Harmoníkan - 28.02.1993, Blaðsíða 5

Harmoníkan - 28.02.1993, Blaðsíða 5
Oft þurftu harmoníkuleikararnir að ganga langan veg á skemmtistað. Teikning: Ólafur Th Ólafsson. Ein- og tvöfalda harmoníkan Hlekkur í íslenskri tónlistarsögu Að sögn fróðra manna eru ekki til mikil skrif eða heimildir um ein- og tvöföldu harmoníkuna (- díatónisku harmoníkuna) á ís- landi utan stöku slitrur í einstaka ævi- sögu og það sem komið hefur fram að þessu í blaðinu Harmoníkan. Ugglaust má gefa sér þá staðreynd að saga þessa hljóðfæris hafi markað djúp spor í ís- lenskt tónmannlíf og sé ótvírætt einn ó- útmáanlegur hlekkur íslenskrar tónlist- arsögu, og ber að vera getið þar. Hljóð- færi þessi voru bæði lítil og létt og því auðvelt að ferðast með þau langar vegalengdir og urðu geysi vinsæl sem undirleikshljóðfæri á samkomum fyrri tíma. Eg ætla að taka svo stórt upp í mig að segja að saga díatónisku harm- oníkunnar sé líklega stórkostlegt ævin- týri. Oftar en ekki þurftu harmoníku- leikaramir að ganga klukkutímum sam- an yfir fjöll og um firði, ferðast á hest- baki fyrir úfin björg eða sjóleiðis með harmoníkuna í poka, oft í vályndum veðrum til að verða gleðigjafi meðal sveitunga á góðri stund. Harmoníkuleikararnir voru sjálf- menntaðir og straumanir komu víða að. Þekkingaröflunin var frá manni til manns, tónlistin var ýmis lög er trölluð voru fyrir munni sér, leikdansar ýmsir og síðar í auknum mæli gömlu dans- arnir sem komu með erlendum sjó- mönnum og með mönnum er komu frá námi erlendis. Dæmi eru um að menn hafi lært hluta úr lagi, samið til viðbót- ar kafla svo dansinn hefði næg lengd. Enginn varð landsfrægur nema þá í sínu heimahéraði. Oftast var spilarinn einn og lék fram í birtingu en fáheyrt að greitt væri fyrir. Þetta voru ódýr hljóðfæri sem oftast fengust hjá sjó- mönnum, einstaka kaupfélög og versl- anir kappkostuðu að eiga harmoníkur til sölu eða höfðu erlendan verðlista til að panta eftir (Inporteren). í hita leiks- ins kom fyrir að menn slitu hljóðfærið í sundur um belginn og ósjaldan var hann stagbættur af langri og strangri notkun. Um aldamótin 1900 er díatóniska harmoníkan mikið útbreidd um landið og er aðaldansundirleiks- hljóðfærið til 1930-40 og í einstaka sveit mun lengur. Krómatíska harm- oníkan kemur hingað um 1920 og vinnur á. í heimsstyrjöldinni síðari er hún komin í tísku, þá verður jafnframt enn meiri breyting á tónlistarlífi hér- lendis með tilkomu fleiri hljóðfæra (talið að fyrsta krómatíska harmoníkan hafi komið til íslands 1920 „sjá Harm- oníkan, æskuminningar Einars Krist- jánsonar, 2. tbl. 87-88“). Díatóniska harmoníkan leysir fíðluna og orgelið af hólmi við dansskemmtanir og án efa er saga hennar ólík eftir héruðum lands- ins. Vafalaust hafa tónlistaráhrif er- lendra sjómanna verið á ýmsa lund, þeir komu víða að og eðlilegt, að áhrifa þeirra hafi gætt í tónþyrstu landi. Talið er, að hvað minnst áhrif hafi borist frá Svíum af Norðurlandabúum. Elsta heimild um harmoníku á íslandi er frá 1841, þýsk ættaður maður Stilhoff að nafni mun hafa leikið á dansleikjum í Reykjavík 1841 (sjá Harmoníkan l.tbl 92- 93 Molar ath. að þar er sagt, dansk ættaður maður, rétt er þýsk ættaður). Önnur heimild að Brandur Ögmunds- son frá Kópsvatni lék á harmoníku, þjóðhátíðarárið 1874 (Harmoníkan 3. tbl 91-92). Harmoníkuleikarar sem voru að ýmsu sauðahúsi, bændur eða búalið og einstaka konur var mikils- metið fólk, fólk sem varpaði róman- tískum tónbylgjum og gleði. Almúginn gleymdi brauðstritinu um sinn í al- gleymi dansins. Og víst er að margur ástarneistinn hafi kviknað við seiðmagnaða og töfr- andi tóna harmoníkunnar. En neistar kvikna og neistar slökkna, nú er svo komið að tónar þessa líflega hljóðfæris hafa nær dáið út hérlendis , við skulum vona um sinn. Aðeins örfáir menn á landinu viðhalda þessari þekkingu nú til dags en vonandi rís sólin á ný þannig að við getum svifið um dans- gólfið eins og alþýðan forðum undir tónum þess hljóðfæris er ruddi braut fyrir harmoníku nútímans. Hilmar Hjartarson. 5

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.