Harmoníkan - 28.02.1993, Blaðsíða 15
mæli. Eflaust eiga margir fjölmargt
í fórum sínum ómetanlegt til söfn-
unarmála. Við þessa menn á að
ræða. Mér finnst framtíðarsýnin
geta verið á margan veg, eins og að
bæta harmoníkuleik og gera fjöl-
breyttari, koma á keppnum í ein-
hverri mynd, efla kennslumöguleik-
ana og virkja unga fólkið. Já það er
gaman að upplifa þessa hluti alla
með skemmtilegu fólki sem samtök
þessi hafa að geyma og vonandi
tekst okkur að halda öllum þáttum
lifandi. Þegar okkar virti gaman-
leikari Haraldur Björnsson dó,
sagði kona nokkur: „Það var leiðin-
legt að hann skyldi fara að deyja,
hann hafði svo gaman af að lifa“.
Öll viljum við hafa lífið skemmti-
legt og láta okkur líða vel. í loka-
orðum langar mig að notfæra mér
smá greinarkorn frá félaga einum í
H.F.Þ. sem hann sendir félaginu
sínu í tilefni af 10 ára afmæli þess
og lýsir svo vel hvað hægt er að
vera einlægur og sæll í sínu félagi.
Kannski þessi lýsing gæti átt við
okkur öll.
f tilefni 10 ára afmælis sendir
okkar aldni og síungi vinur (Skarf-
urinn) félaginu svohljóðandi bréf:
Harmoníkufélag Þingeyinga, kæru
félagar tóna og gleði! Senn líður að
því að ég lækki flugið, fjöðrum og
vængjum fækkar, hugur þyngist og
heilabúið tekur ekki við nýjum
tónum (þó heilabúið sé ekki stærra
en kríuegg). Mín heitasta von er
sú, að eiga ennþá eftir að líta mið-
sumarsólina með sínu yndislega,
fagurskrýdda hafbliki. Þar er næg
fyrirmynd, sem þyrfti að breyta í
tónaflóð sem breiddist yfir allt
tónasullið sem nú flæðir yfir og
eitrar fagra hljóma. Góðu vinir, sem
ég geri ekki upp á milli. Meðal
ykkar hef ég notið þess, sem ég
virði mest, gleðinnar. Gangið áfram
sömu heillaslóð og þið hafið gengið
síðastliðin tíu ár og teygið tónana
nógu lengi og langt. Heill fylgi
hópnum mínum kæra, undir þetta
skrifar Jósteinn Finnbogason
H.H.
BARMMERKI
HARMONÍKUNNAR
KR. 300
Harmoníkusmíði
í U.S.A.
Behlenframleiðir m.a. þessa
„díatónísku “ harmoníku sem er nejhd
„Artist ProfessionaV' 3/5 kóra og kost-
ar um 950 $.
Vestur í Bandaríkjunum er maður
að nafni Stinson R. Behlen og
framleiðir litlar hnappaharmoníkur.
Um er að ræða ýmsar gerðir bæði
hvað varðar útlit og stillingu og eru
sumar í gömlum stíl með skiptingar
ofan á hljóðfærinu. Verð á harm-
oníkunum er frá ca. 850 $.
Þá framleiða þeir strengjahljóð-
færi sem þeir kalla “Dulcimer” 4
strengja og er leikið á það ekki ó-
svipað og íslenska Fangspilið. Þetta
hljóðfæri er notað einkum í þjóð-
lagatónlist og hafa þeir framleitt
yfir 5 þúsund eintök. Stinson þessi
hefur komið til íslands og er kunn-
ugur íslenska Langspilinu sem hann
segir að innflytjendur hafi flutt með
sér til Bandaríkjanna á 18. og 19.
öld.
Þeir sem hafa áhuga geta haft
samband við blaðið og munum við
þá gefa upp heimilisfang hjá fram-
leiðanda.
Þ.Þ.
Nokkrar gerðir af strengjahljóðfœrinu
Dulcimar.
Eiríkur Þorsteinsson
F, 5. júní 1894
D. 6. desember 1992
Einhver elsti harmoníkuleikari
landsins Eiríkur Þorsteinsson er lát-
inn, 98 ára. í 3. tölublaði 1. árgangs
Harmoníkunnar 86/87birtum við
smá viðtal við Eirík en hann var þá
vel ern og minnugur. Síðustu árin
var hann á dvalarheimilinu Höfða á
Akranesi og allt fram á síðasta dag
spilaði hann á harmoníkuna, sam-
ferðafólki og sjálfum sér til ánægju.
Um leið og við kveðjum Eirík
sendum við ættingum og vensla-
fólki hans samúðarkveðjur.
Þ.Þ.
15