Frúin - 01.02.1963, Blaðsíða 32
Hrærið smjörið í lítilli skál, síð-
an ostinn og eggjarauðuna, (kryddið
létt með papriku). Ostadeig er gott
sem fylling í allskonar smákökur.
Smurt brauð með ostasmjöri.
Hvítt, mjúkt brauð, smjör, osta-
smjör, hreðkur, gulrætur, tómatar,
soðnar rækjur.
Búið til ostasmjörið. Smyrjið
brauðið þunnt með venjulegu smjöri.
Sprautið ostasmjörinu í toppa eða
rendur á hverja sneið. Skreytið með
hreðkum, eða gulrótarsneiðum.
Ostabrauð skreytt með agúrkum.
Ristað ostabrauð.
8 sneiðar hvítt, mjúkt brauð, 2
msk. smjör, 50 g sterkur rifinn ost-
ur, 1 eggjahvíta.
Hafið sneiðarnar heilar, kringlótt-
Notið ostinn þótt hann harðni.
ar, ferkantaðar eða þríkantaðar.
Blandið saman ostinum og smjörinu,
þeytið eggjahvítuna og hrærið sam-
an við.
Þekið sneiðarnar og látið á plötu,
helzt með smjörpappír og bakið
sneiðarnar gulbrúnar í heitum ofni.
Leggið á fat með tertupappír, bréf-
þurrku og framreiðið strax með súpu
Ristað ostabrauð með sinnepi.
8 sn. hvítt, mjúkt brauð, 8 sn.
schweizerost eða mjúkan ost, 2 msk.
smjör, 1/1 msk. franskt sinnep, (8
valhnetuk j arnar).
Blandið sinnepinu saman við
smjörið og smyrjið brauðið. Þekið
sneiðina með osti og leggið hnetu-
kjarna í miðjuna. Leggið sneiðarn-
ar á plötu með smjörpappír og rist-
ið í ofni.
Og að síðustu:
Ostakaka.
4 1 mjólk, 2 msk. hveiti, 2 tsk. osta-
hleypir.
í eggjasósu: 2 egg, 3 dl rjómi, 3
msk. strausykur, 15 sætar möndlur.
í formið: smjör.
Hellið mjólkinni í skaftpott með
þykkum botni. Hitið mjólkina fing-
urheita (37°). Setjið hveitið í mjólk-
ina og þeytið á meðan og látið hleyp-
irinn í. Hrærið í hægt fram og aftur
með trésleif. Látið lok á skaftpott-
inn þegar mjólkin byrjar að ysta og
látið skaftpottinn standa í vægum
ofnhita svo að mysan renni alveg úr
ostinum. Setjið ostinn í smurt form.
Þeytið saman egg, sykur og flysjað-
ar saxaðar möndlur og hellið blönd-
unni yfir ostinn. Stingið hér og þar
í ostinn svo að eggjablandan renni
inn í hann. Bakið síðan kökuna í
45—60 mín. eða þar til hún er stíf
og hefur fengið Ijósbrúnan lit. Fram-
reiðið ostakökuna með strausykri og
kanel eða sultutaui.
★
Sníðanámskeiðin eru
í fullum gangi
Innritun í
verzluninni
P F A F F
Skólavörðustíg 1
32
FRÖIN