Harmoníkan - 28.02.1993, Síða 16
Lifandi skemmtinefnd
Skemmtinefnd F.H.U.R. hefur
löngum haldið uppi fjölbreyttu
skemmtanalífi og reynt að þróa
ýmsa möguleika til fjáröflunarstarf-
semi fyrir félagið. Oft hefur hvílt
mikið á herðum þeirra sem í for-
svari eru enda í mörg hom að líta.
Núverandi formaður skemmti-
nefndar er Friðjón Hallgrímsson.
Hann er nú að hefja sitt þriðja
starfsár í æðsta valdastól skemmti-
nefndarinnar. Friðjón er maður
glaðsinna og hress í bragði og mál-
ar ekki tilveruna í sama litnum.
Hann hefur ekki soðið hugmyndir
sínar upp úr gömlum afgöngum,
heldur reynt að hafa hráefnið sem
ferskast og fjörefnaríkast. Hann
hefur lagt kapp á að fá fólk úr öðr-
um félögum til liðs við félagið og
frískað upp spanskgræn sambönd.
Ég forvitnaðist eitt kvöldið um
hvað helst væri á dagskrá eða nýtt
að gerast hjá hinni dugmiklu
skemmtinefnd F.H.U.R. í fyrsta lagi
verða breytingar á skemmtifundun-
um. Við klippum þá í sundur við
kaffið kl. 15:30 eftir u.þ.b. tvo spil-
ara á meðan kaffið er afgreitt. Það
hefur valdið ónæði þegar verið er
að kalla á afgreiðslufólk. Þeirri nýj-
ung verður komið á að sá sem er að
selja plötur, hljómsnældur eða ann-
að á fundum fái að kynna það sem í
boði er. Eftir kaffihléið verður hald-
ið áfram með ljúflegan tónlistar-
flutning, eins og vænta má. Sami
bragur verður nú sem í fyrra að á
síðasta fundi vetrar koma fram
bestu spilarar vetrarins (úrvalið).
Mesta nýjungin verður danslaga-
keppni sem ætluð er félagsmönn-
um. Við ætlum að fá alla okkar
lagahöfunda fram og leggja keppn-
inni lið.
Hugmyndin er að höfundar skili
lögum inn fyrir fyrsta janúar ‘93.
Síðan munu lögin verða leikin á
skemmtifundum vetrarins, tvö valin
úr á hverjum fundi og lokakeppni
sex bestu laganna fyrstu helgina í
maí. Vonandi verður sigurlagið
leikið á landsmóti ‘93.
Er skemmtinefndin búin að
liggja lengi á þessari hugmynd? í
fyrra var lítið hægt að gera því
langt var liðið vetrar, en segja má
að þá hafi hugmyndin kviknað. í
16
/ *
Friðjón Hallgrímsson
raun ætti svona keppni að vera ár-
legur viðburður í öllum félögum
landsins. Hvað með dansleikjahald?
I fyrra vorum við með tónleika og
ball á Borg í Grímsnesi undir nafn-
inu „Vorgalsi ‘92“. Það þótti takast
mjög vel og stefnt er að „Vorgalsa
‘93“. Borg í Grímsnesi hefur reynst
vel til þessa skemmtanahalds, enda
var „Hausthopp ‘92“ haldið þar
með hoppandi fjöri 17. okt. síðast-
liðinn. Arshátíð félags okkar verður
í mars, hún hefur ávallt tekist vel
og nú verður hún haldin í samstarfi
Fjölmennasti skemmtifundur frá
upphafi F.H.U.R. var sunnudaginn
7. febrúar ’93.Venjulega hafa 100-
150 manns sótt fundina,en þegar
300 manns hafði verið hleypt í hús-
ið, borðum og stólum bætt við á allt
dansgólfið, var ekki um annað að
gera enn loka húsinu. Ástæðan var
sú að skemmtinefndin hafði blásið
til nýrrar orustu, orðin þreytt á föstu
formi. Höfuðpaur nefndarinnar
Friðjón Hallgrímsson átti hugmynd-
ina og fann upp á að halda
lagakeppni með þátttöku félags-
manna. Frá félagsmönnum bárust
18 lög, keppt var um sex þeirra á
umræddum fundi, á næstu tveim
verður keppt um hin tólf og valin
tvö lög til úrslita á hverjum. Á síð-
við Harmoníkufélag Reykjavíkur.
Með því móti mundi hægt að halda
veglega harmoníkuhátíð í Reykja-
vík. Af hverju haldið þið böllin ut-
anbæjar?
Aðalástæðan er sú að við fáum
betri aðsókn. Önnur ástæðan er að
samkomuhúsin eru miklu ódýrari
en í bænum. Svona skemmtanir eru
sjaldgæfar til sveita og gömlu-
dansafólki finnst dálítið bragð að
svona uppákomu, jafnvel spilurum í
félaginu finnst það líka. Við héld-
um reyndar dansleik 16. janúar í
Reykjavík og fengum betri aðsókn
en um langt árabil. Útlendingar
Friðjón?
Að sjálfsögðu er ég fylgjandi því
að fá erlenda harmoníkuleikara til
liðs við okkur enda gæti það bara
gert góða árshátíð betri. Það er mitt
sjónarmið að félagsmenn fái frí
þetta kvöld að mestu leyti þess
vegna hefur verið ákveðið að
Bröderna Fárm leiki fyrir dansi á
árshátíðinni. Skemmtinefndin mun
hafa það að leiðarljósi að sem flest-
ir geti komið fram á skemmtifund-
um.
Margir hafa einmitt þar stigið sín
fyrstu skref til frekari afreka. Ég vil
gjaman benda áhugafólki og harm-
oníkuleikurum af landsbyggðinni á
að láta vita af sér eða koma við
þegar þeir eru í bænum, sagði Frið-
jón í lok þessa spjalls.
H.H.
asta fundi kemur svo úrslitalagið í
ljós er sent mun á landsmót í sumar.
Bragi Hlíðberg var ráðinn til að
flytja öll lögin. Örugglega gerir það
sitt til að glæða áhuga fólks til að
mæta. Ekki má gleyma vini okkar
Þóri Magnússyni sem trommar und-
ir með Braga. Áheyrendur hafa 2/3
vægi atkvæða en dómnefnd 1/3.
Formaður dómnefndar er Þorvaldur
Björnsson, með honum eru Guð-
mundur Samúelsson, Jakob Jakobs-
son, Ragnhildur Erlendsdóttir og
Sigurður Alfonsson. í fyrsta sæti
var Flökkustelpan polki með 761
stig. í öðru sæti Dalavals með 495
stig. Vonandi verður aðsókn jafn
góð á þeim fundum sem eftir eru.
H.H.
AÐSÓKNARMET