Harmoníkan - 28.02.1993, Qupperneq 23
t
LÁTINN E R
OTTAR E. AKRE
Faðir harmoníkunnar í Noregi og
skandinavíu, Ottar E. Akre er lát-
nn. Akre sem var 96 ára fékk hægt
indlát á Diakonhjemmets sjúkra-
túsinu í Osló 29 október s.l. Með
indláti hans er einhver mesti frum-
íerji harmoníkunnar horfinn á
)raut.
Ottar E. Akre var fæddur í ytri
iendal og bjó þar lengstan hluta æfi
.innar en fór víða bæði innan Nor-
:gs og utan. Hann var eitt þeirra
/ngri í hópi 9 systkina. Þegar á
mga aldri sýndi hann mikinn tón-
istaráhuga og hóf að leika á marg-
nsleg hljóðfæri. Hann komst
inemma í samband við marga
cunna tónlistarmenn síns tíma og
ærði mikið af þeim. Með námi á
)íanó lærði hann að spila eftir nót-
ím, nokkuð sem ekki var á færi
nargra harmoníkuleikara á þeim
ímum.
Jafnframt tónlistinni var það raf-
jindafræðin sem heillaði. Eftir að
hafa dvalið um tíma í Osló hélt
hann til vesturlandsins í rafeinda-
nám. Hann fékk vinnu í Osló, en þó
hann ætlaði sér að verða rafeinda-
virki, varð tónlistin yfirsterkari.
Akre náði góðu sambandi í tón-
listarheiminum og var um tíma í
tónleikaferðum um Bandaríkin.
Hann stundaði nám við tónlistarhá-
skólann í Fargo í Norður-Dakota,
þar sem hann síðar varð kennari í
harmoníkuleik. Tónlistarfyrirtæki
Carl M. Iversen hvatti Akre til að
semja kennslubók í harmoníkuleik.
í framhaldi af því sneri hann aftur
til Noregs og hóf störf hjá Iversen,
eftir 6 ára veru í Bandaríkjunum.
Vegna kennslubóka sinna fékk
Akre marga nemendur frá allri
Skandinavíu. Miklar sviptingar
urðu á útvarpsefni um þessar mund-
ir og hljómsveit, tríó, kvartett og
kvintett Akres varð áberandi í flutn-
ingi margskonar dægurlaga. Margir
þekktir söngvarar náðu vinsældum
með samvinnu við tónlistarmanninn
Ottar E. Akre t.d. Jens Book-Jensen
sem söng inn á margar hljómplötur
með hljómsveit Akres.
Hljómplötuupptökur voru eins og
á færibandi og tóku mikið af tíma
hans. En það var nóg að gera hjá
snillingnum Akre við að miðla af
hæfileikum sínum - og fjölmargir
nemendur sem hafa mikið að þakka
lærimeistara sínum fyrir. Bæði tón-
listarlega séð og síðast en ekki síst
þann lífstíl sem hann boðaði.Hann
varð fyrstur Norðmanna til að leika
á rafeindahljóðfæri - Solovox.
Skömmu eftir stríðslok stofnaði
Akre ásamt fleirum Harmoníkufé-
lag Oslóar “Oslo Trekkspillklubb”
og til að byrja með var hann sjálf-
kjörinn leiðbeinandi og stjórnandi,
en flestir félaga voru eigin nemend-
ur hans. Góðar útsetningar hans fyr-
ir kór og hljómsveit voru ákaflega
vinsælar. Meðal margra góðra nem-
enda hlaut Toralf Tollefsen stað-
góða kennslu hjá Ottar E. Akre.
Tollefsen var fyrsti harmoníkuleik-
arinn sem náði heimsathygli, og fær
stöðugt frábæra gagnrýni fyrir
klassíska túlkun sína á harmoníku.
Ottar E. Akre fékk margvíslegar
viðurkenningar - m.a. þjónustuorðu
konungs, gerður að heiðursfélaga í
harmoníkufélagi Oslóar og einnig í
landssambandi norskra Harmoníku-
félaga N.T.L. Árið 1990 fékk hann
menningarverðlaunin í Rendal, og
færði um leið heimabyggð sinni
safn sitt af hljóðfærum, nótum og
allt annað viðkomandi tónlistarferli
sínum.
Verið er að skrifa ævisögu Akres
sem greinir frá langri og viðburða-
ríkri ævi í þjónustu tónlistarinnar.
Þá hefur verið stofnaður sjóður í
nafni Akres, og verður veitt úr hon-
um árlega til nemanda í harmoníku-
leik.
Ottar E Akre hefur spilað sína
síðustu tóna. Við höfum hann ekki
lengur á meðal vor á tónleikum,
mótum og hátíðum þar sem hann
tók oft upp pínulitlu harmoníkumar
sínar og töfraði fram lokkandi tóna.
En við höldum eftir tónlistinni sem
hann skildi eftir sig ásamt minning-
unni um góðan tónlistarmann og in-
dæla persónu sem alltaf hafði eitt-
hvað jákvætt að færa okkur.
Fyrir hönd norskra harmoníku-
unnenda þökkum við Akre fyrir
mannlegheit og hugmyndauðgi er
hann veitti okkur.
Friður sé með minningu hans.
Aage Grundstad
Birger Östbye
MERKILEG
HARMONÍKA
Harmoníkan í byggðasafninu á Höfn,
Hornafirði.
Þær leynast víða gömlu harmoník-
umar. Ein þeirra er á byggðasafninu á
Höfn í Homafirði. Á harmoníkunni eru
ekki ártal, stafir eða nafn sem geta gef-
ið til kynna framleiðsluland.
Harmoníka þessi er keypt um síð-
ustu aldamót af Kristínu Jónsdóttur,
Guðmundssonar bónda í Hoffelli.
Harmoníkunni fylgdi bréf dagsett 24.
janúar 1907 þar sem Guðný nokkur í
Stómlág biður Kristínu að lána hana til
að spila á balli “nú á laugardaginn”.
Annað er ekki vitað um gripinn.
Upplýsingar þessar sendi Þorsteinn
Þorsteinsson, byggðasafninu á Höfn.
Þ.Þ.
23