Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Page 15
Fréttir/ Fimmtudagur 3. júlf 2003
15
Viktor segist fullur tillilökkunar yfir
komandi goslokahelgi. „Þetta verður
svaka fjör og ég er á því að við séunt
að gera rétt með því að gera þetta
svona myndarlega. Sjáðu hverju þetta
er að skila okkur, íbúafjöldinn mun
tvöfaldast yftr helgina og það á eftir að
skila bæjarfélaginu drjúgum skild-
ingi.“
SÉ EKKl NÚTÍMAMANNINN
LEGGJA Á SIG ÞESSA VINNU
„Eg man þetta eins og gerst hafi í
gær,“ sagði Magnús Steindórsson
kaupmaður í Axel Ó í kaldhæðnistón
þegar hann var beðinn um að rifja upp
minningar um uppvaxtarárin í Eyjum
sagðist hann ekkert muna og skildi
ekki hvemig fólk gat rifjað upp atvik
frá því þau vom smáböm. Magnús sat
ásamt æskufélaga sínum, Haraldi
Bergvinssyni sjómanni, á kaffistof-
unni í Axel Ó. „Eg veit að ég fór til
Þorlákshafnar á Stíganda VE en pabbi
var þar skipstjóri," sagði Haraldur en
Magnús sagðist ekkert vita um
hvemig hann komst til lands þessa
nótt.
Fjölskylda Haralds fór til Grinda-
víkur þar sem þau bjuggu næsta árið.
„Eg er nú enginn Grindvíkingur í mér
þrátt fyrir að hafa búið þama um
skamma hríð, við fluttum affur til Eyja
1974“
Haraldur hélt áfram og sagðist
ekkert muna neitt sérstaklega eftir
mikilli umræðu um gosið á æsku-
ámnum. „Eg held að það eina sem
gerðist var að ártölin breyttust, nú var
alltaf talað um fyrir og eftir gos.“
Magnús tók undir þessi orð Haralds
og sagði að fólk hafi yfir höfuð lítið
talað um þetta. „Það vom náttúrulega
sumir sem vildu ekki snúa heim aftur,
það var til dæmis fullt af mínu skyld-
fólki sem kom ekki heim aftur, þau
settust að í Garðinum.“
Þeir sögðust hvomgur hafa leitt
hugann að einhverri sérstakri hættu
við það að búa hér. „Ég hef nú engar
sérstakar áhyggjur, þetta er óvirk eld-
stöð og sjáðu til dæmis Selfoss núna,
það er ömgglega ekkert svakalega
spennandi að búa þar vitandi af
skjálftahættunni," sagði Magnús og
vom orð Ara Trausta Guðmundssonar
jarðfræðings í þáttum Stöðvar 2, Ég
lifi, rifjuð upp en þar sagðist hann
aldrei vilja búa í Vestmannaeyjum
sökunt hættu á öðm eldgosi.
„Þetta var bara hans mat en ekkert
til að hafa áhyggjur af," sagði Har-
aldur og bætti við að aðrir fræðingar
hafi nú komist að annarri niðurstöðu.
Þeir vom sammála um að þættirnir á
Stöð 2 hefðu kveikt áhuga bamanna á
eldgosinu. „Eldri peyinn hjá mér
spurði mikið eftir þættina. Hann beið
spenntur eftir að þættimir væm sýndir
hjá ömmu sinni og afa og þau gátu að
sjálfsögðu sagt honum mildu meira en
ég,“ sagði Haraldur en Magnús sagði
að það eina sem þættirnir hafi gert
væri að hræða bömin.
Þegar talið barst að sögunni og
mikilvægi ferðaþjónustu í Vest-
mannaeyjum sagði Magnús að það
hlyti að vera erfitt að selja þrjátíu ára
gamalt gos. „Það gekk kannski vel á
meðan hraunið var heitt en nú þarf að
selja eitthvað annað. Það gæti þó ræst
úr ef gosminjasafn verður að vem-
leika."
Haraldur var sammála félaga sínum
en sagði að margar aðrar hugmyndir
hafi komið fram sem vert væri að
skoða. „Mér fannst til dæmis hug-
myndin hans Stjána Óskars góð, að
mála ljósastaurana eftir því hversu hátt
vikurinn náði.“
Þeir sögðust fullir tilhlökkunar um
það sem koma skal um helgina. „Þetta
er bara gott mál og tilvalin leið til að
létta lífið hjá bæjarbúum," sagði
Haraldur og Magnús bætti við að þetta
væri góð upphitun fyrir þjóðhátíðina.
