Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 13

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 13
Fréttir / Fimmtudagur 3. júlí 2003 13 Stefán Bragason og Sigríður I. Krístmanns- dóttir skrifa: Okkar maður í Eyjum nokkru eftir Helgafellsgosið. Gera má ráð fyrir að nokkur eldgos hafi orðið í Vestmannaeyjakerfinu næstu árþús- undin þama á eftir en aldursgreiningar gosefna vantar og áreiðanlegar heim- ildir um neðansjávargos á sögulegum tíma, svo slá megi slíku föstu. Líklegast hefur þó ekkert þessara gosa verið það öflugt að gosmyndun standi eftir ofansjávar. Hvað gerðist 1963 og 1973? Kvikumyndun og jarðskorpuhreyf- ingar leiddu til þess að djúpstæð basaltkvika braust upp syðst í eldstöðvakerfmu 1963 til 1967. Þar gaus á hliðruðum sprungum og m.a. Surtsey reis úr sæ. Aðrar sprungur, eða ein spmnga full af kviku, teygðist lengra í skorpunni til norðausturs, án þess að kvika næði þar upp. Við köllum slíkt ganga eða gang, þ.e. langt, djúpt, plötu- og fleyglaga innskot af bráðnu bergi. Gangurinn frá Surtsey náði sennilega inn í undirlög Heimaeyjar þar sem aðrir heitir gangar voru fyrir eða jafnvel nokkur kvikumassi (hluti kvikuhólfs). Þama gengu þá yfir eðlisfræðileg og efnafræðileg ferli sem hófust við innskotið en enduðu (í bili) með því að nokkuð af þróaðri kviku, léttari en basaltið í ganginum, reis eftir spmngu og braust upp austantil á Heimaey, áratug eftir gangainnskotið af Surts- eyjarsvæðinu. Þessi mjög sennilega atburðarás fæst með túlkun gagna við rannsóknir á geislavirkum efnum í hrauni í Surtsey og á Heimaey. Enginn veit, ef þessi atburðarás er rétt, hvort uppmnalegi gangurinn frá 1963 hafi nú valdið öllu því „upp- námi“ sem hann getur í fmmburðinum af kvikuhólfi undir Heimaey og þar með hvort íleiri eldgos verða í kjölfar þess síðasta. Um kvikumyndun núna annars staðar í kerfmu er ekki vitað enda óhægt um vik fyrr en kvika tekur að þrýsta á yfirborð og mælanlegir þættir koma . Opnist ný gosspmnga sem framhald síðustu atburða, getur það gerst í sjó nálægt Heimaey eða hvar sem er á eyjunni sjálfri. Líklegra er að gossvæðið, í þessu samhengi, verði á eynni eða við hana fremur en langt utan hennar, einmitt vegna þess sem sagt var um þróun megineld- stöðva. Líkumar á að þetta gerist t.d. á þessari öld em vandmetnar og enn ekki gerlegt að setja fram raunhæft mat á nýju gosi með beinum tíma- mörkum. Það er einfaldlega hægt að segja: - Það getur gerst hvenær sem er (sjá kafla um vöktun), að svo komnu máli. Gangurinn frá 1963 getur þó verið „þrotinn að kröftum" og allt orðið með kyrmm kjömm a.m.k. öldum saman. En svo kann nýr kvikumassi úr djúp- unum, eins og gerðist 1963, auðvitað að koma til sögunnar hvar sem er í kerfmu. Líkumar em enn og aftur vandmetnar. Freistandi er að telja þær nokkm minni en líkur á gosi tengdu Surtseyjarganginum, án þess að ég geti farið nær um það. Einnig í þessu tilviki er komist næst með því að segja eins og áður: - Það getur gerst hvenær sem er. Um leið minni ég á að ekkert hefur komið fram undanfarin fáein ár við Vestmannaeyjar sem bendir til um- brota í aðsigi. Mikilvægt er að átta sig á þvf að uppkomustaður kviku, sem á annað borð stígur í spmngu, er óviss. Stundum stöðvast risið og gangurinn nær aldrei yfirborði en oft er stað- setning skjálftaupptaka ábending um hvar (ekki nákvæmlega þó) gos- spranga gæti opnast, ef staðsetning upptaka er nógu nákvæm. Að hverju er leitað með