Frúin - 01.02.1963, Blaðsíða 31
Bræðið smjörlíkið, hrærið hveitið
út í og þynnið með soðinu. Soðnum
makkarónum og rifna ostinum bætt
út í. Hrærið eggjarauðuna með salti
og rjóma og hrærið saman við súp-
una. Borið fram strax.
Ostasósa.
1 msk. smjör, 2 msk. hveiti, 4 dl
mjólk (má blanda með rjóma) salt,
hvítur pipar, strásykur, 1 msk. smjör,
75 g rifinn ostur.
Bræðið smjörið í potti með þykk-
um botni og hrærið hveitið saman
við. Þeytið í nokkrar mínútur. Tak-
ið pottinn af hitanum og bætið mjólk
smátt og smátt í. Setjið pottinn aft-
ur á plötuna og bætið því sem eftir
er af mjólkinni hægt í og hrærið vel.
Látið sjóða á milli þess að þér bætið
í og hrærið vel.
Látið sósuna sjóða hægt í 10 mín.
og hrærið í en ekki of oft eða mikið
því þá verður hún seig. Kryddið sós-
una eftir smekk og takið pottinn af
hitanum og setjið smjörið í. Hrærið
ostinum í með gafli. Gætið þess að
sjóða ekki sósuna og hræra ekki of
mikið, því að þá verður hún beisk
og seig.
Þessi sósa er sérstaklega góð sem
gratinsósa með fiski, grænmeti og
eggjum. Ef sósan á að notast með
fiski er gott að hafa helming rjóma
og helming fisksoð í staðinn fyrir
mjólk.
Ostasmjör.
3 msk. smjör, 100 g þurr rifinn
ostur (paprika, 2 msk. rjómi).
Hrærið smjörið í lítilli skál þar til
það er orðið mjúkt, setjið ostinn sam-
an við og hrærið vel. (Kryddið með
papriku og bætið rjóma í ef smjör-
ið verður of þykkt).
Ostakex.
Deigið: 100 g smjör, y2 msk. strau-
sykur, % msk. hrært egg, 300 g
hveiti.
Ostasmjör: 2 msk. smjör, 60 g rif-
inn ostur (paprika).
Setjið hveitið í pýramída á borðið,
gerið djúpa holu í og látið smjörið
og sykurinn ofan í. Saxið það síðan
með hníf og hnoðið deigið á venju-
legan hátt. Fletjið deigið, formið
kökurnar og bakið þær síðan ljós-
brúnar á létt smurðri plötu í meðal
ofnhita. Látiið þær kólna.
Smyrjið ostasmjörinu á aðra hverja
kexköku. Látið gjarnan þunnar
hreðkusneiðar eða gulrótarsneið sem
blóm á miðja kökuna. Borið fram
með súpu eða — skreyttar með
hreðkum — kokteil.
Ostadeig.
iy2 msk. smjör, 2 msk. rifinn ost-
ur, 1 eggjarauða, (paprika).
Hafið ost á morgunverðarborðinu.
skorin í lengjur og bacon ferningun-
um blandað saman við og sett í
kryddlög úr olíu og ediki. Pipar og
salt eftir smekk. Holið tómatana og
fyllið þá með salatinu. Mjög ljúffeng-
ur smáréttur.
Bakaðir tómatar með osti.
250 g rifinn ostur, iy2 dl rjómi eða
mjólk, 1 egg.
Skerið lok ofan af tómötum og
holið þá innan. Hrærið ostinum,
rjómanum og egginu saman og fyllið
tómatana, setjið lokið á og bakið þá
síðan í eldföstu móti í heitum ofni
ca. 10 mín.
Ostasúpa.
2 1 kjöt- fisk eða grænmetissoð, 40
g smjörlíki, 40 g hveiti, 40 g makk-
arrónur, 1—2 eggjarauður, 50 g rif-
inn ostur, salt, rjómi.
g§
FR0IN
31