„Þetta er bara markaðssetning á
innlendum ferðamönnunt og mér
skilst að hún hafi gengið vel upp.“
Magnús sagði að ef eldgos myndi
heljast í Eyjum í dag myndi líklega
Andrés Sigurvinsson lofar góðri goslokaslokaskemmtun:
þegar Eyjamenn taka sig
saman þá stoppar okkur ekkert
ANDRÉS: -Markvisst hefur verið unnið að því að koma hátíðinni í
fjöhniðla.
öðmvísi verða tekið á því.
„Ég sé ekki nútímamanninn leggja
á sig þessa vinnu sem menn gerðu
1973, ég held að menn myndu bara
pakka saman og leita sér að vinnu
annars staðar. Það eru ekki til staðar
þessir sömu dugnaðarforkar og þá
voru.“ Haraldur tók undir þetta og
sagði að líklegast myndi eyjan
leggjast í eyði ef aðrar eins náttúm-
hamfarir gengju yfir Vestmanna-
eyjar.“
Beið eftir gosi í heilt ár,
1983
Selma Ragnarsdóttir, fatahönnuður og
bæjarfulltrúi, var tæplega hálfs árs og
bjó ásamt foreldrum sínum, Ragnari
Sigurjónssyni, betur þekktum sem
Ragga Sjonna og Margréti Jóhanns-
dóttur, á Búastaðabrautinni. Þau fluttu
á Brávallagötuna í Reykjavík gosárið
og bjuggu þar í tæpt ár en þá lá leiðin
aftur heim til Eyja. Selma sagði að
helstu minningar sínar frá æsku-
ámnum hafi verið slides-mynda-
sýningar en Ragnar faðir hennar tók
ógrynni af myndum í gosinu. „Myndir
frá honum og afa Didda voru þar í
aðalhlutverkum ásamt sögum í
kringum þær. Annars hafði ég nú
mestar áhyggjur af því hvað hefði
komið fyrir dýrin, þegar ég var lítil."
Selma sagðist einnig muna vel eftir
árinu 1983. „Þá beið ég og ein
vinkona mín í heilt ár eftir að það
myndi byrja að gjósa aftur. Okkur
fannst það svo eðlilegt þar sem
Surtseyjargosið var 1963 og Heima-
eyjargosið 1973,“ sagði Selma og
bætti við að á þessum tíma hafi hún
fundið fyrir vissri hræðslu og það sé í
eina skiptið sem hana rámar í það að
vera smeyk út vegna goss. „Það var
samt aldrei nein raunvemleg
hræðsla." Selma sagðist að sumu leyti
hafa orðið hissa vegna umræðunnar í
janúar þegar þrjátíu ár voru liðin frá
upphafi gossins. „í rauninni var aldrei
svo ntikið talað um þessa atburði og
það sem gekk á. Til dæmis mót-
tökumar upp á landi, Noregsfarana og
fleira en eftir þessa stórgóðu þætti á
Stöð 2 þá opnaðist umræðan og fólk
fór að ræða þetta meira." Selma
sagðist ekki líta á það sem ókost að
búa á svæði þar sem gosið hefur og
vel gæti gosið aftur. „Ég lít ekki svo á,
frekar lít ég á möguleikana sem hægt
er að nýta sér í kringum þetta. Margir
atburðir hafa verið tengdir gosinu á
einn eða anna hátt, sýningar hafa verið
haldnar og myndir teknar. Það er til
dæmis rosalega gaman að fara með
útlendinga upp á hraun þar sem ennþá
er heitt á sumum stöðum og segja
þeim söguna. Þetta er svo merkilegt í
þeirra augum og ég held að við áttum
okkur ekki alveg á því hversu
merkilegan viðburð er um að ræða,“
sagði hún og bætti við að hún hafi
kynnst þessu svo vel þegar hún stóð
fyrir tískusýningunni Midnight
Fashion Show á Skanssvæðinu árið
2001. „Þá fann ég hversu mikla
söluvöru við emm með og mér finnst
við ekki hafa nýtt okkur það nógu vel
undanfarin ár.“ Selma vill sjá
gosminjasafn og það raunvemleika-
tengt. „Við höfum allt til staðar hér og
því miður held ég að markaðs-
setningin hafi ekki virkað sem skyldi.