EFTIRVÖKTUN ELDSTÖÐVA? Margt þarf að skoða til að geta fygst með tiltekinni eldstöð eða eldstöðva- kerli. Rannsaka þarf fyrri gossögu og berggerðir, þróun þeirra, helst upp- takadýpi kviku og reyna að kynnast „karakter" og innviðum hins eldvirka svæðis. Utskýra þarf atburðarás þekktra gosa og aðdraganda þeirra. Setja þarf upp mælanet. Mælitækin em margs konar. Jarðskjálftamælar fylgjast með jarðhræringum en hluti þeirra stafar af kvikuhreyfíngum og geta jarðvísindamenn oftar en ekki þekkt þá frá öðmm skjálftum. Einnig þarf að skoða hvort og hvernig jarð- skjálftamynstur í hrinum breytist. Landhæðar (landhalla-)mælar vom notaðir til að fylgjast með jarðskorpu- hreyfingum. Með þeim má meta hvort land á eldvirku svæði bólgnar stað- bundið eða sígur en það bendir ýmist til nsandi eða kólnandi kviku. Nú orðið er stuðst við GPS-mælitæki og þá samfelldar athuganir sem unnið er jafnóðum úr. Einnig hefur gefist vel að bera saman ratsjármyndir úr gervitunglum með sérstakri tækni og finna þannig ummerki um jarðskorpu- hreyfingar (inSAR). Líka má hafa þenslumæla í borholum og fylgjast með útstreymi gastegunda úr iðmm jarðar. Og bestur árangur næst með því að nýta margs konar mælingar saman til túlkunar á því sem er að gerast. Tilgangurinn er að koma nógu snemma auga á grunsamlega atburði neðanjarðar og geta þá gert viðeigandi ráðstafanir, t.d. sett fólk í viðbragðs- stöðu, byrjað þrepaskipta flutninga á fólki og verðmætum, rýmt svæði o.s.frv. Þetta tókst ekki 1973 enda vom þá m.a. til reiðu skjálftamælar eingöngu (og of fáir) og vitneskja um eðli eldstöðva og skjálftategundir ekki mikil miðað við það sem varð með Kröflueldum og síðari tíma rann- sóknum. í Eyjum þættu tíðir og vaxandi skjálftar á norðaustlægum sprungum gmnsamlegir, sem og viss einkenni á bylgjunum sjálfum eða bylgju- mynstrinu, landlyfting í Heimaey (aðrir staðir í Eyjum ekki vaktaðir og í minni hættu) þætti óeðlileg og benti líklegast til kvikuriss. Þensla í borholu teldist til tíðinda; kannski aukið uppstreymi gastegunda og breytt rennsli gmnnvatns (sem er sjór) líka. Miðað við fyrri reynslu væri ef til vill unnt að sjá eldsumbrot fyrir með margra klukkustunda til nokkurra sólarhringa fyrirvara en ekkert er þó ömggt í þeim efnum, lengri eða styttri tími kæmi til greina. Og um fram annað þarf að þræða hárfma línu milli þess að gera óþarl'a veður út af ein- hverju og spá um raunvemlega hættu. Sú hætta getur liðið hjá og fólk sloppið með skrekkinn (gangur nær t.d. ekki yfrrborði). Verði gos skv. spá getur margt og mikið bjargast áður en það hefst og fólk sloppið um margt vel, sbr. síðustu atburði. Þar réði heppni og hagstæð atburðarás mestu um það sem gleðjast má yfir. Traustið á tækjunum og sérfræð- ingunum er mikið enda fáir sem standa íslendingum framar almennt í þessum efnum í heiminum. Meðal jarðfræðinga sem unnið hafa nýlega að jarðfræði Eyja eru Sveinn Jakobs- son, Olgeir Sigmarsson, Hannes Mattsson og Armann Höskuldsson svo nokkur nöfn séu nefnd. Aðrir koma einnig við sögu sem sérfræð- ingar þegar kemur að sjálfri vöktuninni. Það sem hér kemur fram er dregið saman úr margvíslegum heimildum. VÍST UM ÞAÐ Eldgos koma upp í Vestmanna- eyjakerfinu um langan aldur en enn er ekki vitað nú hvar og hvenær. Verði sprungugos á sjávarbotni nokkuð utan Heimaeyjar stafar hættan fyrir íbúanna fyrst og fremst af gjósku og kannski eldingum og hlýtur að teljast lítil eða í meðallagi