Harmoníkan - 01.05.1987, Side 21
MOLAR
Böskspelarnas Dragspelsklubb er
fyrirbæri sem hefur verið stofnað af
harmoníkuleikurum sem hafa kynnst
á harmoníkumótum aðallega á móti
sem haldið er í Ransáter í Svíþjóð. Á
slíkum mótum hittast menn héðan og
þaðan og spila saman. Þeir hafa
stofnað áðurnefnd samtök, og eru fé-
lagar aðallega frá Svíþjóð og Noregi.
Á mótinu í Ranséter hafa þeir eigið
svæði til umráða eingöngu fyrir fé-
lagsmenn. Ekki er okkur kunnugt um
hvaða skilyrði þarf að uppfylla til að
verða félagsmaður, en ef einhver hef-
ur áhuga, þá getur sá sami snúið sér til
Harmoníkunnar til að fá nánari upp-
lýsingar. (Or Trekkspill Nyti)
Harmoníkufélag Héraðsbúa hefur
í tvö ár í röð haldið dansleiki til fjár-
öflunar starfsemi sinnar. Hafa dans-
leikirnir verið haldnir í september og
í báðum tilfellum hefur Harmoníku-
félag Þingeyinga sótt þá heim og tekið
þátt í samkomunni með þeim. Við
höfum hlerað, að það standi til að
halda þessu áfram og slá upp balli í
september í haust með enn meira fjöri
en áður. Ef einhver á góðar myndir
frá þessum samkomum, þætti okkur
fengur í því að fá þær lánaðar í blað-
ið, en að sjálfsögðu skilum við mynd-
unum aftur til eiganda eftir notkun.
21