Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Side 12

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Side 12
12 Fréttir / Fimmtudagur 3. júlí 2003 Arí Trausti Guðmundsson Mat á eldgosavá í Eyjum -álit jarðvísindamanns Ekki í Eyjum? Athygli vakti þegar ég heyrðist segja í dagskrárkynningu vegna sjónvarps- þátta á Stöð 2 um Heimaeyjargosið 1973 að Vestmannaeyjar væru sá staður sem ég vildi einna síst eða alls ekki búa á. Höfðu höfundar þátttanna kosið að nota tvær setningar slitnar úr samhengi úr alllöngu viðtali við mig og búa til hasar til að auglýsa þætti sína. Líklega tókst þeim það. I samhengi við annað sem ég sagði í þáttunum var fullyrðingin byggð á raunhæfu hættumati sem síðan var mildað nokkuð í næstu andrá í við- talinu með því að útskýra hvemig reynt væri að vakta eldstöðvar Vest- mannaeyja. Það er lykilatriði í málinu, ekki hvar ég kýs að búa. Þessi orð mín í dagskrárkynningu höfðu auðvitað ekkert að gera með Vestmannaeyjar sem samfélag, daglegt umhverfi, nátt- úmfegurð, viðmót fólks eða hvað eina annað en hættuna á eldsumbrotum og áhættu einstaklingsins hvað hana varðar. Þetta var heldur ekki sagt til að hræða fólk. Reyndar stjómar enginn viðbrögðum við upplýsingum um náttúruvá, svona yfirleitt, svo það er auðvelt að segja sitthvað sem fer misvel í fólk. Áhætta allra sem búa við náttúmvá snýr fyrst og fremst að einstaklingnum sjálfum, fjölskyldu, ættingjum eða vinum og svo eignum fólks, sveitar- félagsins og fyrirtækja. Þess vegna þarf að ræða náttúruvá og hættumat opinskátt og hreinskilnislega. Þess vegna er hægt að forgangsraða þeim stöðum á landinu sem hver og einn treystir sér til að búa á, eða búa ekki á. Þannig vildi ég frekar búa á Eyrinni á Isafirði en á snjóflóðasvæðinu sem nú er autt í Súðavík, frekar í Borgarnesi en á Selfossi vegna jarðskjálftahættu og frekar á Blönduósi en í Vestmanna- eyjum vegna eldgosahættu. Einn staður er hættulegri en annar í landinu og allmargir staðir lenda efst á hættulistanum, eftir því hvaða náttúm- vá menn skoða. Ástæður þess að fólk býr yfirhöfuð á hinum hættulegri stöðum eiga sér sögulegar rætur og félagslegar skýringar og svo bregður líka fyrir þeirri augljósu ástæðu að lengi vissu menn ekki meira en svo um náttúmna að hættan var talin lítil, engin eða afstæð. Og, þegar allt kemur til alls, er fólk misupptekið af náttúm- vá. Menn geta leitt hana hjá sér, boðið henni birginn, talið forlög stjórna, treyst á guð sinn eða lukkuna og margt fleira; eða einfaldlega metið hættuna aðra en einhver sérfræðingur og þá alveg ásættanlega. Segja má lika að hugrekki komi til sögunnar en það er erfitt hugtak að höndla. Varnaglar En um hvað snýst þá málið? Hver er hættan af eldvirkni í Vestmanna- eyjum? Hvað er til varnar? Áður en því er svarað þarf að minna á femt. I fyrsta lagi verður að setja opinberlega fram helst allar atburða- rásir eldvirkninnar sem jarðfræðingar þekkja og geta átt við Eyjar - og meta svo líkumar í samræmi við stöðu þekkingar á hverjum tíma. Hér verður aðeins hægt að tæpa á nokkmm atriðum. I öðm lagi verður að minna á að nútímamyndin af eldvirkni í Eyjum er aðeins um þriggja áratuga gömul og jarðfræðin þróast nokkuð hratt. Þess vegna þarf að endurmeta náttúmvá í Eyjum á nokkurra ára fresti og þess f .1 *fV*i 3 Íí * »í * . SaK 3j 4 HEIMAEYJARGOSIÐ 1973: Áhætta allra sem búa við náttúruvá snýr fyrst og fremst að einstaklingnum sjálfum, fjölskyldu, ættingjum eða vinum og svo eignum fólks, sveitarfélagsins og fyrirtækja. Þess vegna þarf að ræða náttúruvá og hættumat opinskátt og hrcinskilnislega. Þess vegna er hægt að forgangsraða þeim stöðum á landinu sem hver og einn treystir sér til að búa á, eða búa ekki á. Þannig vildi ég frekar húa á Eyrinni á ísaiirði en á snjótlóðasvæðinu sem nú er autt í Súðavík, frekar í Borgarnesi en á Selfossi vegna jarðskjálftahættu og frekar á Bliinduósi en í Vestmannaeyjum vegna eldgosahættu. Mynd Guðmundur Sigfússon. utan leggja fé í að aðlaga vöktunar- kerfi því nýjasta og besta jafnóðum og framfarir verða. I þriðja