Frúin - 01.02.1963, Blaðsíða 41
mitt að sjá hana þarna á nýgreiddum
viðskiptavini. Einnig kvað hún slétt
hár í tízku.
Hólmfríður kom beint frá skólan-
um til starfa hér og kvaðst hyggja
gott til vinnunnar við þau skilyrði
sem Valhöll hefur upp á að bjóða.
Aðspurð um hár á íslenzku kven-
fólki, kvað hún það hryggja sig, hve
hár íslenzkra kvenna væri oft illa
farið, brunnið af permenenti, brot-
ið af litun og næringarsnautt. Við
spurðum hana hvað hægt væri að
gera til þess að halda fallegu hári og
eðlilegum hárvexti og kvað hún hafa
mikið að segja höfuðnudd og geislun.
Hún sagði að sér þætti hár íslenzkra
kvenna yfirleitt mjög fallegt og með-
I
siiyrtingu
okkur frá því að í skólanum hefði
verið lögð mikil áherzla á fram-
komu stúlknanna gagnvart viðskipta-
vinunum og fengu þær sérstaka til-
sögn í því bæði bóklega og verklega.
Má með sanni segja að Hólmfríður
sé góður fulltrúi skóla síns hvað
þessu atriði viðkemur. Þá kvað hún
einnig hafa verið lagða áherzlu á
það, að taka tillit til persónuleika
hvers viðskiptavinar, varðandi hár-
greiðslu og þeim gefinn kostur á að
sjá hvaða hárgreiðsla ætti bezt við,
og var það gert með því að bursta
hárið og laga til, áður en aðalhár-
greiðslan hófst. Með þessu móti er
hægt að gefa viðskiptavininum kost
á að velja á milli og finna hvað bezt
á við. Hún kvað mest í tízku núna,
svoköllaða „tveggja hæða“ greiðslu
og vorum við svo heppnar að fá ein-
Gftir snyrtingu
færilegt, en það þyrfti að fá rétta
meðferð til þess að njóta sín.
Um leið og við fórum skoðuðum
við verzlunina en þar eru svo marg-
ar tegundir fegurðar- og snyrtimeð-
ala að ekki er hægt upp að telja.
Okkur var einnig skýrt frá því, að
með vorinu myndi verzlunin hafa á
boðstólum stenkvötn og ilmvötn á
skikkanlegu verði og það þóttu okk-
ur góð tíðindi.
Fyrirtækið hefur aðeins haft tvær
kynningar á starfsemi sinni, þá sem
nefnd var í upphafi, og aðra fyrir
stúlkur á vegum æskulýðsráðs Kópa-
vogs. Vonandi að þær verði sem flest-
ar í náinni framtíð. — M. Th.
Látið ykkur ekki detta í hug, að
þessi grein sé grín, síður en svo.
Hún birtist í tímaritinu This Week
Magazine, og reyndist vera bláköld
alvara. Sá sem skrifar greinina með
þessari dæmalausu fyrirsögn, er for-
stjóri byggingafélags í Bandaríkjun-
um, Hal B. Hayes, og á sjálfur hug-
myndina. Fyrsta húsið er þegar full-
smíðað, og stendur í Kaliforníu. Þetta
er ljómandi fallegt einbýlishús, vegg-
ir, loft og gólf er eingöngu úr gömlum
dagblöðum. Blöðin eru límd saman
með plastvökva. Því er haldið
fram, að svona hús sé betur einangr-
að en hús úr steini, eða timbri, og
þoli veðráttu á við önnur hús. Húsið
kostar sem svarar tæpum 220.000 kr.
ísl. Ef til vill er hægt að hafa húsið
ódýrara, ef maður safnar sjálfur
blöðunum. En það útheimtir að sjálf-
sögðu töluvert húsrými. Til hússins
þurfti átta tonn af dagblöðum!
Húsið er ein stór dagstofa, tvö
svefnherbergi, eldhús og baðherbergi.
FRÚIN
41