Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Side 26
26
Fréttir / Fimmtudagur 3.jiílí2003
„Sjáið tindinn! Þarna fór ég.“
Göngugarpar bæjarins hafa verið
duglegir að sækja námskeið undir
yfirskriftinni, Fimm tindar, í umsjá
Friðbjörns Valtýssonar og Visku.
Góður hópur hélt á Helgafell og Klif
en með hverjum tindi bætast fleiri við,
timmtán héldu á Blátind og tuttugu
og þrír gengu á Heimaklett.
Gangan á Blátind hófst undir Skip-
hellum og haldið til vesturs í átt að
Hánni. Létt ganga til að byrja með en
þá tóku við brekkumar í átt að Molda
og satt að segja tóku þær dálítið í.
Margir voru fegnir þegar komið var
upp á móts við flaggstöngina sem er
efst við bjargbrúnina og gott að setjast
niður og kasta mæðinni. Útsýnið yfir
bæinn hreint frábært.
Því næst var gengið til norðurs eftir
bjargbrúninni niður á Eggjar en svo
nefnist leiðin vestur eftir Dalfjalli.
Hægt er að fara þangað eftir tveimur
leiðum, önnur liggur nær Molda og
sneiðir meðfram blágrýtishamri en
Friðbjöm sagði mikið hrun hafa verið
þar haustið 2001 og leiðin því var-
hugaverð. Nyrðri leiðin niður á
Eggjamar varð því fyrir valinu og
þegar þangað var komið blasti
Herjólfsdalur við til suðurs en mjög
bratt er niður norðan megin. Útsýnið
yfirEyjasunderfallegt, Ufsaberg er
sérkennilegt klettabelti til norðurs,
þverhnípt í sjó og austan við bergið
em Eysteinsvík og Æðarsandur, falleg
sandfjara.
hefur fyrir ömefnanámskeiðum að
undanfömu, var með í förinni. Lýstu
þeir staðháttum og sögðu sögur en
gangan hófst við rústir gamla
bátaskýlisins upp klappimar en þar
hefur verið komið fyrir tréþrepum og
bandi sem handfestu.
Leiðin liggur upp eftir Neðri Kleif-
um, svokölluðum, að stiga sem
staðsettur er inni undir 6 til 7 metra há-
um kletti en þegar komið er ofarlega í
stigann sést papakrossinn. Rétt ofan
við stigann er fjárrétt tómstundabænda
og áfram hélt hópurinn um Efri
Kleifar og áfram austur framhjá lunda-
veiðistað sem nefndur er Krist-
jánssæti. Hamrabeltið, sem rís upp af
þessum stað heitir Hetta en þangað var
í fyrstu sótt grjót í Hörgeyrargarð.
Þegar komið er upp á Hettu er greið
leið upp Klettinn.
Norðan undan er Dufþekja, bratt-
lendi niður undir sjó en jarðvegur er
mjög laus á þessu svæði og enginn
ætti að hætta sér þangað. Efsti hluti
Heimakletts heitir Háukollar, þar er
hæsti punktur Eyjanna en Heima-
klettur er 283 metrar. Norðan
Háukolla eru Háukollahamrar, þar
hrynur úr hömrunum með jöfnu
millibili niður Dufþekju og út í sjó.
Að þessu sinni var útsýni af Háu-
kollum ekki eins og best verður kosin
en þokubakki lagðist yfir rétt áður en
göngufólk náði toppnum. Enginn lét
Á Blátindi, Vera Björk nýtur öruggrar leiðsagnar Friðbjörns á leiðinni af Blátindi
Aíram var haldið í att að Blatindi, k • sp
upp bratla brekku þar til komið var að
urð sem er talsvert laus í sér og þekkt ■:v
ljóð Tómasar Guðmundssonar,
Fjallganga, riljaðist upp í hugum r .«•■ *'»»»* • 1
göngufólksins. „Urð og grjót./ Upp í
mót./ Ekkert nema urð og grjót..." If
Blátindur er 273 metrar og allir
snertu fánastöngina enda talsvert afrek ■:
að ná á tindinn eftir langa og stanga
göngu. Frábærl útsýni er af tindinum,
sérstaklega til suðurs og í austur yfír
Heimaey. Friðbjörn leiddi hópinn
niður frá Blátindi til suðurs niður í
Hvfld, þar er grösug brekka í suður
frá tindinum, en Halldórsskora liggur
þar niðuraf. Haldið var til norðurs
um svokallaðar Tíkartær yftr Kapla-
gjótu en leiðin er mjög brött. Ekki var
laust við að hjartað tæki aukaslag í
brjóstum sumra göngumanna og
enginn ætti að fara þessa leið án
fylgdar kunnugra. Göngumenn voru
þeim mun stoltari þegar komið var
niður enda „... eiginlega er ekkert
bratt,/ aðeins mismunandi flatt.“
Hkimakleitur
Eins og fyrr segir bættust fleiri í hóp-
inn þegar gengið var á Heimaklett
undir dyggri leiðsögn Friðbjöms
Valtýssonar og ekki skemmdi fyrir að
Olafur Týr Guðjónsson, sem staðið
FRIÐBJÖRN og Gylfi á leiðinni upp á Blátind en þaðan er frábært útsýni,
ekki síst til suðurs yfir Heimaey.
það þó á sig fá enda leiðin upp mjög
skemmtileg.
I góðu veðri er frábært útsýni af
toppnum og m.a. má sjá Eyjafjalla-
jökul, Heklu, Þríhyrning og blóm-
legar sveitir Landeyja. Útsýni til
suðurs er ekki síðra, kaupstaðurinn
kúrir í skjóli norðurklettanna og
eldstöðvanna á austurhluta eyjarinnar.
Þegar horft er til úteyja suður undan
má sjá hvemig eldgígamir standa í röð
eins og risastór kertastjaki.
Leiðin niður aftur gekk vel fyrir sig
undir dyggri leiðsögn Friðbjörns
Göngufólkið var þakklátt og ánægt og
vonandi fá fleiri að njóta leiðsagnar
Friðbjöms í gönguferðum um okkar
fögm eyju. Þá er þetta gott innlegg í
ferðaþjónustu en gönguferðir er
skipulagðar víða um land og ekkert til
fyrirstöðu að fólk komi hingað í slíkar
ferðir í framtíðinni.
Þeir sem voru með í þessari ferð
geta með sanni sagt. „... Sjáið tindinn!
Þama fórég....“
gudbjorg @ eyjafrettir. is
JÓNINA, Ingibjörg, Oddný og Þórhallur sem var öldungurinn í hópnum,
72 ára. Fyrir framan eru Harpa, Bergþóra og Kristín.
ÞAU gengu á Hcimaklett. Aftari riið f.v. Ólafur Týr, Harpa, Þórhallur, Halla, Ingibjörg,
Guðbjörg, Vera Björk, Minna, Gylfi, Kristín, Ragnhildur og Jonna. Fremri röð, Friðbjörn,
Bergþóra, Bergur, Erna, Nína, Þuríður, Jónína, Öddný, Stefán og Tómas.
HÓPURINN sem gekk á Blátind, Halla, Bergþóra, Þórhallur, Erna, Kristín, Friðbjörn, Gylfi,
Jónína, Ingibjörg, Nína, Harpa, Vera Björk, Oddný og Stefán.