Harmoníkan - 30.05.1995, Side 17
Ýmiss konar sambræðingur var á
boðstólnum á árshátíð hjá Félagi Harm-
óníkuunnenda og Harmoníkufélagi
Reykjavíkur þann 18. mars 1995. Fyrir
utan lystugan mat og drykk sem gestir
gerðu góð skil, lék erlendur stórsnill-
ingur, Finninn Tatu Kantomaa, undir
borðum og var þetta í fyrsta skipti sem
boðið er upp á slíkan lúxus. A árshátíð-
inni lýsti skemmtinefnd yfir ótta sínum
yfir þeirri staðreind að endurnýjun
harmoníkuunnenda er dapurlega hæg.
Þau sáu ekki fram á bjarta framtíð ef
ekkert væri aðhafst í málunum.
Skemmtinefndin hafði tekið sig til og
sýndi á árshátíðinni afrakstur tilraunar
sem hún var rétt að ljúka, tilraun sem
hafði það að markmiði að bæta ástand-
ið. Afrakstur gervifrjóvgunar var borinn
undir gestina og leist gestunum misvel
á útkomuna. Nefndin hefur þegar
ákveðið að fá leyfi til að koma upp sér-
stöku tjaldi í Þrastaskógi um verslunar-
mannahelgina til að halda tilraunastarf-
seminni áfram þar sem þangað koma
allir úrvals harmoníkuleikarar
hvaðanæva af landinu og eru miklar
vonir bundnar við þá útkomu. Ballett
var sýndur, smá þáttur úr „Kranavatn-
inu“. Erlendir gestir voru að þessu sinni
frá Danmörku og Finnlandi. Tatu
Kantomaa lék einleik og gerði storm-
andi lukku. Anders Trabjerg og Kim
Nilsen frömdu einleik og léku dúetta.
Aðallega bauð Anders uppá írska tón-
list en Kim ýmsa blöndu tónlistar með
Frosini og Islandsminner Sigmund
Dehlis og fleiri lög. Þessir ungu menn
Anders 19 ára og Kim 23 ára léku fyrir
dansi allt kvöldið með þeim Þorsteini
Þorsteinssyni á gítar og Gunnari Bem-
burg bassaleikara sem léku listavel að
vanda. Mörgum dönsurum fannst of lít-
ið um tangóa og einhverju fleiru var
kvartað undan, en Danir telja víst tangó
til nýju dansanna. Gömludansar Norð-
urlandabúa eru gjarnan mjög gamlir,
100 ára og þar yfir. Allt fór nú samt vel
þrátt fyrir að aðsókn hafi minnkað mið-
að við síðustu 2-3 ár. Sérstakur heiðurs-
gestur í boði F.H.U.R. var Geir Guð-
laugsson formaður H.U.V. og kona hans
Jóhanna Þórarinsdóttir.
Stjóm F.H.U.R. heiðraði sérstaklega
formann skemmtinefndarinnar Friðjón
Hallgrímsson fyrir vel unnin störf og
starfsgleði. Fékk hann fagurlega gert
skjal, teiknað af hinum kunna lista-
manni og formanni F.H.S.N. Ólafi Th
Ólafssyni. Það heillaði mig verulega
eins og oft áður þegar útlendingar spila
á árshátíð okkar að heyra annars konar
danslög leikin og öðruvísi túlkun en við
eigum að venjast. Það er mikilvægt að
eiga þessa kost einu sinni á ári að brjóta
örlítið hefðina með jákvæðu hugarfari
og njóta þess að láta fæturna lyftast
nærri sjálfkrafa eftir taktfastri og vel
leikinni danstónlist, erlendu gestanna.
H.H.
Vtð Geysi í Haukadal ífimbulgaddi: Friðjón Hallgrímsson, Tatu Kantomaa, Kim Nilsen og
Anders Trabjerg frá Danmörku.
Gervifrjóvgunarmóðirin með afkvœmi sitt.
Reynt verður aðfullkomna aðferðina á
sumri komanda.
Anders Trabjerg lék á hina smágerðu átta
tóna harmoníku „Min första Komposition “
eftir Karl Jularbo, Kim Nilsen lék með á
bassagítar.
Árshátíb F.H.U.R. og H.R.
17