Harmoníkan - 30.05.1995, Qupperneq 21
Landssambands-
formaðurinn hefur orðið
Nú á vordögum líta menn til baka til
nýliðins vetrar og eru ýmsir atburðir
sem vert er að staldra við. Harmoníku-
félag Héraðsbúa fékk til landsins harm-
oníkusnillinginn Tatu Kantomaa og hélt
hann tónleika víða um landið við verð-
skuldaða hrifningu áheyrenda. Héraðs-
búar eiga miklar þakkir skildar fyrir að
létta landsmönnum harðan og mann-
skæðan vetur með þessum hætti.
Harmoníkufélag Rangæinga hélt upp
á tíu ára afmæli sitt 29. apríl s.l. Vöru
þar mættir formenn a.m.k. 13 harm-
oníkufélaga auk stjómar S.H.Í.U. og rit-
stjórum Harmoníkunnar. Munum við
sem vomm viðstödd lengi minnast veg-
legrar afmælishátíðar og gestrisni
Rangæinga.
Þrjú harmoníkufélög hafa fengið
inngöngu í S.Í.H.U. frá síðustu áramót-
um, það em Félag Harmoníkuunnenda
Siglufirði, Nikkan Félag Harmoníkuá-
hugafólks í Vestmannaeyjum, og Harm-
oníkufélag Hornafjarðar og eru þessi
félög boðin velkomin í landssamband-
ið.
Eitt félag, Harmoníkuunnendur
Hveragerðis hefur hætt formlegri starf-
semi. í bréfi fullvissaði Gísli formaður
mig um að harmoníkumúsik mundi
áfram hljóma í Hveragerði. Þótt félagið
hætti starfsemi.
Sá gleðilegi áfangi hefur náðst að
harmonikuþáttur hefur aftur verið tek-
inn upp í ríkisútvarpinu eftir nokkurra
ára hlé. Eru umsjónarmanni þáttarins
Reyni Jónassyni færðar þakkir fyrir að
hafa tekist á hendur þetta mikilvæga
verkefni. Um leið og ég óska harm-
oníkuunnendum gleðilegs sumar hvet
ég ykkur til að sækja harmoníkumót og
aðrar þær samkomur þar sem harm-
oníkan kemur við sögu.
Með harmoníkukveðju
Asgeir S. Sigurðsson
formaður S.Í.H. U.
Harmoníkufélag Rangæinga
heilsar áratug
Með hliðsjón af því að 10 ár eru lið-
in frá því að Harmoníkufélag Rangæ-
inga var stofnað (14. apríl 1985) gekkst
félagið fyrir afmælisfagnaði í Hellubíó
þann 29. apríl nú í vor. Því miður náum
við ekki að skrifa greinarkom um félag-
ið eða sögu þess eins og ávallt er gert í
slíku tilviki fyrr en í haustblaðið (l.tbl.
október 1995-1996 10. árgang) vegna
þess að blaðið er þegar orðið stappað af
efni og er of skammur tími til útkomu
blaðsins.
H.H.
MOLAR
„Nordens Dragspel-kvinna!“ Kven-
harmoníkuleikari Norðurlanda - Komið
nú aftur allar konur sem emð undir 100
ára í Noregi, Danmörku og Svíþjóð,
stendur í auglýsingu frá harmoníku-
móti, Grafsnásstámman sem haldið
verður í Svíþjóð 4.- 6. ágúst. Þar á að
velja kvenkyns harmoníkuleikara Norð-
urlanda og eiga þátttakendur að senda
inn snældu með leik sínum, með þrem-
ur lögum í mismunandi stíl ásamt upp-
lýsingum um þátttakanda í bréfi. Velja á
úr þrjár konur sem eiga að keppa til úr-
slita á mótinu og em veitt peningaverð-
laun að upphæð 2.000 sænskar krónur.
Ekki er í auglýsingunni hvatt til þátt-
töku kvenna frá hinum Norðurlöndun-
um.
Þ.Þ.
Sænska landssambandið SDR lét
kjósa harmoníkuleikara ársins í fjórða
skiptið og að þessu sinni varð það
Sören Rydgren sem varð hlutskarpastur.
Hér er ekki verið að velja besta harm-
oníkuleikarann heldur er hér á ferðinni
einskonar vinsældakeppni eins og þegar
íslenskir unglingar velja bestu hljóm-
sveitina, besta söngvarann o.sv.fr.
Þ.Þ.
Sígild sönglög 2
Komið er út nýtt hefti af nótum, Sí-
gild sönglög 2. Eins og í fyrra heftinu
Sígild sönglög 1, er safnað saman vin-
sælum lögum og eru nótumar settar upp
á mjög aðgengilegan hátt, með bók-
stafahljómum, gítargripum og söngtext-
um, og em lögin tónsett í þeirri tónhæð
sem á að hæfa flestum til söngs. Sem
fyrr er það nótuútgáfan Nú sem gefur út
bókina og sem í fyrra hefti er það Gylfi
Garðarsson sem hefur veg og vanda af
henni, annaðist alla vinnslu og sá um
efnisval. Hér er góð viðbót við Sígild
sönglög 1 og að mínu mati lagavalið
ekki síðra, en mörg þeirra hafa ekki
verið fáanleg á nótum í mörg ár og sum
em að sjást á nótum í fyrsta sinn. I for-
mála skrifar Gylfi: For- eftir- og milli-
spilum er undantekningarlítið sleppt til
að spara pláss. Má segja að það sé eini
ókosturinn á bókinni, en það er svo
sjaldan að það á varla að geta talist frá-
gangssök því í bókinni eru rúmlega
100 kvæði og vísur, sjómannalög, ætt-
jarðarlög, ferða- og drykkjuvísur og
fleira góðgæti. Aftast í bókinni, sem er
137 blaðsíður, em heimildaskrá og efn-
isyfirlit, með heiti, upphöf, viðkvæði og
lykilorð, sem spannar Sígild sönglög 1
og 2.
Þ.Þ
Harmoníkur
til sölu
Bugari Armando Superfisa
4ra kóra, hnappa, sænsk grip 11+7,
4ra ára gömul, svört.
Hagström Skandia
Hnappaharmoníka, 4ra kóra, norsk
grip 5+1, gömul rauð.
Borsini Special Nostalgic, píanoborð
3ja ára, sem ný.
Asgeir S. Sigurðsson
s. 456 3485
Borsini Nostalgic Lars Ek model.
Hnappaharmoníka með sænskum gr.
Glæsilegt hljóðfæri, sérsmíðuð taska
fylgir, allt sem nýtt.
Upplýsingar gefur:
Jón Sigfús Bjarnason
Sími 4771159
21