Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 30

Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2003, Blaðsíða 30
30 Fréttir / Fimmtudagur 3. júlí 2003 Landa- KIRKJA Fimmtudagur 3. júlí Kl. 10.00. Mömmumorgunn /for- eldramorgunn. Samvemstund for- eldra með bömum sínum, kaffi og spjall. Sunnudagur 6. júlí Kl. 11.00. Göngumessa sem hefst í Landakirkju kl. 11.00. Þaðan verður gengið austur að krossinum í gíg Eldfells með viðkomu í Kirkjugarði Vestmannaeyja. í garðinum verður beðið fyrir minningu látinna. Hjá krossinum við Eldfell verður guðspjallið lesið og útlagt. Frá krossi verður gengið áfram ofan að Stafkirkjunni við Hringskersgarð þar sem messu- lokin verða sungin. Kór Landakirkju syngur og leiðir söng undir stjóm Guð- mundar H. Guðjónssonar, organ- ista. Leikið verður á orgel og flautur og blásið í lúðra. Sóknarnefnd Ofanleitissóknar býður kirkjufólkinu upp á súpu og brauð að lokinni messu á lóð Stafkirkjunnar. Rútuferð verður frá Landa- kirkju, upp að krossi og niður að Stafkirkju fyrir þá sem vilja taka þátt en sleppa sjálfri göngunni. Fólk er hvatt til að taka virkan þátt í söngnum og gæta þess að klæða sig eftir veðri. Sr. Krístján Bjömsson. Fimmtudagur 10. júlí Kl. 10.00. Mömmu-eða foreldra- morgunn verður í Safnaðar- heimilinu. Samvemstund og kaffi- spjall foreldanna og leikjastund fyrir bömin. Hvítasunnu- KIRKJAN GOSLOKAHELGIN Alda Bjömsdóttir verður með málverkasýningu í kirkjunni frá fimmtudegi til sunnudags. Allir em velkomnir að líta inn. Sunnudaguró. júlí Kl. 11.00 SAMKOMA „Guð er oss hæli og styrkur, ömgg hjálp í nauðum." Sálm 46:2. Við þökkum Guði hans miklu miskunn og blessun í gosinu. Hann er sannarlega þess verður að við syngjum nafni hans lof og dýrð. Allir hjartanlega velkomnir. Aðventkirkjan Laugardagur 5. júlí. Kl. 10.30 Biblíurannskókn. Biblían talar sími 481-1585 Golf: Hattamótið Hressó hressir hressilesa upp á kvennasolfið Hið árlega Hatta- og kjólamót í golli var haldið á sunnudag. Þetta er kvennamót þar sem konur mæta uppáklæddar til leiks, rétt eins og var til siðs á öndverðri síðustu öld en þær konur sem stunduðu íþróttina voru íklæddar síðum pilsum og með hatta. Að þessu sinni tóku 20 konur þátt í mótinu og léku níu holur í punktakeppni þar sem aðalatriðið var að vera með og hafa skemmtun af en aukaatriði hversu mörg höggin voru. Magnúsína AgúsLsdóttir var með Ilesta punkta, 19 talsins og hlaut verðlaun fyrir það. Hclga Guðjónsdóttir stóð sig best af nýliðum, með 14 punkta og var verðlaunuð fyrir. Miðbær gaf bæði þau verðlaun. Ástríður Fríðsteinsdóttir hlaut sérstök verðlaun fyrir mikla cljusemi við æfingar fyrir mótið. En allar þær sem þátt tóku í mótinu fcngu viðurkenningar og þær ekki af lakari endanum. Snyrtistofan Aníta gaf öllum þátttakendum kynningarbox með kremi og Steingrímur gullsmiður gaf öllum Majoricaperlu. Og síðast en ekki síst voru það þær systur í líkamsræktarstöðinni Hressó seni voru stórtækar en þær gáfu öllum þátttakendum hálfsmánaðar aðgangskort að Hressó. Það voru þær Hrefna Sighvatsdóttir og Katrín Magnúsdóttir sem sáu um mótið að þessu sinni og hlutu mikið lof fyrir góða frammistöðu. Á efri myndinni eru flestar þær sem þátt tóku í Hatta- og kjólamótinu en á neðri mynd- inni er „bjartasta vonin“ Helga Guðjónsdóttir ásamt stjórn- endum keppninnar að þessu sinni, þeim Katrínu og Hrefnu. ATAKSHÓPURINN hennar Regínu á Hressó hélt upp á áfanga á ferlinuni fyrir skömmu með óvissuferð þar sem m.a. var komið við í Páskahelli sem er í Nýjahrauninu austur af Eldfelli. Þar tók gítaristinn snjalli, Kiddi Valgeirs, á móti þeim og sló nokkra hljóma og söng. Fjörið var mikið eins og sjá má enda hressar konur í fór sem höfðu losað sig við fjölda kílóa í fitu en bætt það upp með vöðvum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.