Harmoníkan - 01.02.1998, Blaðsíða 5

Harmoníkan - 01.02.1998, Blaðsíða 5
Ferðasaga H.F.Þ. Frá v. Aðalsteinn Isfjörð, Grímur frá Rauðá og Stefán í Hólkoti. Á félagsfundi í HFÞ s.l. vetur var rætt um skemmtiferð á komandi sumri. Yms- ar uppástungur komu fram, en ofaná varð 3ja daga ferð til Hornafjarðar 20.-22. júní. Hófst þegar undirbúningur ferðar- innar og var hann í höndum félagsstjórn- ar. Eflaust hefur mætt mest á formannin- um svo sem oft vill verða, því að í upp- hafi ferðar lýsti hann því yfir að hann hefði næstum því verið farinn yfir á taug- inni. En það fór - guði sé lof - betur en á horfðist. Það var dumbungsveður föstudags- morgun 20. júní, er ferðafélagar söfnuð- ust saman við Hlíðarveg í Kísilþorpinu við Mývatn og ekki hlýrra en svo að menn og konur kusu heldur að sitja í bíl- um sínum en standa úti, meðan beðið var eftir rútunni sem átti að flytja okkur. Fljótlega birtist 60 manna rúta Jóns Árna Sigfússonar og eigandinn sjálfur undir stýri og er auk heldur stjórnarmað- ur í HFÞ. Þegar gengið hafði verið frá farangri og allir sestir inn reyndust far- þegar, við nákvæma talningu vera 42. Var nú haldið af stað og ekið sem leið liggur austur yfir Námaskarð. Formaður félagsins Olafur Olgeirsson, sem bætti nú við sig titlinum fararstjóri og bar þann tit- il með sóma ferðina á enda, hélt nú dá- litla ræðu, sem þó voru nokkrar eyður í, þar sem hann kvaðst hafa ýmsu gleymt af því sem hann hefði þó verið búinn að hugsa sér að segja, en það kom nú smátt og smátt. Hvatti hann hagyrðinga þá sem í bílnum væru að láta óhikað til sín heyra og aðra þá sem eitthvað hefðu fram að færa. Kvaðst hann reiðubúinn til að yfír- gefa sæti fararstjóra, ef einhver vildi „stíga í pontu." Hagyrðingar fóru sér hægt í fyrstu, en það rættist úr þeim von bráðar. í Fjallakaffi í Möðrudal var áð og fengum við okkur hressingu. Sumir versluðu með merkta penna og virtist vera vaxandi keppni um það í ferðinni hver bætti flestum pennum í safnið. Það er venja í skemmtiferðum félags- ins að harmoníkuleikarar taki fram hljóð- færi og spili 2-3 lög á áningarstöðum í ferðinni. Hér voru það Stefán Þórisson og Ásgeir Stefánsson sem riðu á vaðið. Áfram var haldið og komið til Egils- staða um kl. 13. Borðað í Esso-skálanum og ýmsir versluðu í KHB og gerðu góð kaup. Ekki fengum við ofbirtu í augun af sól meðan ekið var suður Velli og Skriðdal. Veður var að mestu þurrt en lágskýjað. Vísur fóru nú að flögra um bílinn, bæði frá framleiðendum og einnig þeim sem leita þurftu í annarra smiðju. Ein og ein skrýtla rifjast líka upp og var látin fjúka. Afleiðingar urðu þær að fararstjóri sat lengst af í góðu skjóli sambýliskonu sinnar aftur í bfl. Eg sem þessar línur rita, hafði fyrir sessunaut aldursforseta ferðarinnar, hinn síunga Friðrik Jónsson frá Halldórsstöð- um, tæplega 82ja ára. Þótti mér það góð- ur félagsskapur. Á Djúpavogi var ofurlítil viðstaða. Það var gott að rétta úr sér, komast í sjoppu og virða fyrir sér umhverfið. Veðrið var hið sama, lágskýjað og þoka á fjöllum. Stutt frá sjoppunni var gamalt timburhús sem vakti forvitni okkar. Reyndist það vera Langabúð, reist úr bjálkum á öndverðri síðustu öld. Þar inni voru trésmiðir að verki og bar hand- bragðið þeim gott vitni. Buðu þeir okkur að ganga um húsið og skoða það. Sáum við þar m.a. Ey- steinsstofu Jónssonar ráðherra. Það var hvasst á Almannaskarði þegar við stigum þar út, en útsýnið var stórkostlegt, þrátt fyrir þokuna. „Sá sem ekki hefur séð yfir Austur-Skaftafellssýslu af Almanna- skarði á björtum sumarmorgni - hann hefur ekki séð ísland." (Stefán Stefáns- son skólameistari). Það er bratt niður skarðið Hornarfjarð- armegin og manni verður hugsað til þess hvernig sé að fara þar um í hvassviðri og hálku. En nú eru aðeins 11 km til Horna- fjarðar og innan lítillar stundar heilsar okkur hinn vinalegi kaupstaður Höfn. - Höfn 100 ára - Fagurt blómaskrúð mynd- ar þessi orð þar sem rennt er í bæinn. Á rólegum stað í útjaðri bæjarins stendur gistihúsið Ásgarður að Ránarslóð 3. Þangað er nú stefnt, því þetta verður náttstaður okkar næstu 2 nætur. Far- angrinum er kippt út úr lestum bflsins og borinn inn. Þar hittum við húsvörðinn, ungan mann og hressilegan. „Gerið svo vel, það eru öll herbergin eins," segir hann og leggur lyklana á borðið. Við tökum við fegins hendi og prílum upp á aðra hæð. Herbergin reynast hin vistlegustu með handlaug og sturtu hvert og eitt. Þarna er líka rúmgóð setustofa með sjónvarpi. Þetta er aðeins gististað- ur svo við þurfum að fara á Hótel Höfn til að fá mat og kaffi, en það er engum erfiðleikum bundið. Ekki höfðum við hótelfæði þetta fyrsta kvöld, en fengum okkur hressingargöngu um bæinn og leit- uðum uppi sjoppur og aðra minniháttar veitingastaði. Varð okkur furðu vel ágengt í þeim efnum. Um kvöldið eiga menn sig sjálfir. Harmoníkuleikarar draga fram hljóðfæri sín og taka smáæfingu í setustofunni og þá rennum við hinir óbreyttu á hljóðið. Þarna var mættur Friðjón Hallgrímsson formaður Fél. Harmoníkuunnenda í Reykjavík og lék á litla harmoníku af mikilli snilld. Heiðursmaðurinn Friðrik okkar Jónsson greip líka í nikku og sýndi 5

x

Harmoníkan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.