Þetta er héma en fólk þarf að vita
það.“ Selma á fimm ára son, Óskar,
og sagði hún að hann hafi fengið
mikinn áhuga á gosinu í janúar. „Þá
spurði hann mikið og var ímyndun-
araflið á fullu hjá honum. Eins hefur
hann hefur verið mjög spenntur að
skoða myndir frá þessum tíma.“
Selma sagðist hlakka mikið til
helgarinnar enda væri dagskráin
stórglæsileg og hún telur alls ekki of
mikið gert úr þessum viðburði.
svenni@eyjafrettir. is
„Er ekki borið í bakkafullan lækinn að
tala við mig enn og aftur,“ sagði
Andrés Sigurvinsson sem hefur verið
starfsmaður goslokanefndar síðustu
vikumar. Nóg hefur verið að gera hjá
honum að púsla saman dagskrá
hátíðarinnar. Hann sagði að nú sæi
fyrir endann á þessari vinnu og nú
tekur hver og einn hópur að vinna sitt
sér og öðmm til ágægju. „Þetta er búið
að ganga ótrúlega vel og það hefur
verið mjög gaman að taka þátt í
þessu," sagði hann og bætti við að
mottóið hafi verið að gefa öllum
tækifæri sem vildu vera með. „Við
ætlum að halda eitt allshetjar kamival
í lofti, landi og legi. Við höfum hvatt
fólk til að lúra ekki á hugmyndum,
sem dæmi þá vom núna á síðustu
stundu að bætast tveir listamenn við,
annar hefur nú sýnt áður, Addi í
London ætlar að vera með ljós-
myndasýningu í einni af krónum í
Skvísusundi, og verða það aðallega
ljósmyndir frá 25 ára gosloka-
afmælinu. Eins ætlar Þórður Svans-
son, sem mér vitanlega hefur ekki sýnt
opinberlega áður, að vera með sýn-
ingu á tréskúlptúrum sem hann hefur
verið að vinna að undanfarið." Andrés
sagðist hafa hvatt hann eindregið til að
vera með og bætti við að fólk myndi
ekki verða fýrir vonbrigðum, enda em
verkin fanta góð og góðar hugmyndir
sem liggja að baki þeim. „Þetta kom
nú svo seint að við vorum í vand-
ræðum með húsnæði í bænum en við
leystum það og verður hún í nýjasta
gallerýinu í bænum, í gallerýi Heilags
Andrésar 2. en þar var áður Búrið til
húsa.“ Sýning Þórðar ber heitið
„Forsjónin.“
Andrés sagði að þrátt fyrir þétta
dagskrá ættu allir að geta tekið þátt í
atburðunum. „Goslokanefndin og ég
reyndum eins og við gátum að láta
Fyrir bæjarráði á mánudag lá íyrir bréf
heilbrigðisráðuneytisins til Bjöms
Jóhannssonar þar sem ráðuneytið
hafnar umsókn hans um nýtt
lyfsöluleyfi í Vestmannaeyjum.
Bæjarráð harmar niðurstöðu ráðherra
og hvetur hann til að endumpptaka
málið og veita umbeðið leyfi.
„Hagsmunir Vestmannaeyinga,
hvað varðar lyfsölu í bænum, felast í
tryggum aðgangi að lyfjum, góðri
þjónustu og góðu verði. Umrædd
umsókn, hefði hún verið samþykkt,
hefði leitt til jress að starfandi yrðu tvö
apótek í Vestmannaeyjum. Tvö
apótek ættu að tryggja öryggi við
afhendingu lyfja, samkeppni í verði og
bætta þjónustu. Það er kjami þess sem
Vestmannaeyingar vilja.“
Ennfremur segir að þegar málið
kom til untsagnar bæjarstjómar Vest-
mannaeyja hafi ekki legið ljóst fyrir
hvort niðurstaðan yrði sú að nýtt
apótek keypti það sem fyrir var eða
opnaði nýja verslun. Nú liggur það
fyrir að Lyf og heilsa ætlaði sér að
opna nýja verslun. Meirihluti bæjar-
ráðs bendir á tvennt í röksemdafærslu
ráðuneytisins sem þeir Stefán Jónas-
son og Andrés Sigmundsson segja að
varla sé hægt að taka alvarlega. í
fyrsta lagi sú röksemd að ekki sé
tryggt að tvö apótek veiti betri
atburði sem minnst stangast á en
hátíðin stendur yfir í fjóra daga og ef
menn skipuleggja sig þá ættu þeir ekki
að missa af neinu." Hann var mjög
ánægður með viðtökurnar sem
nefndin hefur fengið hjá bæjarbúum
og segir þetta nákvæmlega eins og
fyrir fimm ámm þegar allir vom
tilbúnir að leggjast á eitt um að gera
hátíðina sem glæsilegasta. „Ég er
mjög ánægður að frítt er inn á alla
auglýsta dagskrárliði og allir hafa
verið tilbúnir að gefa sína vinnu.“
Hann bætti við að gríðarlegt álag hafi
verið á starfsmönnum bæjarins
undanfarið og beri að þakka þeim fyrir
frábært starf. „Það er í raun mjög
merkilegt að það skuli vera hægt að
koma svona veigamiklu prógrammi
saman á ekki lengri tíma en það tekst
þegar allir leggjast á eitt og slíðra
sverðin."
