Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Page 25

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Page 25
Fréttir / Fimmtudagur 3. júlí 2003 25 ✓ Olafur Már Sigurðsson, stoltur Eyjamaður: Eitt skemmtilegasta mótið Brottfluttir Eyjamenn nýta oftar en ekki tækifærið sem gefst til þess að koma til Eyja þegar ungviðið fer á Shellmót. Arið í ár var engin undantekning og hittum við Ólaf Sigurðsson sem var með tvo syni sína á mótinu en þeir leika með Gróttu. Hvemigfinnst þér svo Shellmótið hafa verið? „Það hefur auðvitað fyrir löngu sannað sig sem eitt skemmtilegasta mót sinnar tegundar á landinu. Það hefur allt staðist héma, allar tíma- setningar og í raun er maður bara stoltur af því að vera Eyjamaður þegar svona vel tekst til. Okkur Gróttu- mönnum hefur gengið ágætlega, við erum með efnilega flokka en reynslan frá svona móti vegur þungt í knatt- spymuppeldinu því hér læra strákamir bæði að vinna og tapa." Ertu ífararstjóm eða komstu á eigin vegum? „Eg er hér á eigin vegum en fylgi liðinu um allt. Eg ætlaði reyndar að koma með fellihýsi og vera í Dalnum en svo var okkur boðið húsaskjól og við höfum verið þar í góðu yfirlæti. Það var kannski ágætt þvf það rigndi svo mikið á laugardag þannig að það hefur ekki verið mjög spennandi að vera í tjaldi þá.“ Hvað heldurðu að standi upp úr hjá strákunum eftir svona mót? „Eg held að það sé gleðin sem fylgir því að taka þátt í svona móti í ÓLAFUR Már með drengina, íjóra daga. Tilhlökkunin spannar heilt ár og væntingamar em auðvitað miklar þegar komið er á mótsstað. Þannig að það verður kannski spennu- fall hjá strákunum en dagskráin er svo vel útfærð að hvert augnablik er nýtt til skemmtunar. Ég á eftir að koma hingað næstu tvö ár, því yngri strákurinn minn verður hérna næstu tvö árin og það er ekki bara tilhlökkun hjá strákunum að koma aftur.“ Urslit og lokatölur skipta ekki máli -segir Jóhann Framari og vallarstjóri Laugardalsvallar JÓHANN er ánægður með mótið. Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, var á Shellmótinu í ár en hann var að fylgja sínu félagi, Fram. Við hittum Jóhann þegar hann var að fylgjast með sínum mönnum á sunnudeginum og var ekki annað að heyra en að hann væri mjög ánægður með vem sína í Eyjum. „Þetta er í þriðja sinn sem ég kem á mótið. Ég var héma fyrir um tólf ámm með gutta sem nú er 22 ára þannig að ég hef ágæta reynslu af mótinu. Þetta er búið að vera mjög fínt héma. Urslitin og lokatölur eru ekki það sem skiptir máli í svona móti, heldur það að allir séu samstilltir og að allir hafi gaman af.“ Hvemig finnst þér mótið hafa gengið fyrir sig? „Þetta er eins og eftir bók- inni. Tímasetningar hafa staðist og áætlanir. Það er í raun ekkert hægt að hafa þetta betra því reynslan er svo mikil í herbúðum Eyjamanna að ef eitthvað fer úrskeiðis er bmgðist við.“ Hvað með strákana, hvemig hafa þeir látið afdvölinni? „Þeireru bara alveg í skýjunum. Þetta er auðvitað alltaf þannig að þeir sem eru eldri og hafa komið áður, segja þeim yngri frá því og smita áhuganum út frá sér. Það er hins vegar mín reynsla af mótinu að þátttakan er yfirleitt mun betri en allt annað." Strákarnir ánægðir -segir Auður Valsari sem var að koma á sitt fyrsta mót AUÐUR með strákana sína. Ein mamman var að huga að sínum leikmanni, var að reima skóna á hann. Þama vom á ferð Valsmenn og áttu þeir að spila