Harmoníkan - 28.02.1993, Side 6
Eigum við eigum við ekki ?
Ósjaldan berast okkur á blaðinu
bréf erlendis frá, og ýmsar fyrir-
spurnir sem við reynum að svara
eftir bestu getu. Það nýjasta er frá
þeim Lars Ek og Sigmund Dehli.
Eftir að þeir fóru að vinna saman, er
ósk þeirra að bjóða Islendingum
þátttöku í móti sem nefnt er Frosini
Grand Prix. (Lars Ek er formaður
Frosini félagsins í Svíþjóð). Mótið
fer fram einu sinni á ári með þátt-
töku þeirra Norðurlanda sem vilja
vera með. Umsókn þessi hefur verið
send til SÍHU.
í stuttu máli eru reglur á þann
veg, að þátttökuland heldur und-
ankeppni, keppendur mega vera á
öllum aldri og leika 2 verk, í það
minnsta annað eftir Pietro Frosini
eða hliðstæðan höfund (Ragnar
Povl
Dissing og
hljómsveit
Vegna misskilnings brá ég mér á
tónleika í Norræna húsinu, hélt að
þessir heiðursmenn mundu leika tónlist
eftir Svíann Benny Anderson, Abba
manninn sem snúið hefur sér að harm-
oníkunni og þjóðlagatónlist. Tónleik-
arnir snérust hinsvegar um hinn
elskaða danska lagasmið og skáld
Benny Andersen, Norrænahúsið var
troðfullt, og stemmningin í toppi,
hljóðfæraleikararnir voru frábærir og
lögðu sig verulega fram. Söngvarinn
góðkunni Povl Dissing lagði alla sína
orku í sönginn og lék kúnstir fullar af
húmor, og eins spilaramir sem blönd-
uðu allskyns brellum og glettni inn í,
áslætti á hljóðfærin með hjálp Midi
búnaðar og fl. Þeir byrjuðu á Car-
melsita tango og spunnu svo þráðinn á-
fram, með textum um lífið og tilveruna
eftir Benny Andersen, Evert Taube og
Bellman til vindanna á rússnesku gresj-
unni og hinna djúpu tóna Kósakkanna.
Þökk sé að þessu sinni fyrir misskiln-
inginn.
Dansk-íslenska félagið bauð þeim
hingað til tónleikahalds, umræddir tón-
leikar voru sunnudagskvöld 15. nóv-
ember. Povl Dissing hóf feril sinn
1966, þekktast er samstarf hans við
fyrrnefndan Benny Andersen svo og
fjölda annara listamanna. Tríóið sem
heimsótti ísland hefur leikið saman frá
Sundqvist). Einnig má þátttakandi
leika Frosiniverk á annað hljóðfæri
en harmoníku og keppir þá í sér
flokki. Dómarar eru valdir í þátt-
tökulandinu en yfirdómari mun
verða að vera Lars Ek. Keppnisland
velur tíma fyrir forkeppnina í sam-
ráði við Lars Ek.
Keppnisland greiðir fargjald og
uppihald vegna yfirdómara ásamt
50.000 ísl.kr. til Frosini félagsins.
Vinningshafi (fyrstu verðlaun) í
undankeppninni greiðir sjálfur
ferðakostnað og uppihald vegna
þátttöku í úrslitakeppninni, sem
næst verður í Grieghöllinni í Bergen
30. okt. 1993. Vinningshafi aðal-
keppninnar fær vegleg verðlaun .
Allir sem keppa fá uppskrifað skjal
(Diplom). Landið sem aðalvinn-
1989. John von Daler fiðluleikari hefur
unnið með ýmsum tónlistarmönnum,
sem dæmi Palle Mikkelborg, Nils
Henning Örsted Pedersen og Ole Koch
Hansen. Cristian Sögaard harmoníku-
leikari er 34 ára, menntaður tónlistar-
kennari frá Tónlistarháskólanum í
Kaupmannahöfn og hefur starfað um
langt skeið á Grænlandi með þarlend-
um tónlistarmönnum ásamt að kenna
innfæddum harmoníkuleik, þar að auki
leikur hann karabíska tónlist með
hljómsveitinni Los Orginales. Ég fékk
að ræða við þá félaga eftir tónleikana
og spurði þá harmoníkuleikarann um
Grænland. Hann sagðist hafa ferðast
ingshafinn er frá heldur keppnina
næst. Þannig hljóma reglurnar í
grófum dráttum. Reglur í 10 liðum
frá Frosinifélaginu hafa verið send-
ar landssambandinu (SÍHU) enda
talið eðlilegast, að það taki að sér
mál af þessari stærðargráðu. Nú er
að hrökkva eða stökkva og kanna
málið ofan í kjölinn, hér á landi er
fjöldi manns sem leikur Frosini.
Aðalatriðið að varpa allri minni-
máttarkennd fyrir borð, ef af verður,
þarna skiptir metnaðurinn máli,
flest er hægt ef viljinn er með. Þeg-
ar hafa tilkynnt þátttöku Svíþjóð,
Noregur, Finnland, Danmörk og Á-
land/Finnland. Rétt fyrir útkomu
blaðsins kom í ljós að SÍHU hafði
hafnað umsókninni á þeirri for-
sendu að landsmót væri framundan
en ekki væri útilokað að athuga
málið fyrir næsta ár 1994.
H.H.
þar frá suðri til norðurs og Grænlend-
ingar ættu marga ágætis harmoníku-
leikara. Ég þóttist heyra á tónleikunum,
að nikkarinn væri fær, þá kom í ljós að
uppáhald hans er að leika tónlist frá
Rúmeníu og Búlgaríu. Þeir þremenn-
ingarnir sögðu lítið vera um álíka
hljómsveitir í Danmörku. Þar sem þeir
færu um væri þeim vel tekið ekki hvað
síst á íslandi. Ég þakkaði upplýsingam-
ar. Að skilnaði var mér gefinn geisla-
diskur og heimilisfang manns á Græn-
landi, sem allt á að vita um harmoníku-
mál þar í landi.
H.H.
Þeir félagarnir gerðu stormandi lukku og voru ánœgðir með undirtektir íslendinga.
Frá vinstri: John von Dalerfiðla, Christian Sögaard harmoníka og Povl Dissing
gítarleikari og söngvari.
6