Harmoníkan - 30.05.1995, Qupperneq 20

Harmoníkan - 30.05.1995, Qupperneq 20
ÆFING 7 Hreyfing axlar að líkama Notið teygju og haldið olnboga að líkama. Togið að líkama. Haldið framhandlegg láréttum. / a'2 r n \\ (/ \ /I Endurtakið 10 sinnum. Æfið þrisvar sinnum hvern da viw g- Loksins, loksins, loksins Eftir ríflega fimm ára hlé eru loksins harmoníkuþættir komnir aftur á dagskrá Ríkisútvarpsins. Harmoníkuþættir í út- varpinu hafa verið harmoníkuunnend- um mikið kappsmál og hefur verið reynt að beita ýmsum þrýstingi til að fá þá tekna upp að nýju og er það því mik- ið fagnaðarefni að harmoníkan skuli aftur hljóma á öldum ljósvakans, á gömlu „Gufunni". Það er hinn góð- kunni harmoníkuleikari Reynir Jónas- son sem sér um þættina og var fyrsti þátturinn, um 40 mínútna langur, send- ur út laugardaginn 13. maí kl. 18:00. Að sögn Reynis, verða þættimir viku- lega í sumar og hugsanlega lengur sem við verðum að vona, ef vel tekst til.Því vil ég leyfa mér að segja: HARMONÍKUUNNENDUR, TIL HAMINGJU. Þ.Þ. Reynir Jónasson MOLAR Laugardaginn 6. maí sl.hélt Harm- oníkufélag Reykjavíkur hátíð harm- oníkunnar Danshúsinu Glæsibæ. A efn- isskrá var leikur hljómsveita Harm- oníkufélags Reykjavíkur undir stjórn Karls Jónatanssonar, Léttra Tóna undir stjóm Grettis Bjömssonar og frá Félagi Harmoníkuunnenda við Eyjafjörð undir stjórn Atla Guðlaugssonar. Einnig komu fram smærri hópar og einleikarar. í fréttatilkynningu í dagblöðunum var tekið fram að útvarpað yrði beint frá tónleikunum á rás 1, sem ekki varð þó raunin en dagskráin var hljóðrituð af starfsmönnum Ríkisútvarpsins og verð- ur sennilega send út seinna. Húsfyllir var og lauk hátíðinni með dansleik. Þ.Þ. \ 20

x

Harmoníkan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.