Harmoníkan - 28.02.1993, Qupperneq 21

Harmoníkan - 28.02.1993, Qupperneq 21
LeiðrétNng í 1. tbl.7. árg. urðu þau leiðu mistök með mynd í viðtalsgrein við Reyni Jónasson í hópi Deep River Boys, að hann var sagður lengst til hægri, það rétta er að hann er þriðji frá hægri. Beðist er velvirðingar á þessari rangfærslu. Reynir Jónasson prýddi forsíðu síðasta blaðs. Við skýringu forsíðu- myndarinnar segir að hún sé tekin við Sólarskipið við Skúlagötu. Hafa skal það sem réttara reynist, lista- verkið heitir Sólfar og er eftir Jón Gunnar Ámason. Leiðrétting frá Reyni Jónassyni vegna viðtals í síðasta blaði: „Það sem helst hann varast vann varð þó að koma yfir hann.“ Þegar farið er að nefna menn til sög- unnar vilja stundum verða slys. í við- talinu í síðasta blaði gleymdi ég að- alnikkaranum sem auðvitað er Jón Að- alsteinsson yfirlæknir á Húsavík. Við erum náfrændur og vorum saman í M.A. og af honum lærði ég kannski mest í nikkuspili. Reynir Jónasson MOLAR Þeir Grettir Björnsson og Reynir Jónasson héldu harmoníkutónleika á vegum Tónlistarfé- lags Hvammstanga 18. nóvenber sl. Tónleikamir fóru fram í veitingahúsinu Vertshúsinu á Hvammstanga fyrir fullu húsi áheyr- enda við mjög góðar undirtektir. Á dagskránni voru lög eftir innlenda og er- lenda höfunda sem þeir félagar léku ýmist sem dúett eða einleik. Síðar eða þann 20. nóvember léku þeir Reynir og Grettir dúetta í tilefni 50 ára afmælis Þingeyingafélagsins. Þar var mikið fjör og fínerí, ekki spillti að þeir léku báðir á sínar fögru hvítu Borsini Nostalgic harmoníkur. H.H. íslendingafélagið Leifur heppni í Orlando Flórída fékk Reyni Jónasson öðru sinni vestur um haf að gleðja gesti á þorrablóti félagsins með leik sínum 13. febrúar 93. Á árlegu diplomata balli á forsetasetrinu á Bessastöðum fyrir skömmu léku þeir Reynir Jónasson, Simon Kuran, Ámi Elfar og Ámi Scheving. Þá er vert að geta þess að Reynir Jónasson verður heiðursgestur á árshátíð Harmoníkufélags Héraðsbúa 17. apríl næstkomandi. Ung blómarós Hún heitir Amdís Halla Jóhann- esdóttir og kom fram í Templara- höllinni á nóvemberskemmtifund- inum ‘92. Arndís hefur greinilega fengið rétta tilsögn í upphafi varð- andi hljóðfærið, þarna er vafalaust á ferðinni upprennandi harmoníku- leikari miðað við það, sem heyra mátti við þetta tækifæri, alveg til fyrirmyndar. Hún byrjaði nám sitt hjá Hafsteini Sigurðssyni í Stykkis- hólmi, en er nú búsett á Akranesi og stundar nám þar hjá Fanneyju Karlsdóttur. Amdís er 16 ára gömul og þegar ég spurði hana hvað hafi ráðið vali hennar með hljóðfærið, sagði hún harmoníkuna skemmti- lega, öðmvísi en annað og því lang- aði sig að prófa. Nú væri hún á- harmoníkuna afþví hún er svo skemmti- kveðin í að halda áfram. lega öðruvísi en önnur hljóðfœri. H.H. 21

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.