Harmoníkan - 01.05.1987, Qupperneq 3
HARMONÍKAN
GEFIÐ UT AF
TILSTUÐLAN S.Í.H.U.
Útgefendur og áb.menn:
Hilmar Hjartarson Ásbúð 17,
Garðabæ, sími 91-656385
Þorsteinn Þorsteinsson Torfu-
felli 17,111 R.vík, sími 91-71673
Blaðið kemur út þrisvar á ári.
í október, endaðan febrúar og í end-
aðan maí.
Forsíðumynd helguð landsmóti á
Akureyri 1987.
1/1 síða kr. 6000
1/2 síða kr. 4000
1/4 síða kr. 2.500
1/8 síðakr. 1.500
Smáauglýsingar (1,5 dálksenti-
metri) kr. 500 + kr. 100 fyrir hvern
auka dálksentimetra.
PRENTTÆKNI
Hilmar Hjartarson.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Kæri lesandi!
Þetta er 3. og jafnframt síðasta
tölublaðið í þessum árgangi, og í
haust tökum við til að nýju.
Þá munum við senda öllum
áskrifendum blaðið í þeirri von,
að þeir hafi áfram ánægju af því
sem við höfum uppá að bjóða.
Nú gildir það með okkur, eins
og alla aðra, að enginn gerir svo
öllum líki. Þessvegna viljum við
hvetja þig til að senda okkur línu,
ef þér finnst eitthvað í blaðinu
sem betur mætti fara, eitthvað
sem vantar eða einhverju sem er
ofaukið.
Þó svo, að útgáfan á blaðinu
hafi staðist að mestu þær vonir
sem við bundum við það í upp-
hafi, þá megum við ekki fyllast
ofmetnaði, heldur reyna stefna
að því að gera blaðið sífellt betra
og áhugaverðara.
En hvernig við eigum að fara
að því, getum við ekki sagt okkur
sjálfir nema að takmörkuðu leyti.
Ábendingar frá lesendum eru að
okkar mati, besta aðferðin til að
leiðbeina okkur á þeirri braut.
Auglýsingar sem birst hafa í
blaðinu hafa líka verið okkur góð
lyftistöng. Þó svo að mörgum
finnist þær frekar til ama, þá er
staðreyndin sú, að ekkert íslenskt
tímarit kemst af án þess að nýta
sér þær til tekjuöflunar. Mismun-
ur á að auglýsa í dagblaði og tíma-
riti felst í því, að dagblaðið nær jú
til fleiri lesenda, en því er hent eft-
ir daginn, en tímaritið er látið
duga lengur og oft á tíðum er það
safngripur hjá mörgum. Því vilj-
um við benda þér á, að ef þú hefur
eitthvað að auglýsa, að notfæra
þér blaðið, og um leið, styrkja
okkur í starfi.
Nú fer að líða að landsmótinu,
sem verður á Akureyri í sumar.
Það liggur mikil vinna í undir-
búningi fyrir slíkt mót, og er þar
búið að vinna af miklum dugn-
aði. Viljum við hvetja alla þá,
sem á annað borð hafa ánægju af
harmoníkunni að koma til móts,
án tillits til þess, hvort þeir ætla
að koma fram og spila eða ekki.
Þetta á að vera og er, hápunktur-
inn á þeirri starfsemi sem félögin
innan S.Í.H.U. sinna, og eins
annarra sem unna harmoníkunni.
Getum við búist við, að þarna
komi allflestir ef ekki allir bestu
harmoníkuleikarar landsins. Þú
þarft ekki að vera í neinu félagi til
að sækja mótið, því það er öllum
opið sem þangað vilja koma.
Nú til félagshópanna í landinu.
Við höfum kappkostað að hafa
nöfn harmoníkufélaganna rétt,
og einnig nafn, heimilisfang og
símanúmer viðkomandi for-
manns. Nú geta slæðst inn villur
hjá okkur og ekki er víst að sami
aðili skipi áfram embætti for-
manns. Ef þú getur leiðrétt okkur
á þessu sviði, þá vinsamlegast
gerðu það sem fyrst, ekki bíða
eftir að einhver annar geri það.
Við hittumst svo á landsmótinu
í sumar, við verðum að sjálfsögðu
á staðnum, bæði til að fylgjast
með og gleðjast með öðrum.
En þangað til.
Gleðilegt Harmonikusumar.
3