Harmoníkan - 01.02.1998, Qupperneq 3
FRÆÐSLU, UPPLYSINGA OG
HEIMILDARIT FELAGA S.I.H.U.
OG ANNARRA AHUGAMANNA
STOFNAÐ 14. APRIL 1986
Verndum minningar
Ábyrgð:
Hilmar Hjartarson,
Ásbúð 17,
210 Garðabæ,
símar 565 6385 & 896 5440
Prentvinnsla: Prenttækni hf.
Blaðið kemur út þrisvar á ári.
í október, febrúar og maí.
Gíróreikningur nr. 61090-9.
Meðal innihalds blaðsins:
Heimsathygli á harmóníkunni.. 4
Ferðasaga H.F.Þ..........5-7
Ný gerð harmoníku..........8
Harmoníkusnillingur........9
Viðtalið: Friðrik Jónsson... 10-12
Harmoníkumótin............13
Hátíð harmoníkunar 1997
Saga F.H.U. Reykjavík
í 20 ár................15-19
Handrit fyrir næsta blað þurfa
að berast fyrir
1. maí 1998.
Auglýsingaverð:
1/1 síða kr. 9.500
1/2 síða kr. 6.500
1/4 síða kr. 3.500
1/8 síða kr. 2.500
AUGLYSIÐI
HARMONÍKUNN!
Þó nú sé nokkuð
liðið frá áramótum
langar mig í byrjun
að óska áskrifend-
um Harmoníkunnar
gleðilegs nýs árs
með þökk fyrir sam-
starf í liðinni tíð og
í von um góða sam-
vinnu á nýju ári.
Jafnframt vil ég
þakka þeim fjöl-
mörgu sem lýst hafa
þakklæti sínu vegna viðtalsins við
Jóhann Jósefsson frá Ormarslóni.
Það gladdi mitt hjarta og hvetur mig
áfram í starfi við blaðið. Erfitt er að
spá fram í tímann og árið sem
framundan er verðum við að leggja
vonir okkar við að geti orðið við-
burðarríkt í heimi harmoníkunnar
nær og fjær. Það er þó óskandi að
merkjanlegir verði nýir vaxtarbrodd-
ar á þessu ári í leik og starfi áhuga-
manna, félaga eða landssambands
hér á landi.
Væntanlega hafa mörg félög
fengist við að taka upp á myndband
einhverja þætti úr starfi sínu eða af
harmoníkuleikurum innan félag-
anna. Myndaskot geta þegar tími
líður orðið skemmtileg minning og
söguleg heimild. Landssamband
S.Í.H.U. hefur látið taka upp efni á
landsmótum í mörg ár þar sem koma
fram fulltrúar margra félaga. Upp-
tökurnar hafa ekki alltaf verið upp á
það besta en engu að síður góð vit-
neskja um liðnar stundir. Möguleik-
ar myndbandsins eru margir. Ég hef
séð erlend myndbönd þar sem tekin
er upp dagskrá með einum eða fleiri
harmoníkuleikurum að leika úti í
náttúrunni með fagurt landslag í
baksýn, þekktar byggingar eða
bóndabæi. Hugsum okkur íslenskt
landslag með sína sérstöðu og okkar
góðu harmoníkuleikara, myndbönd
sem gætu orðið góð söluvara, til á
myndbandaleigunni eða að hægt
væri að bjóða einhverri sjónvarp-
stöðinni til birtingar. Efnið þarf að
vera vandað, það er ljóst og helst ís-
lenskt. Þetta gæti verið leið til góðr-
ar jákvæðrar kynningar á harm-
oníkunni, heima og erlendis. Ekki
virðist skila sér á öldum ljósvakans
aukin útgáfa geisladiska með harm-
oníkuleik, ekki að neinu marki að
minnsta kosti.
Að lokum vil ég koma ábendingu
til ykkar lesenda. Ef þið vitið af ein-
hverjum manni eða konu sem líklegt
er að hafi frá einhverju markverðu
og áhugaverðu að segja þá látið mig
vita. Þá vil ég þakka áskrifendum
fyrir góð skil á áskriftagjaldinu. Ég
met skilvísina mikils og einnig það
að nýtt innheimtuform fari ekki illa í
ykkur. Þetta er síðast en ekki síst
viðurkenning fyrir útgáfu blaðsins.
Hilmar Hjartarson
Forsíðumyndir:
Tatu Kantomaa var kosinn vinsælasti harmóníkuleikarinn á Ransáter 1997, með verðlaunagripin.
Mynd: Ivar Toresen, Noregi.
Þeir eru allir Júgoslavneskir sígaunar þessir stórgóðu tónlistarmenn sem boðið var til afmælishátíðar
F.H.U. í Reykjavík er haldin var á Hótel Sögu 1997.
Frá vinstri: Jon Konstandin raf. bassi.Georg Mihalaehe Tambal aðeins tvö slík hljóðfæri eru til í
heiminum smíðuð af sama manninum. Djordje Bikie, raf gítar og síðan fyrrum heimsmeistari í
harmóníkuleik Lelo Nika
3