Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Síða 8

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Síða 8
8 Fréttir / Fimmtudagur 3. júlf 2003 Ljósmynda- samkeppni Valgeir Jónasson á Ofanleiti er að fara af stað með ljósmyndakeppni. Mynd- imar á fólk taka á Ofanleiti af krökk- um með búfénaði sem þar er, kanín- um, öndum og gæsum. Fimm manna dómnefnd skipa Elías Baldvinsson formaður, Páll Zóphóníasson tækni- fræðingur, Ingibjörg Jónsdóttir frá Þorlaugargerði, Hjálmfríður Sveins- dóttir frá Andakfl, skólastjóri og Guðfmnur Pálsson hjá Landflutning- um Herjólfi. Myndunum á að skila í póstbox 344, í umslagi merkt „Ljós- myndasamkeppni“ og er skilafrestur til l.september. Verðlaun eru gisting í Smáhúsum við Ofanleiti, tvær nætur. ÍBVtekurvið Týsheimilinu Á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs 24. júní sl. var samþykktur samningur milli bæjarins og IBV-íþróttafélags um rekstur á Týsheimilinu. Jafnframt samþykkti íþrótta- og æskulýðsráð fyrirliggjandi samning þar sem meðal annars er kveðið á um að hverfa frá fyrri ætlan um að flytja starfsemi félagsmiðstöðvar úr Félagsheimili í Týsheimilið. Elsa Valgeirsdóttir (D) bókaði að hún harmaði að ekki skuli hafa náðst að samþætta á einum stað þá æskulýðs- og tómstundastarfsemi sem fram fer á vegum Vestmanna- eyjabæjar annars vegar og ÍBV - íþróttafélags. Athugasemdir Á fundi bæjarráðs á mánudag gerðu bæjarritari og bæjarstjóri grein fyrir athugasemdum vegna ákvörðunar bæjarráðs frá því í síðustu viku að gefa starfsmönnum bæjarins kost á því að tjá sig um úttekt IBM Consulting Services á stjómskipulagi bæjarsjóðs og stofnana hans. Foreldrar Elfars Franz eru ánægð með þjónustu í Eyjum: Samfélagið tilbúið að létta undir LÓA og Biggi með Elfar Franz. Fólk sem vinnur við þennan málaflokk í Eyjum er alveg frábært, gildir það bæði um starfsfólkið í Ráðhúsinu og leikskólanum, Guðbjörg Guðmundsdóttir þroskaþjálfi og Elías Friðriksson sjúkraþjálfari eru í þeim hópi. Auk þess að þurfa á sjúkraþjálfara að halda er hann í sér- smíðuðum skóm. Það er alltaf erfitt þegar foreldrar standa frammi fyrir því að bamið þeirra þroskast ekki eins og eðlilegt er. Og það er kannski enn erfiðara að þurfa að viðurkenna það fyrir sjálfúm sér að ekki sé allt með felldu því auð- vitað vilja allir sjá soninn eða dótturina blómstra og komast til þroska. Birgir Sveinsson og Ólöf Jóhanns- dóttir vom engin undantekning en haustið 2001 var þeim Ijóst að tveggja ára sonur þeirra, Elfar Franz, var seinn til. Niðurstaða greiningar var að hann var á eftir í máli og málskilningi og þá þurftu þau allt í einu að skoða hvað honum stóð til boða í Vestmanna- eyjum og svarið var; þjónusta hér er að flestu leyti góð fyrir börn með sérþarfir sem kom bæði þeim og starfsfólki Greinarstöðvar ríkisins á óvart. Nú á að bæta um betur með talsjá sem reynst hefur vel í að koma börnum til málþroska. Elfar Franz varð fjögurra ára þann 5. júní sl. og talar lítið sem ekki neitt. Hann var vel kominn á þriðja ár haustið 2001 þegar Biggi og Lóa gerðu sér grein fyrir því að ekki var allt með felldu. „Þá var okkar fólki farið að finnast að hann væri eitthvað á eftir,“ segir Biggi í samtali við Fréttir. „Hann var ekkert farinn að tala og í framhaldinu fómm við með hann á greiningarstöðina við Barónsstíg. Þar fengum við staðfestingu á að hann væri eitthvað á eftir en við urðum hissa á viðbrögðunum. Okkur var sagt að eitthvað mikið væri að og svo var okkur hent út án þess að hafa nokkra vitneskju um hvað væri að og hvert framhaldið yrði.