Harmoníkan - 28.02.1993, Síða 4

Harmoníkan - 28.02.1993, Síða 4
= Accord > = Bandon crcT (Melod) 2 CTQ c = Harmon ^ = Organ ^ H* • C/5 r-K B = Master = = Musette = Violin = Obo = Clarinett NÝR TÍMI - NÝR STAÐUR Oft var gaman ífyrra í Galtalœkjarskógi þráttjyrir rysjótt veður. Nœst verðum við á nýjum stað og nýjum tíma þ.e.a.s. um verslunarmannahelgina. Nýr staður Eins og allir lesendur Harmoníkunn- ar vita höfum við staðið fyrir harm- oníkumóti í Galtalækjarskógi undanfar- in ár. Vinsældir mótsins hafa aukist með hverju ári og það ávallt farið vel fram enda hafa mótsgestir sýnt það með góðri framkomu og snyrtilegri umgengni. Þrátt fyrir það hafa eigendur Galtalækjarskógar, sem eru bindindis- menn, sífellt kvartað ranglega undan mikilli áfengisnotkun mótsgesta og krafið okkur um áfengisbann á mótinu. Einnig hafa þeir talað um að ganga eftir slíku banni þó til þess hafí ekki komið vegna mótmæla okkar því við höfum á- vallt haldið því fram að aðrir gestir í skóginum væru sökudólgarnir, ekki harmoníkuunnendur því við höfum alltaf beðið okkar gesti að fara hóflega með vínföng því markmiðið er að skemmta sér með harmoníkur og góðu fólki á virðingarverðan hátt. Við teljum öll boð og bönn af hinu verra og höfum sem betur fer, ekki haft neina ástæðu til að setja einhverjar reglur þegar tilmæli duga. Vegna þessarar togstreitu höfum við sífellt haft augu og eyru opin fyrir nýj- um stað sem væri hentugur og nú er svo komið að við teljum okkur hafa fundið hann. Staður þessi er að mörgu leyti heppilegri en Galtalækjarskógur því mun styttra er að nálgast vörur og þjónustu ef eitthvað hefur gleymst heima. Um er að ræða skógi vaxið svæði á skjólsælum stað sem við kom- um til með að hafa algjörlega út af fyrir okkur. Þar sem ekki er endanlega búið að fá loforð fyrir staðnum viljum við ekki greina frá staðsetningu hans fyrr en í næsta blaði, en líkumar em 99.9% ömggar á að fá staðinn. Nýr tími Venjulega hafa mótin í Galtalækjar- skógi verið haldin í endaðan júní eða byrjun júlí. Þau ár sem haldin hafa ver- ið landsmót S.Í.H.U. sem venjulega hefur verið seinasta helgi í júní höfum við haft okkar mót um hálfum mánuði seinna. Þar sem ákveðið var að halda landsmótið fyrstu helgi í júlí setti það okkur í vanda því það er einmitt sá tími sem við höfum oftast verið í Galtalækj- arskógi. En þar sem við verðum á nýj- um stað er einnig gott að taka upp nýja tímasetningu. Því höfum við ákveðið að halda mótið um verslunarmanna- helgina það er 30. júlí til 2. ágúst n.k. Það er von okkar að þetta verði harmoníkuunnendum til gleði og á- nægju því um leið bætist einn dagur við sem við, getum verið saman í góðum hóp. En nánar um þetta allt í næsta blaði. Þ.Þ. 4

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.