Frúin - 01.02.1963, Blaðsíða 50
VEKÐLAIHVAGETRAUN
10.000 KRÓNA TEPPI EFTIR EIGIN VALI.
Aðeins fyrir áskrifendur.
»■ ....
Hér er annar þáttur getraunar „Frúarinnar“. Verðlaunin eru teppi
frá verksmiðjunni Axminster að verðmæti kr. 10.000. Getraunin er
eins og áður, að finna hluti sem vantar á efri myndina, en eru
með á þeirri neðri. Getraxmin birtist í 1., 2. og 3. tbl. „Frúarinn“
og ber að senda lausnir fyrir mánaðarmót marz—apríl.
Athugið. Lausnir á krossgátunni í 5. og 6. tbl. 1. árg. verða birtar
í næsta blaði.
Líkamsrækt
Framhald af bls. 23.
orðið deig, sem hægt er að rjóða á
sig. Dreifið deiginu jafnt á andlitið
en einkum þar sem húðormar eru.
Eftir kortér fer gríman a stirðna.
Leggið þá fingurgómana að vöng-
unum og losið um grímuna með
sterkum hringhreyfingum. Hörund
yðar er þá orðið hreint og þér legg-
ið á það heitan bakstur og síðan
kaldan og að lokum þurrkið þér and-
litið. Að endingu er borið á húðina
nærandi krem. Öll þessi aðferð hef-
ur tekið yður 40 mínútur, og nú ætt-
uð þér að liggja fyrir stundarkorn.
„Lyfting“.
Þegar konan er á aldrinum 40—50
ára, fara andlitsdrættirnir venjulega
að verða slapandi og þreytulegir.
Þetta kemur þó ekki að sök, að því
er margar konur snertir, því þær eld-
ast fallega. En sumar konur verða að
fylgjast vel með útliti sínu hvað
þetta varðar. Það hefur orðið margri
konu áfall, að uppgötva allt í einu
að þær eru orðnar gamlar.
Þegar svona stendur á, hefur and-
litslyftingin svokallaða oft verið
framkvæmd og tekist vel. Hún hef-
ur jafnvel í mörgum tilfellum kom-
ið miðaldra konum til að blómgast á
nýjan leik.
Þessi aðgerð er framkvæmd alveg
við hársvörðinn, en af því leiðir að
ör verður ekki sjáanlegt á eftir.
Venjulega er fjarlægður % hlutar
hins lausa hörunds og er árangurinn
til mikilla bóta. Þrátt fyrir þetta
varðveitir andlitið hið eðlilega útlit
sitt og svipbrigði taka engum breyt-
ingum. Fyrsta daginn eftir slíka að-
gerð er um miklar umbúðir að ræða
en eftir því sem á líður er þeim fækk-
að. Eftir 7 daga eru allar umbúðir
teknar burtu. Áhrif þessarar aðgerð-
ar eiga að endast í 10 ár.
Góð snyrting.
Gætið þess, að nota aldrei of mik-
ið af snyrtiefnum, — það er að segja,
að misnota snyrtinguna. Með því
gerið þér aðeins ungt andlit gamalt
eða breytið andliti í skripamynd.
Berið aldrei of þykkt á yður. Hafið
hugfast, að þér ætlið aðeins að fegra
hörund yðar og að menn eiga að fá
að sjá það eftir sem áður. Hið lif-
andi hörund á ekki að hljóta annað
með snyrtingunni en ljómandi, frísk-
legan blæ.
50
FRÚIN