Harmoníkan - 28.02.1993, Side 11

Harmoníkan - 28.02.1993, Side 11
Hljómsveitin Tíglar eins og hún var skipuð í kringum 1987. Uppáhalds harmoníkuleikarar - Tollefsen er jú minn maður og svo nátt- úrulega Art Van Damme sem „jazz“- kall. Reyndar á ég sárafáar harmoníku- plötur og hlusta ósköp lítið á harm- oníkumúsík. En auðvitað dáist maður af þessum mönnum eins og Lars Ek og Sigmund Dehli sem ég kynntist svolítið persónulega. í mörg ár spilaði ég í Templarahöll- inni. Mattý Jóhanns var að syngja þar, Ragnar Páll á gítarinn, Artúr sonur hans á trommur og þau fengu mig með á harmonrku. Eg var með þeim þar í þrjú ár og spiluðum við á ýmsum stöðum fyrir utan Templarahöllina. Það var svo nokkru síðar að mér bauðst aftur vinna í Templarahöllinni. Sú hljómsveit hét Tíglar og voru þar ungir menn á ferð, sem voru Birgir Ott- ósson sem spilar á bassa og eraðal- söngvari, Jón Karl Olafsson sem spilar á hljómborð og syngur og Eggert Krist- insson á trommur. Við spiluðum alltaf á föstudagskvöldum, ég held bara í 9 ár, að vísu urðu smá mannabreytingar en lengst af var hljómsveitin svona skipuð. Eins spilaði ég með þeim hingað og þangað, en þeir spiluðu líka þnr saman og þá hétu þeir Nátthrafnar. Ég er reyndar enn að spila með þeim af og til þegar tækifæri gefst. Oft er það að ég hef verið fenginn til að leysa menn af, og hef ég t.d. oft leyst af í veitingahúsinu Artúni. Jón Sigurðs- son fékk mig nokkrum sinnum fyrir sig bæði þar og eins á Hótel Borg. Síðan skeður það að Jón veikist og ég fer til að leysa hann af. Jón var búinn að vera veikur og ætlaði að hvíla sig og leita sér lækninga. Það varð um samið að ég leysti hann af í svona 3 mánuði. í hljómsveitinni voru fyrir Gunnar Páls- son bassaleikari, Ragnar Páll gítarleik- ari, Trausti Jónsson (Sigurðssonar) á trommur og Hjördís Geirs frænka mín söngkona. Eins og allir vita þá lést Jón og ég varð eiginlega innlyksa í hljómsveit- inni. Við spiluðum þar fram á sumar s.l. en tókum okkur þá sumarfrí. Þegar við komum aftur höfðu þeir sem leystu okkur af, tekið við starfinu og okkar því ekki þörf lengur. Það var sjálfur Örvar Kristjánsson, sem er jú þekkt nafn í þessari starfsemi og eigendurnir hafa viljað auka aðsóknina með því að hafa hann áfram. En við höfum haldið sam- an ogerum að spila um þessar mundir mikið fyrir austan fjall og eins hér í Reykjavík. Eg dvaldi kvöldstund heima hjá þeim hjónum, þar sem þau búa tvö í Safamýrinni, því börnin tvö Guðrún og Gísli hafa yfirgefið hreiðrið. Eg þáði góðar veitingar ogleitaði að gömlum myndum sem reyndar margar höfðu týnt tölunni ígosinu. En Sifft er enn að og því eiga eftir að koma nýjar myndir og eflaust margar góðar minn- ingar því hann er einn þeirra sem ekki liœttir, heldur endurnýjar sig stöðugt í tónlistinni. Þ.Þ. Ný félög Eins og greint var frá í síðasta blaði var nýtt félag stofnað í Skaga- firði, Harmoníkufélag Skagafjarðar H.F.S. Félagið var stofnað 21. febrúar 1992 en endanlega gengið frá lögum félagsins og kosningu stjórnar s.l. haust á Hótel Bifröst í svonefndum Græna Sal. Stofnfélag- ar eru 29 og fyrsti formaður var kosinn Pétur Víglundsson (sjá bls. 2) Nýtt félag var einnig stofnað á Norðfirði, Félag Harmoníkuunnenda Norðfirði og er félagið þegar gengið í S.Í.H.U. og hefur tilkynnt þátt- töku á næsta landsmóti á Egilsstöðum í sumar. (sjá bls. 2). Þá hefur einnig verið stofnað félag í Vestmannaeyjum og er nánar greint frá því á öðrum stað í blaðinu. Vonandi koma félagar frá þessum nýju félögum á landsmótið næsta sumar sem verður gott framlag til fjölbreyttara samfélags harmoníku- unnenda á landinu. Það er von okkar að þessi nýju félög verði í góðu sambandi við blaðið og sendi okkur reglulega fréttir og myndir frá starfsemi sinni og í leiðinni er vert að minna eldri félög á að gera það sama. Þ.Þ. 11

x

Harmoníkan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.