Ekki má gleyma yngstu kynslóðinni
sem mun taka þátt af fullum krafti að
sögn Andrésar enda er þetta hugsuð
sem fjölskylduskemmtun fyrst og
þjónustu en eitt og hins vegar að
dregið sé í efa að í 4500 manna
byggðarlagi sé rekstrargrundvöllur
fyrir tveimur apótekum.
„Spumingin sem vaknar í kjölfarið
er fyrst og fremst sú hvort yfirvöld
heilbrigðismála hafi tekið upp þá
stefnu að skipta mörkuðum lyfsala á
landsbyggðinni þannig að aðeins einn
lyfsali fái einokun á tilteknu svæði. Ef
niðurstaða ráðuneytisins er fordæmi er
ljóst að íbúar byggða, þar sem færri en
4500 íbúar búa, fá ekki notið sam-
keppni í rekstri apóteka í framtíðinni.
Þetta gerir íbúa landsbyggðarinnar að
annars flokks þegnum. Við það er
ekki hægt að una. Enn fremur vakna
spumingar um hvað ráðherra hyggist
gera á þeim svæðum þar sem fleiri
apótek em nú þegar en að tryggt sé að
a.m.k. 4500 íbúar séu að baki hverju
og einu. Þetta á t.d. við á Suðurlandi.
Mun þessi úrskurður leiða til þess að
einhverjum apótekum þar verði lokað
þar sem svæðið uppfyllir ekki kröfur
um fjölda íbúa? Éf ekki, er þá verið
að mismuna íbúum landsins. Einnig
vakna spumingar um það hvort það sé
hlutverk heilbrigðisráðhena að meta
hvort rekstrargmndvöllur sé fyrir
verslanireðaekki. Svo telur bæjarráð
ekki vera. Hlutverk ráðuneytisins á
fyrst og fremst að vera það að tryggja
fremst. „Leikskólamir hafa verið mjög
jákvæðir gagnvart þessu eins og alltaf
og taka þátt á fullu og lögð er áhersla
á að hafa sem fjölbreyttasta dagskrá
fyrir þau yngstu."
Markvisst hefur verið unnið að því
að koma hátíðinni í fjölmiðla og
kynna Eyjarnar, útvarpsstöðvar hafa
verið rneð beinar útsendingar úr
Eyjum, ísland í býtið á Stöð 2 var
heimsólt og vonaði hann að einhverjir
verði frá þeim í Kastljósi fyrir
hátíðina. „í þessu felst mín vinna.“ Ég
vil þakka öllum sem hafa aðstoðað
mig að koma þessu saman. Hann
sagðist finna fyrir gömlum og góðum
Eyjamóral í bænum. „í rauninni þekki
ég Eyjamar ekki öðmvísi og hef verið
gríðarlega ánægður með okkur, sumir
verða alltaf að vera með smá tuð, nagg
og pirring og það er bara skemmtilegt.
Það hefur verið byggður upp sameig-
inlegur mórall í bænum og þegar
Eyjamenn taka sig saman þá stoppar
okkur ekkert.“
aðgang og öryggi íbúa að fá notið
þjónustu apóteka. Það er því nauð-
synlegt að ráðherra endurskoði
ákvörðun sína með tilliti til þess að
röksemdafærsla hans fyrir höfnuninni
fær ekki staðist. Vestmannaeyjabær
er tilbúinn til að taka upp viðræður við
ráðherra um málið ef eftir því yrði
leitað."
Amar Sigurmundsson bókaði þá og
sagði að bæjarstjórn Vestmannaeyja
hefði nú sent ráðherra heilbrigðismála
umsögn sína varðandi umsókn um
fjölgun lyfsöluleyfa í Eyjum. „Málið
hefur því verið afgreitt í bæjarstjórn
með formlegum hætti. Þar sem
meirihluti bæjarfulltrúa treysd sér ekki
til að mæla með umsókninni til
ráðherra og með hliðsjón af rök-
semdum sem fram koma í bréfi
heilbrigðisráðuneytis ætti niðurstaða
þess ekki að koma á óvart.“
Andrés og Stefán bókuðu þá aftur
þar sem fram kom að þeir telji eðlilegt
að meirihluti bæjarfulltrúa treysti sér
ekki til að leggjast gegn umsókn um
nýtt lyfsöluleyfi í Eyjum.
„Tveir bæjarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins lögðust hins vegargegn nýju
lyfsöluleyfi, einn sat hjá. Við vísum til
bókunar hér að framan og hvetjum til
þess að ákvörðun um að hafna nýju
lyfsöluleyfi verði endurskoðuð."
Ráðuneytið vill ekki
annað apótek í Eyjum
-Meirihlutinn krefst þess að það endurskoði afstöðu sína