Harmoníkan - 30.05.1995, Blaðsíða 8

Harmoníkan - 30.05.1995, Blaðsíða 8
HuoMsvtrr Frá hátíðahöldwium 17. júní 1974. Frá vinstri: Haukur Sighvatsson, Sighvatur Sveinsson, Sigga Maggý, Bragi Einarsson og Ásgeir Sverrisson. var enginn pallur til að spila á heldur vorum við út í horni og við vorum hræddir um að truntan setti lappimar í hljóðfærin. Það komu svo tveir menn og gripu í taumana, og karlinn fór syngj- andi á hestbaki meðan klárinn var teymdur út. Síðan var haldið áfram með ballið. Ég stefndi að því að komast í Sinfón- íuna sem óbóleikari. Ég komst að vísu í hljómsveitina sem þriðja óbó, og spilaði á nokkrum tónleikum. Það var hérna þýskur maður, sem var fastráðinn óbó- leikari við Sinfóníuna og kvæntur ís- lenskri konu. Ég sá því ekki fram á að fá fasta stöðu. En svo bauðst mér vinna, fyrst hjá útgáfufyrirtæki og svo hjá Samvinnutryggingum og þá ákvað ég að hætta hjá Sinfóníunni, því þar var æft á morgnana og það fór ekki saman við vinnuna. Svo þú hefur þá valið Harmoníkuna? Ég ætlaði raunar aldrei að verða harmoníkuleikari, en það vantaði harm- oníkuleikara og því sló ég til þar sem af því voru góðar tekjur. Bræður mínir áttu allir harmoníkur, 120 bassa og ég stalst í þær, sennilega frá því að ég var svona tíu ára. Faðir minn sem var kirkju- organisti, og nokkuð góður sem slíkur þó ég segi sjálfur frá, kenndi mér að spila á orgel og lesa nótur. Hann var mjög nákvæmur við kennsluna, harður og stífur og hef ég búið að því síðan. Ég spilaði svo að mig minnir tvisvar í kirkjunni þegar pabbi var forfallaður. Annars var mikil tónlist á heimilinu, það spilaði öll fjölskyldan og söng, sér- staklega eldri bræður mínir sem eru af- skaplega söngelskir og miklir söng- menn. Um 15 ára aldur fékk ég ein- hverskonar ofnæmi, og var innan dyra hátt í þrjá mánuði. Þá má segja að ég hafi byrjað að spila á harmoníku því ég notaði tímann til að æfa mig þegar ég var að ná mér eftir veikindin. Ég held að fyrsta ballið sem ég spilaði á hafi verið á Síká. Ég fór með rútunni þangað og spilaði fram á nótt, en fékk svo far aftur heim strax eftir ballið. Einnig fór ég norður á Strandir til að spila. Þar byrjuðu böllin svona um klukkan ellefu, þeir voru ekki klárir úr fjósunum fyrr, og svo var haldið stanslaust áfram til klukkan sex á morgnana. Það eru senni- lega erfiðustu böllin sem ég hef lent í, en maður fann ekkert fyrir þessu þá, maður var svo ungur. Eitt sinn fór ég ásamt Andrési bróður mínum ríðandi til að spila og vorum við með harmoník- urnar á klakk. Við fórum yfir hálsinn suður í Þverárhlíð og spiluðum þar. Árið 1956 fer ég að spila í Gúttó með Carl Billich, þar fékk ég rosalega góða kennslu og þjálfun. Þama spilaði Billich á píanóið, Gunnar Reynir Sveinsson tónskáld á trommur, Jósef Felzmann á fiðlu og Sigurður Ólafsson söng. Skapti Ólafsson söng stundum í staðinn fyrir Sigurð. Þetta voru engir slorkarlar og maður varð að hafa sig allan við, til að hafa við þeim. Það var mikið spilað eftir nótum og þeir voru alveg ferlegir með það að transponera eftir nótunum. Ef lagið var til dæmis skrifað í D, áttu þeir til að hækka í Es, og maður varð bara að gjöra svo vel og fylgja þeim eftir. Þetta var nú í lagi ef maður kunni lagið, en verra að gera þetta beint af blaðinu. Felzman var svo illskeyttur að hann sagði: Ef þú spilar þetta ekki þá hendi ég þér bara út. Þetta voru atvinnumenn, gegnsósaðir í músík og kunnáttu. Á þessum tíma var danslagakeppni S.K.T. þá var Einari Waage bassaleikara bætt í hópinn. Þetta hefur sennilega verið ein af þeim síðustu danslagakeppnum sem S.K.T. hélt og Freymóður Jóhannesson sá um, en þær höfðu þá staðið í mörg ár. Það hlýtur að hafa verið mikil vinna fyrir keppnina ? Jú, lögin voru öll skrifuð, misjafn- Spilað fyrir gesti heima í stofu (1980). 8

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.