gegn FH. Auður Friðriksdóttir var að koma á sitt fyrsta mót enda var sonur hennar á íyrsta ári í sjötta flokki. Ertu á eigin vegum eða kemurðu sem fararstjóri? „Ég er með liðinu, kem hingað sem fararstjóri." Hvemig er svo reynslan af þínu af fyrsta Shellmóti? „Þetta er bara mjög skemmtilegt, dagskráin er mjög þétt fyrir strákana en fyrir vikið er mikið álag á þeim sem sjá um liðin. En það er kannski bara eins gott að dagskráin sé þétt því ef strákamir hefðu mikinn frítíma þá væm þeir að flækjast út um alla Eyju og við hlaupandi á eftir þeim. Skipulagið er líka mjög gott og allt hefur gengið eftir og þjónustan verið til fyrirmyndar." Hvemig hefur Valsmönnum gengið? „Þeim hefur gengið ágætlega, þeir em um miðjan hópinn og em sjálfir ánægðir og það er auðvitað það sem skiptir mestu í þessu.“ Betra að spila á blautu grasi -segir Pressuliðsmaðurinn og ÍBV-arinn Guðni Freyr Sigurðsson Á hverju Shellmóti em valin Landslið og Pressulið mótsins og þykir það að sjálfsögðu mikil upphefð að vera valinn í annað hvort liðið. Leikur milli þessara liða fer svo fram í grillveislunni og þykirekki lítið merkilegt að spila landsleik fyrir fram- an tvö þúsund manns og í leikslok er strákunum fagnað sem hetjum meðal félaga sinna. I ár var ungur og efnilegur Eyjapeyi í Pressuliðinu, hann var einnig í liði mótsins. Þetta var Guðni Freyr Sig- urðsson og við tókum hann tali eftir mótið. Hvaða stöðu spilarðu? „Ég spila frammi." Hvað er uppálialdsliðið þitt í enska boltanum? „Manchester United, ekki spuming." Mótið degi of langt -segir Unnar frá Keflavík í brekkunni rákumst við líka á nokkra Keflvíkinga sem voru að fylgjast með sínu liði leika gegn Þór frá Akureyri. Einn þeirra, Unnar Stefánsson, sagði að Keflvíkingum hefði ekki gengið eins vel og vænt- ingar stóðu til. „C-liðinu gekk reyndar vel framan af og öðru D-liðinu okkar líka en önnur lið fannst mér vera að spila undir getu.“ Ertu að koma á þitt fyrsta mót? , Já, þetta er fyrsta mótið hjá mér og það er ekki annað hægt en að dást að allri skipulagningunni. Mér finnst reynd- ar mótið vera degi of langt en það er kannski bara vegna þess að það rigndi á laugardaginn og þegar svo er eru dagarnir alltaf lengri. Þá vill maður bara koma sér heim. En við erum með um áttatíu manna hóp samtals, um fjörutíu leikmenn og ég held að allir séu mjög sáttir.“ En Itverjir eru uppáhaldsleikmenn- irnirþínir? „Fyrir utan Einar bróður? Það eru Beckham og Zidane, þeir em góðir.“ Hvernig gekk ÍBV í Shellmótinu? „Ekki alveg nógu vel. I fyrra náði ég öðru sæti með C-liðinu en núna var ég í A-liðinu og okkur gekk ekki eins vel. Það er bara miklu erfiðara að spila í A en í C.“ Hvað stendur upp úr eftir mótið? „Það er að sjálfsögðu að hafa spilað lands- leikinn, það var rosalega gaman.“ Hvað með veðrið, var ekkert erfitt að spila í rigningu á laugardaginn? „Nei, kannski ekkert erfitt, bara ekki eins gaman. Mér finnst betra að spila á blautu grasi en það er betra ef það er ekki rigning." Býrðu í tjaldbúðunum eða ertu á gistiheimili? „Við erum nokkur saman sem leigðum hús á meðan við emm héma. Og ég vil bara endilega benda fólki á að auglýsa húsin sín héma ef þau em tóm. Ég veit að það er mikill áhugi fyrir slíku hjá þeim sem koma hingað þessa helgi og ég veit að ég hyggst endurtaka leikinn á næsta ári.“

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.