Frúin - 01.02.1963, Blaðsíða 23
Dagleg notkun fegrunarmjólk-
ur styrkir húðina, gerir hana
bjarta og mjúka og viðheldur
blóma œskunnar.
Framleiddar eru fjórar tegundir af
fegrunarmjólk úr eftirtöldum ávöxt-
' Hj
** •■Jf * >jm?
1 OR banönum
APPELSÍNUM
MÖNDLUM
AGORKUSAFA
jjFegrunarmjólk er búin
til eftir sérstakri forskrift CORYSE SALOMÉ í París.
valhöll
LAUGAVEGI 25
II hœð sími 2 21 38
Eggjahvítugríma.
Takið eggjahvítu og þeytið vel.
Þeytið að síðustu nokkra dropa af sít-
rónusafa saman við. Berið eggja-
hvítufroðuna síðan á andlitið, en at-
hugið, að þessi gríma á aðeins við
um sterka húð. Látið froðuna storkna
á andliti yðar og bíðið í fáeinar mín-
útur. Þvoið yður síðan með volgu
vatni. Hörundið verður hressilegra
og stinnara af áhrifum eggjahvítunn-
ar og sítrónusafans.
Hrukkur.
Nú skuluð þér leggja til atlögu við
hrukkurnar. Takið eggjarauðuna og
hrærið í hana 8—16 dropum af olífu-
olíu og tveim til þrem dropum af
sítrónusafa. Leggið áður volga
bakstra, (bómull vætta í volgri olíu
eða vatni) við þá staði sem lagfæra
á en það eru aðallega hrukkur við
augu, munn og enni. Berið nú eggja-
rauðuhræruna á þessa staði og er
bezt að nota pensil við það. Bíðið nú
í kortér og þvoið allt burtu með
volgu vatni. Árangurinn kemur strax
í ljós, vegna þess, að í eggjarauðunni
er mikið af uppbyggingarefnum er
hafa furðanleg áhrif í þá átt að slétta
húðina.
Húðormar.
Þér getið unnið á húðormunum
með þessari aðferð: Dálítið ger er
hrært út í súrri mjólk, unz úr er
Framh. á bls. 50.
SNYRTING ★ HÁRGREIÐSLA ★ SNYRTIVÖRUVEZRLUN
23