Harmoníkan - 28.02.1993, Page 12

Harmoníkan - 28.02.1993, Page 12
Benpnsson er höfundur ljóðs og lagsins „Þannig leið nóttin“. Jóhannes hef- ur áður liðsinnt okkur við blaðið t.d. samdi hann texta við fyrsta lag- ið sem við birtum á nótum í blað- inu, einnig samdi hann textann Drauminn um Elínu, lag Carl Jular- bos og eins hefur hann handskrifað nótur fyrir okkur af nokkrum lög- um. Hann er landskunnur hagyrð- ingur og auk þess samið fjölda laga ýmist danslög eða söngslög og hef- ur þá oft útsett lögin sjálfur. Við þökkum Jóhannesi fyrir veittan stuðning og vonum að lesendur njóti lagsins. (Sjá nánar um Jóhann- es í 1. tölublaði Harmoníkunnar). Þ.Þ. Þannig leið nóttin í sveitinni heima var samkomuhús er svipmót hins umliðna bar en karlamir gættu þá barna og bús og birtust ei daglega þar. En ætti að dans kom ólga í blóð á öllum sást brosið á vör en Dóri með nikkuna stálsleginn stóð og stórkostlegt úthald og fjör. í klæðunum beztu menn komu á fund með kjammana rakaða vel með hálsbindið rauða var Halli á Grund og hattinn bar Valdi á Mel. Og menn störðu hrifnir á meyjanna val þær minntu á rísandi sól. í sægrænu pilsi var Svana í Dal og Sigga í heiðbláum kjól. Og þannig leið nóttin og bros var á brá unz bjarmaði af degi á ný þótt einstaka par gengi örlítið frá var enginn að hneykslast á því. Og Dóri hann spilaði, lundin var létt og lífsgleðin réði um sinn. í hringiðu dansgólfsins haldið var þétt, en hallaðist vangi að kinn En fallið er húsið er forðum þar stóð og farið á gleymskunnar veg. Þær stúlkur sem áttu þá æskunnar glóð, þær eldast, já rétt eins og ég. Mig dreymir þó stundum í daganna gný um Dóra og nikkuna hans, og óskað að væri ég ungur á ný og aftur ég stigi þar dans. Jóhannes Benjamínsson Tormod „Lillebror“ Vassaasen sá hinn sami og kom til íslands ásamt Sigmund Dehli, og Knut Ivar Böe sem er þekktur fyrir að leika í Jularbo- stfl, hafa ákveðið að vinna saman. Er hugmyndin að vera með fjölbreytta dagskrá með allskonar harmoníkutónlist; suðræna, suðurameríska, kúrekatónlist jafnframt norskri og norrænni tón- list. I bígerð er að nota ýmsar gerðir af harmoník- um til að ná fram réttum hljóðum og eins verða með þeim bæði bassa- og gítarleikari. Þ.Þ. „Blómlegt tónlistarlíf á Þórshöfn“ var fyrir- sögn í Morgunblaðinu 9. nóvember s.l. Greininni fylgdi mynd af 6 manna hljómsveit og þar af voru 3 harmoníkuleikarar sem heita Kristján Sig- fússon, Oli Þorsteinsson og Óttar Einarsson. Það vakti athygli að á mynd (svart/hvítri), sem fylgdi greininni voru harmoníkumar allar hvítar. Þessir ágætu menn ætla að spila á samkomum þar eystra ásamt bassaleikara, gítarleikara og trommara. Þ.Þ. 12

x

Harmoníkan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.