lagi em jarðfræðingar ekki endilega sammála unt sumt fremur en aðrir sérfræðingar enda umræður, gagnrýni og andstæðar skoðanir einn af drifkröftum vísinda eins og allir vita. I Ijórða lagi eru óglögg skil á milli vísinda, þegar kemur að mati á náttúruvá og við- brögð við henni, og svo aftur stjóm- mála eða hagstjómar. Grunnatriðin fyrst Byrjum á grunnatriðunum og ýmsum staðreyndum. Vestmannaeyjar mynda eldstöðvakerfi. Með því er átt við stórt landsvæði þar sem kvika stígur upp í jarðskorpuna og þar sem sprungu- myndun samfara uppstreyminu (eða plötureki sem fiestir hafa heyrl um) veldur tíðum eldgosum þegar til langs tíma er litið. Er sá tími gjarnan mældur í 100.000 til .000.000 árum. Plöturek er ekki meginþáttur í virkni Vestmannaeyjakerfisins, enn sem komið er, heldur er kerfið hluti af nýlegu jaðargosbelti (utan við aðal gos- og rekbeltin) sem varð virkt fyrir rúmum 2 milljón árum á Suðurlandi og er í sókn. Eyjar eru raunar í suðurenda þessa beltis. Undir þeim GREINARHÖFUNDUR: Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur myndast kvika og jarðskorpan getur gliðnað á svæðinu. Allar eyjarnar og skerin, auk fjöl- margra neðansjávarmyndana, hafa hlaðist upp við eldvirkni, fyst og fremst síðustu tugþúsundir ára. Eyjamar sjálfar eru ummerki nýlegra gosa. Þær em eldstöðvar sem hafa risið upp fyrir núverandi sjávarborð en gosbergsmyndanir neðan sjávarborðs eru ummerki um neðansjávargos. Samtals em goseiningamar a.m.k. nálægt 80. Hugmyndir um að aðeins gjósi innan kerfisins stöku sinnum og þá á nokkur þúsund ára fresti fá varla staðist, m.a. vegna þess að fáar aldurs- greiningar em til á gosefnum í kerfinu, annálar em óáreiðanlegir (tvær ábend- ingar em t.d. um gos í sjó á sögulegum tíma) og hreinu neðansjávargosin vilja gleymast í umræðunni. Líklegt er að gosvirkni í Eyjum, sem og í flestum öðmm eldstöðvakerfum, gangi oftast yfir í hrinum sbr. þá sem varð fyrir um 8.000 ámm og skilaði t.d. Hellisey og Suðurey. Önnur goshrina tengdi saman eyjar sem urðu að Heimaey. Það gerðist þegar Sæfjall og Helgafell mynduðust fyrir 5.900- 6200 árum. Nokkru seinna gaus í sjó og frá þeint tíma standa Elliðaey og Bjarnarey (sagðar 5.000-6.000 ára). I eldri goshrinu risu Norðurklettamir, eða nálægt lokum síðasta jökulskeiðs (alls 6 goseiningar). Vissulega geta árþúsundir liðið á milli umbrotaskeiða en þau standa iðulega í áratugi eða aldir og gosin oftast allmörg meðan á hverju þeirra stendur. Annað einkennir eldstöðvakerfi. Smám saman hleðst upp stór eldstöð (geta verið fleiri en ein) á afmörkuðu svæði í kerfinu (oft nálægt miðju þess) þar sem gosin eru tíðust og fram- leiðnust. Hún kallast megineldstöð, sbr. Heklu í Heklukerfinu. Víða í kringum hana og utar í kerfinu opnast gosspmngur og minni eldstöðvar hlaðast upp, stakur gígur eða gígaröð í hverju gosi. Undir megineldstöð þróast einhvers konar kvikugeymir (kvikuhólf) sem kann að vera marg- slungið fyrirbæri. Um kvikumynd- unarsvæði eða kvikuhólf á 15-25 km dýpi undir Eyjum em vísbendingar nokkuð traustar. I megineldstöðinni koma jafnan fram fjölbreyttari bergtegundir en utan hennar, sk. þróað gosberg. Því veldur m.a. hlutkristöllun í kvikumassa undir eldfjallinu. Bendir margt til þess að megineldstöð í Vestmannaeyjakerfinu hlaðist upp á Heimaeyjarsvæðinu. Þar em mestar líkur á hæstu gostíðninni nú og síðar, miðað við gostíðni yfirleitt í eldstöðvakerfinu. Um 10 gos hafa orðið á Heimaey á 10.000- 14.000 ámm. Framleiðni gosstöðva þar er líka meiri en annars staðar í kerfinu. Hvað gerðist fyrir 5000 til 6000 árum? Á forsögulegum tíma varð öfiugt þeytigos sem hlóð upp stórri eyju (Sæfjall/Stakkabót) og tengdist hún þá eldri Stórhöfðamyndun. I söntu um- brotahrinu gaus síðan þar sem Helgafell er nú og er talið að gosið hafi staðið í allmarga mánuði en hraunrennslð tengdi Norðurkletta- myndunina við Sæfell og Stórhöfða. Á svipuðum tíma mynduðust m.a. Bjamarey og Elliðaey í gosum sem svipaði til Surtseyjargossins, sennilega

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.