verðlaunapall. Bestum árangri náði C-liðið sem endaði í 5. til 6. sæti en önnur lið IBV léku svokallaða jafningjalciki en einungis er raðað í efstu átta sæti mótsins, önnur lið spila jafningjaleiki. Mótinu var svo slitið við hátíðlega athiifn í íþróttahöllinni og þar var þröngt á |>ingi enda um 1400 manns í sainum. Verðlaunahafar tóku við sínum verðlaunum, sem voru Ijölmörg enda er það keppikefli mótshaldara að verðlauna sem flesta. Ekki var annað að sjá í mótslok en að þreyttir en ánægðir ungir knattspyrnukappar hafi haldið heim á leið og Ijóst að Shcllmótið er einn allra glæsilegasti íþróttaviðburður landsins. ÞAÐ er ógleymanlegt að fylgjast með lokaathiifninni þar sem samankomnir eru rúmlega 1000 strákar á aldrinum 9 og 10 ára. Að komast á verðlaunapall er líka eitthvað sem drengirnir gleyma seint eða aldrci. Tók þátt í fyrsta Tommamótinu -Landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson í léttu spjalli um Shellmótið Hermann Hreiðarsson, landsliðs- maður og Eyjapeyi, fylgdist með Shellmótinu í ár auk þess sem hann afhenti verðlaun á lokahófinu. Hemmi þekkir að sjálfsögðu vel til mótsins, spilaði sjálfur á Tomma- mótinu og tók þátt í framkvæmdinni hér á árum áður. Hann fékk reyndar ekki mikinn tíma til að fylgjast með leikjunum því Hermann var í því að skrifa eiginhandaráritanir á allt það sem strákunum datt í hug að láta landsliðshetjuna skrifa á, skó, boli. húfur, buxur og myndatökurnar voru ófáar. Hemmi sagði í samtali við Fréttirað honum liefði fundist gaman að koma aftur á Shellmótið. „Eg var svo heppinn að fá að taka einu sinni þátt í þessu móti, það var 1983 þegar fyrsta Tommamótið var haldið. Eg man eftir því að það var mikil tilhlökkun og nánast rætt um mótið allt árið áður en af því varð. Við strákarnir urðum líka ekki fyrir vonbrigðum því þetta mót var frábært og er eitt af því sem maður man best eftir úr yngri flokkunum. Það var reyndar smá ástand á manni því daginn áður en mótið hófst veiktist ég og það var mikil sorg enda sá ég fram á að missa af mótinu. En ég jafnaði mig og mætti galvaskur á völlinn á laugardeginum og náði þar með tveimur dögum í mótinu. En þar sem ég var á eldra ári í sjötta flokki var þetta í eina skiptið sem ég tók jxítt í mótinu sem leikmaður." En þú hefur nú eitthvað komið nálœgt mótinu eftirþetta? , Jú, það er rétt, eins og reyndar allir Eyjapeyjar sem æfðu fótbolta. Við vorum notaðir í ýmislegt í mótinu og svo þegar við urðum eldri þá fórum við að dæma leikina. Það var auð- vitað mjög skemmtilegt að taka þátt í því enda er |>etta glæsilegasta knatl- spymumót landsins." Hvemigfannst þér mótið ganga í ár? „Þarf nokkuð að spyrja að því. Þetta gengur alltaf vel, sama hvemig veðrið er eða hvað kemur upp á. HEMMI hélt að hann hefði gefið a.m.k. 1000 eiginhandaráritanir um helgina. Þessir menn sem stýra mótinu em snillingar í þessu og mótið verður alltaf skemmtilegt á meðan þeir em að.“ Og þú ert búinn að skrifa nafnið þitt nokkrum sinnum wn helgina? Jú, strákamir em duglegir að biðja um eiginhandaráritanir og auðvitað verður maður við því. Ætli ég sé ekki búinn að skrifa nafnið mitt rúmlega þúsund sinnum um helgina en ég man þegar ég var sjálfur á þeirra aldri og menn eins og Arnór Guðjohnsen komu. Þá var maður hálfgerður bakpoki á honum og elti hann út um allt.“ STRÁKARNIR í C-liðinu náðu bestum árangri Eyjapeyja.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.