“ Viðbrögð þeirra vom að panta tíma hjá Greiningarstöð rfldsins þar sem viðtökur vom allt aðrar og betri. „Þar „Ég heiti Rósanna Ingólfsdóttir, er Eyjapæja, listakona og leirkerasmiður. Ég er fædd og uppalin í Vest- mannaeyjum, Urðaveg 39 og foreldrar mínir eru Guðrún Welding og Ingólfur Eiríksson," segir Rósanna sem sýnir í tónlistarsal Listaskólans um helgina. „Ég flutti til Noregs eftir gos og fór þar í listnám. Flutti til Svíþjóðar 1985 hélt þar áfram listnámi og hef búið þar síðan með fjölskyldu minni i litlum bæ fyrir norðan Gautaborg. Ég vinn aðalega við leirlist og hef sýnt meðal annars í Gautaborg, Noregi, Eistlandi og Danmörku. Það er ótrúlega spennandi en þó mikil vinna að taka þátt í sýningum erlendis. Ég vil nota hér tækifærið að þakka þeim sem hafa gert þetta að möguleika. Margt getur þó farið úrskeiðis og á þessari stundu (sem er sunnudagur) em listmunir mínir fastir í tollinum í Reykjavík. Þessi sýning er sérhönnuð fyrir goslokahátíðina og ég hef verið að vinna úr henni í heilt ár. I fyrra var ég í Vestmannaeyjum að safna myndefni, meðal annars utan úr Klettshelli. Myndimar em þrykktar og brenndar á leir, alveg sérstök aðferð sem er bæði tók á móli okkur frábært fólk, fagfólk sem vissi upp á hár hvað það var að gera. Þar var Elfar Franz í alls herjar greiningu í þrjá daga og útkoman var að hann er á eftir í máli og málskiln- ingi. M.a. voru gerð á honum litn- ingapróf sem komu vel út og hann var ekki einhverfur eins og við höfðum óttast.“ Þegar greiningin lá fyrir var næst að kanna hvað Elfari Franz stæði til boða heima í Eyjum. „Við vomm spurð tímafrek og erfið og fáir fást við. Ég er einnig með listaverk sem er brennt með aðferð sem kallað er RAKU og hefur náð ótrúlegum vinsælum á Norðurlöndum á síðustu ámm. Þetta er uppmnalega japönsk aðferð og Breti að nafni Leads kynnti þessa aðferð fyrir Norðurlandabúum i kringum 1950. Ofninn minn er kyntur viði og hef ég byggt marga ofna, þann síðasta á Italíu, núna í vor, þar sem ég var með námskeið fyrir sænsk-ítalska félagið." Rósanna sagðist loks vera búin að ná listmununum úr tollinum í Reykjavík og koma þeir til Eyja í kvöld. „Púlsinn er búinn að vera á 120 og ég var farin að örvænta og halda að þetta tækist ekki. Mér hefði aldrei tekist þetta án hjálpar frá henni systur minni Svönu og Reyni bróður mínum og svo em tvær frábærar konur í tollinum í Reykjavík. Ég get ekki lýst því með orðum. Þær heita Ásta Thorarensen og Þuríður Vilhjálmsdóttir. Þær hafa slíka kunnáttu og reynslu í þessum málum að leitun er að öðm eins,“ sagði Rósanna að lokum. hvort hitt eða þetta sem gæti komið að notum fyrir son okkar væri til staðar í Eyjum. Við gerðum lítið nema yppa öxlum því sem betur fer höfðum við ekki þurf að nýta þessa þjónustu áður. En það kom okkur og starfsfólki Greiningarstöðvarinnar á óvart hversu vel er staðið að aðstoð við böm í Vest- mannaeyjum. Vil ég sérstaklega að það komi skýrt fram,“ sagði Biggi með áherslu. „Fólk sem vinnur við þennan mála- flokk í Eyjum er alveg frábært, gildir það bæði um starfsfólkið í Ráðhúsinu og leikskólanum, Guðbjörg Guð- mundsdóttir þroskaþjálfi og Elías Friðriksson sjúkraþjálfari eru í þeim hópi. Auk þess að þurfa á sjúkra- þjálfara að halda er hann í sér- smíðuðum skóm.