og varðar þá helst eignatjón. Verði mun hættulegra spmngugos á Heimaey með hraunrennsli og gjóskumyndun, skiptir öllu máli hvar gosspmngan opnast, utan byggðar eða innan, og svo að sjálfsögðu hve vel hefur tekist til með spá og undirbúning fyrir hamfarimar. Gerist hvomgt næstu aldir emm við og næstu kynslóðir ánægðar með okkar hlut. Ef gos verður, tökumst við á við það og íbúamir þá í návígi, en við hin sem hluti af þjóðinni. Auk þessarar atburðarásar em aðrar mögu- legar og þá reyndar ólfldegri. Stórfellt gjóskugos getur komið upp við Heimaey (sbr. gíginn í Stakkabót) og sprengivirkt gos getur orðið á eynni með ísúrum eða súrum gosefnum og miklu afli í upphafi goss enda þótt það hafi ekki gerst í þeirri jarðsögu eyjanna sem við þekkjum. Með nokkuð jöfnu millibili þarf að skoða alla „kostina,“ meta þá og hættuna á þeim ef unnt er og fara yfir viðbragðaáætlanir sbr. það sem gert er á vegum Almannavama (nú Ríkislög- reglustjóraembættisins). Það verður að ræða við almenna íbúa ekki síður en ábyrðarmenn heima fyrir og kynna og jafnvel æfa reglulega það sem fólk þarf að vita og kunna. Óvíða, jafnvel hvergi á íslandi, þ.e. á byggðu bóli, er meiri áhættu að taka vegna eldgosavár en á Heimey, ef horft er til mjög langs tímabils. Áhættan er ekki metin svo mikil að enginn skuli búa í Eyjum. Hún er þvert á móti metin ásættanleg (að gefnum viðbúnaði og vöktun). I fram- haldi af matinu íhuga menn ávallt val sitt og haga búsetu eftir því. Eyja- skeggjar velja Heimaey, ég vel Reykjavík og koma þá alltaf aðrir þættir inn í valmyndina; aðrir en bara mat á áhættu vegna eldsumbrota eða annarra náttúmafla. Þannig að, þegar allt kemur til alls, segi ég satt þegar ég lýsi yfir löngun til að búa alls ekki í Vestmannaeyjum og íbúi í Eyjum lika þegar hann segist hvergi annars staðar vilja búa. Þannig er að búa á Islandi og auðvelt að finna annað fólk með sömu staðhæfingar sem býr til dæmis undir brattri fjalls- hlíð, við jaðar jökulhlaupasvæðis, niðri á sjávarbakka við sjóvamargarð eða stutt frá opinni jarðskjálfta- spmngu. Aðrir staðir eða landsvæði en Heimaey em í erfiðri stöðu þegar kemur að eldgosavánni einni saman. Eg nefni sem dæmi Hafnarfjörð (hraunrennsli), Grindavík (mjög skammt í gosspmngurein), Snæfells- bæ (nálægð við stórt, sprengivirkt eldfjall), Vík, Mýrdal, Skóga og Álftaver (nálægð við Kötlu) og Reykjahlíð við Mývatn (innan eldstöðvakerfis). Allt sem hér er sagt á í grunnatriðum við þar. Arí Trausti Guðmundsson jarðeðlisfrœðingur hefur kannað eldgosasögu Islands, stundað ritstörf (sjám.a. Islenskar eldstöðvar), urmið Jyrir útvarp og sjónvarp og m.a. verið ráðgjafi verkfrœðistofunnar Línuhönnunar í Reykjavík. Við undirrituð, flokkstjórar í Vinnu- skólanum í Vestmannaeyjum, viljum koma eftirfarandi á framfæri vegna forsíðugreinar sem birtist í DV þann 27. júní sl. Á Haugasvæðinu hefur verið unnið mjög gott starf við uppgræðslu á ógrónu svæði undanfarin þrjú ár. Þar höfum við sett gras, sem fellur til á opnum svæðum í Vestmannaeyjum, yfir vikur og strengt svo loðnunætur yfir það og fest með hælum. Þetta hefur gengið mjög vel og sést það best á þeim mikla árangri sem við höfum náð. Á þessum tíma hafa aldrei orðið slys á fólki né nokkur kvörtun komið fram um hættur á þessu svæði, enda höfum við sett krökkunum vinnu- reglur og séð til þess að þeim sé fylgt. Einnig viljum við benda á það að fólk er að fara með unga krakka fram á bjargbrún