Harmoníkan - 28.02.1993, Blaðsíða 18
ÆFINGA-TÆKNI
Oft er talað um þann tíma
sem tónlistarfólk notar
til æfinga án þess að
skilgreina það nánar.
Hversu oft hefur þú ekki
byrjað að æfa og látið
duga að komast í gegn um lagið, en
t.d. látið hjá líða að huga að hrynj-
andi, áferð, fingrasetningu, stíl,
takti og réttum hraða? Kannskivar
bara gaman að láta heyrast í hljóð-
færinu. Staðreyndin er sú, að þú
munt sennilega hafa notið þess, en í
rauninni ekkert lært, þvert á móti
lagt grunn að slæmum vana tónlist-
arlega séð. Hver er besta aðferð til
æfinga? Er einhver aðferð annarri
betri? - Hér á eftir fara nokkrar á-
bendingar sem vonandi bæta æfing-
ar og árangur þinn á harmoníkuna.
Útbúðu verkefnaskrá
Það skiptir ekki máli hverskonar
tónlist þú æfir. Ef þú ætlar að spila á
opinberum vettvangi verður þú að
vera búinn að ákveða hvað þú ætlar
að leika. Getur þú spilað af sæmi-
legri nákvæmni nokkur lög svo við-
unandi teljist? Oft má heyra fólk
segja frá því að það sé búið að læra
svo og svo lengi, en þegar það er
beðið að spila, getur það ekki leikið
eitt einasta lag svo viðunandi teljist.
Byrjaðu því á því að setja þér mark-
mið með því að:
A gera skrá yfir þau lög sem þú
ætlar að æfa,
B æfa hvern hluta lagsins fyrir sig,
þar til hann festist í minni og
taktu þá til við næsta hluta.
C vertu ekki ánægður fyrr en þú
getur án mikillar fyrirhafnar,
hvar og hvenær sem er leikið
lagið.
Farðu yfir lögin. Þau lög sem þú
hefur lært munu gleymast ef þú rifj-
ar þau ekki upp reglulega. Byrjaðu
efst á listanum og farðu ítarlega yfir
hvert um sig til upprifjunar. Ef þú
hikstar á því, skaltu taka það fyrir
og æfa upp á ný áður en þú heldur
áfram niður listann.
Hvenær og hvað oft á að æfa?
Skipuleggið ákveðinn tíma til
æfinga. Sjálfum finnst mér besti
tíminn fyrst á morgnana. Að gefa
18
eftir Jim Wadowick
sér ákveðinn tíma til æfinga er al-
gjör forsenda þess að ná árangri.
Nokkrar stuttar æfingar eru árang-
ursríkari en ein löng. Þrjár hálftíma
æfingar eru áhrifameiri en ein æfing
sem stendur í eina og hálfa klukku-
stund.
Sálfræðingar fullyrða að einbeit-
ingin sé mest fyrstu 10 mínúturnar
sem við æfum. Einnig þarf hugur-
inn tíma til að meðtaka og festa í
minni það sem fram fór á æfing-
unni. Hugurinn meðtekur jafnvel
meðan við sofum.
Hvernig á að æfa?
Æfið fyrst og fremst í smá hlut-
um. Skiptið laginu niður í hending-
ar. Takið hverja hendingu fyrir sig
og æfið og byrjið ekki á næstu fyrr
en sú fyrri er fullæfð og þú getur
spilað hana af fullkomnu öryggi í
mjög hægum takti. Fáðu gott jafn-
vægi í lagið (gott vald á belgnum),
náðu réttum stíl, réttri fingrasetn-
ingu, hljómfalli og stöðugum takti.
Ef þú æfir þig á réttan hátt - aftur og
aftur, lærirðu smá saman og leggur
á minnið lagið sem þú æfir.
Lykillinn að árangri er að æfa
nógu rólega. Æfðu hverja hendingu
á sama hátt. það má jafnvel ná tök-
um á erfiðustu lögum með því að
fara nógu rólega yfir þau í byrjun.
Haltu þér við hægan takt. Taktu fyr-
ir allar hendingar á sama hátt (ró-
lega). Reyndu ekki að auka hraðann
fyrr en þú hefur æft allt lagið á
þennan hátt. Eina hendingu í einu,
aftur og aftur og aftur.
Notið taktmæli
stillið hann á hálfan (ef ekki 4)
hraða sem á að vera á laginu. Marg-
ar gerðir taktmæla eru á markaðin-
um, þar á meðal rafeindamælar.
Sjálfur nota ég rafeindataktmæli
sem ég tengi í magnara. Ef ég er
með nemanda sem á erfitt með að
halda stöðugum takti, hækka ég í
magnaranum. Við það verður nem-
andinn eins og ósjálfrátt stöðugri í
takti. Eftir að þú hefur æft lag í
nokkra daga í mjög hægum takti og
náð góðu valdi á nótum, fingrasetn-
ingu, stíl (legato, staccato eða hvað
sem er) skaltu auka hraðann um
eina mælieiningu og æfa lagið á
sama hátt og í byrjun, hendingu eft-
ir hendingu. haltu áfram að auka
hraðann þar til réttum hraða er náð.
Þegar hér er komið skaltu leggja frá
þér nótumar um stund, og æfa lagið
eftir minni. Þar á eftir skaltu æfa
þig í algjörlega dimmu herbergi.
Það mun einnig gefa þér mikið, þú
heyrir þá betur hvernig lagið hljóm-
ar í eyrum annarra, vegna þess að
nú ertu ekki lengur að einbeita þér
við nóturnar. Hlustaðu bara á sjálf-
an þig. Þetta er einnig prófsteinn á
hversu vel þú hefur æft þig.
Notaðu segulbandstæki
Erfiðasta verkefni sem þú getur
lagt fyrir sjálfan þig er að gera
villulausa hljóðritun af því lagi sem
þú ert að æfa. Ef þér tekst það hef-
urðu náð góðum árangri. Samt sem
áður er engin vissa fyrir því að lagið
sé fullæft þó þetta takist einusinni.
Fyllist því engri sigurvímu. Reyndu
aftur á morgun og sjáðu hvort þér
tekst jafnvel til. Hlustaðu einnig eft-
ir jöfnum hraða, styrkleika og áferð.
Tónlistarþekking er nauðsynleg.
Skilningur á tónlist er nám. Með
tímanum skaltu kynna þér uppbygg-
ingu tónlistar, form og hrynjandi.
Góður skilningur á þessum hlutum
gerir þér kleyft að vita hvemig tón-
verk er sett saman og eykur skilning
þinn á verkinu. Það festist betur í
minni að vita uppbyggingu verks-
ins. Eitt af því sem sálfræðingar
segja er - ef þú skilur hlutina eða
megin innihalds þeirra, þá ertu fær
um að raða þeim saman í einhvers-
konar mynd sem þú manst eftir.
Með öðmm orðum - gerðu þér grein
fyrir formi og uppbyggingu lagsins,
og allar hendingarnar munu raða sér
upp í eina heild sem þú átt betur
með að muna. Að sjálfsögðu þýðir
það nám í tónfræði og tónlistarregl-
um, en það er það sem að öllu jöfnu
gerir hljóðfæraleikara að lista-
manni.
Höfundur er prófessor í tónlist
við „ Troy State “ háskólann í Troy,
Alabama, U.S.A.
Lauslega þýtt úr „ The Bellows “
Þ.Þ.