“ Elfar Franz er með 70% stuðning í leikskóla í dag sem er í höndum Öldu Jóhannsdóttur. „Hún er alveg frábær, já, það er bara eitt orð yfir það og það sama get ég sagt um þær sem vom á undan henni og allt starfsfólkið á Rauðagerði. Þar er alveg einstakt fólk sem alltaf er tilbúið að hjálpa á allan máta.“ Þá kom Birgir að því sem vantar, í Vestmannaeyjum er enginn talmeina- fræðingur en fyrir nokkmm ámm vom þeir tveir. „Það er ekki bara að dreng- inn minn vanti þjónustu talmeina- fræðings því hér eru á milli 30 og 40 leikskólabörn sem þurfa á henni að halda. Mismikið reyndar.“ Birgir segir að Bryndís Guðmunds- dóttir, talmeinafræðingur, komi til Eyja tvisvar á ári og sé í fimm daga í senn. „Hún hefur reynst okkur rosa- lega vel en það er ekki nóg. Tókum við þá ákvörðun að fara vikulega með Elfar Franz til talmeinafræðings í Reykjavík. Það gerðum við frá því í lok ágúst fram í mars. Var þá stflað upp á að fara á föstudögum til að komast til baka sama dag. Síðan Alda tók við hefur verið komið upp teymi hér í Eyjum til að annast Elfar Franz og nú fer hann einu sinni í mánuði til Reykjavíkur. Er það gert til að minnka álagið á honum." Þannig er staðan í dag en Biggi og Lóa horfa fram á bjartari tíð og það má þakka tölvutækninni. „I vetur sá Lóa frétt í sjónvarpinu um tæki sem hjálpar bömum sem eiga við talörðug- leika að stríða. Tækið heitirTalsjá III og kynntum við okkur möguleika þess. Það kviknaði von um að tækið gæti hjálpað Elfari Franz og setti ég mig í samband við Nýherja sem selur tækið eða réttara sagt tölvuforritið. Ég fékk góðar viðtökur hjá Emi Kaldalóns sem hefur reynst mér vel. Tölvuforritið kostar um 100.000 krónur og við þessa eftirgrennslan komst ég að því að um 7% allra leikskólabama þurfa á aðstoð að halda við talkennslu.“ Til að gera langa sögu stutta talaði Biggi við félaga sína í Kiwans- klúbbnum Helgafelli sem samþykktu að styrkja verkefhið. „Það var ácveðið að ég kannaði hvaða afslátt við fengjum ef við keyptum þijár Talsjár. Þeir vom tilbúnir að selja okkur þær á 200.000 krónur sem Kiwanis borgar auk hljóðnema og uppsetningar, 40.000 til 45.000 krónur sem bærinn mun borga“ Ákveðið er að Talsjár verði settar upp á leikskólunum þremur, Kirkju- gerði, Rauðagerði og Sóla. „Þetta verður til þess að góð þjónusta verður enn betri,“ sagði Biggi og bætir við. „Það er alltaf erfitt að þurfa að viðurkenna að barnið sitt sé á eftir, eins og Elfar Franz sem getur sagt mamma og pabbi og nöfn systkina sinna sem þú mundir ekki skilja. En það er líka mikill léttir þegar maður finnur hvað samfélagið er tilbúið að létta undir með jieim sem eiga undir högg að sækja. Ég ætla til dæmis ekki að líkja því saman hvað það er léttara að vera með bam hér sem þarf á aðstoð að halda heldur en á Reykja- víkursvæðinu. Hér sér bærinn um að keyra Elfar Franz til og frá sjúkra- þjálfara en í Reykjavík þurfa for- eldramir sjálfir að sjá um aksturinn með öllum þeim tíma og óþægindum sem því fylgir,“ sagði Biggi að lokum. Rósanna Ingólfsdóttir listakona kemur frá Svíþjóð: Sýningin er sérhönnuð fyrir goslokahátíðina RÓSANNA: í fýrra var ég í Vestmannaeyjum að safna myndefni, meðal annars utan úr Klettshelli. Myndirnar eru þrykktar og brenndar á leir, alveg sérstök aðferð sem er bæði tímafrek og erfið og fáir fást við.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.