til að sleppa lundapysjum, og þykir það allt í lagi en þegar 16 ára unglingar em að vinna í námunda við bjargbrún þá þykir það forsíðufrétt í DV. Ef fólk er að hræðast jarðskjálfta eða náttúrahamfarir, þá er fólk í hættu hvar sem er á eyjunni, ekki bara þeir Aldís Atladóttir ætlar að helja veit- ingarekstur á Skansinum í stóm tjaldi og stefnir hún á að opna í dag, fimmtudag. Fyrir nokkm auglýsti menningar- málanefnd eftir tilboðum í rekstur á veitingatjaldi á Skansinum. Aldís bauð í reksturinn og hreppti hnossið. „Þetta er tilraun sem á að standa í einn mánuð,“ sagði Aldís. „Eg renni svo- lítið blint í sjóinn með þetta en ætlunin er að skapa ekta kaffihúsastemmn- Landnytjanefnd samþykkti á fundi sínum þann 5. júní sl. að mæla með því við bæinn að bæjarsjóður leggi fram girðingarefni og að landnotendur sjái um uppsetningu, viðhald verði í höndum bæjarins og tekið verði hóf- legt leigugjald fýrir afnot af landinu. Þessi tillaga nefndarinnar var svo tekin fyrir á fundi bæjarstjómar þar sem afgreiðslu á henni var frestað. Tillaga kom frá Amari Sigurmunds- syni á fundi bæjarráðs á mánudag að ekki verði ráðist í girðingakaup af sem em að vinna í vinnuskólanum, ef svo væri þá væmm við að vinna annars staðar. Við komum ekki í veg fyrir náttúruhamfarir og þess vegna eigum við ekki að hræða krakkana með einhverjum hræðsluáróðri. Einnig viljum við koma því á fram- færi að unglingamir vom ekki í fótbolta á bjargbrúninni, heldur voru þau nokkra tugi metra frá brúninni, þar sem engin hætta var á að þau gætu dottið fram af. Því hver heilvita maður sér að ekki er hægt að vera í fótbolta þar sent allt er l'ullt af nótum og hælum sem jafnvel standa upp úr vikrinum. Okkur, flokkstjómnum, sámar að þetta þurfi að enda í DV, því þetta kemur ekki bara illa út fyrir okkur í Vinnuskólanum heldur Vestmanna- eyjabæ í heild. Einnig finnst okkur leiðinlegt að „okkar maður í Eyjum“ sé að reyna að nota okkur sem vopn í stríði sínu gegn starfsmanni garð- yrkjudeildar. Fh. flokkstjóra í Vinnuskólanum Stefán Bragason Sigríður I. Kristmannsd. ingu. Ég ætla að bjóða upp á kaffi, gosdrykki, ís og ljölbreytt úrval af bakkelsi. Draumurinn er að vera með uppákomur um helgar, það á eftir að útfæra það nánar og ég á eftir að ræða þetta nánar við menningarmálanefnd.“ Aldís segir dýrt að koma kaffi- húsinu á koppinn þó bærinn leggi til tjaldið. „En alls staðar hef ég fengið írábærar viðtökur þannig að ég er bara bjartsýn," sagði hún að endingu. hálfu bæjarsjóðs vegna þeirra aðila sem stunda búfjárhald í Vestmanna- eyjum. „Það er eðlilegt að bútjáreigendur greiði þennan kostnað sjálfir eins og verið hefur. Jafnframt beinir bæjarráð því til landnytjanefndar að fallið verði frá fyrri hugmyndum um innheimtu sérstaks hausagjalds af fjölda sauðtjár hjá þeim sem stunda sauðljárbúskap í Vestmannaeyjum í frístundum sín- um.“ Bæjarráð vísaði tillögunni til landnytjanefndar. Með nokkuð jöfnu millibili þarf að skoða alla „kostina,“ meta þá og hættuna á þeim ef unnt er og fara yfir viðbragðaáætlanir sbr. það sem gert er á vegum Almannavama (nú Ríkislögreglustjóraembættisins). Það verður að ræða við almenna íbúa ekki síður en ábyrðarmenn heima fyrir og kynna og jafnvel æfa reglulega það sem fólk þarf að vita og kunna. ALDÍS, sem hér er nieð börnum sínum, er tilbúin í slaginn. Veitingar á Skansinum Landnytjanefnd undir í bæjarráði

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.