Harmoníkan - 01.02.1998, Síða 6

Harmoníkan - 01.02.1998, Síða 6
glöggt að hann hafði ekki týnt öllu niður. Ýmsum þótti við hæfi að taka nokkur dansspor við þessar aðstæður. Við þetta undum við okkur fram yfir miðnætti og hafði þá sumum þeirra næt- urgesta sem ekki tilheyrðu okkar hópi lítt orðið svefnsamt. Aður en gengið var til náða kynnti Olafur formaður dagskrá laugardagsins. Morgunverður uppi á Hóteli kl. 9 og skoðunarferð með leiðsögn kl. 11 f. há- degi. Laugardagur 21. júní. Það var girni- legur morgunverður sem heið okkar á Hótelinu og tóku menn hraustlega til matar síns. Síðan var farið að hugsa til ferðar. Við ókum sem leið liggur framhjá Seljavöllum, stórbýli Egils Jónssonar al- þingismanns og um Nesjahverfi. Þar er Félagsheimilið Mánagarður, þar sem dansleikur átti að vera um kvöldið. Við afleggjarann að Miðfelli kom í bílinn leiðsögumaður okkar Þrúðmar Sigurðsson bóndi. Sagði Jón Arni bíl- stjóri okkur að þessu maður vissi alla skapaða hluti og skyldum við vera óhrædd að spyrja hann spjörunum úr, en reyndin varð sú að Þrúðmar hafði svo margt að segja okkur og sýna, að við höfðum varla undan að innbyrða allan þann fróðleik, svo lítið varð um spurn- ingar. A Brunnavöllum býr Bjöm Sigfús- son formaður Harmoníkufélags Horna- fjarðar, léttur og skemmtilegur náungi. Við sóttum hann heim í hlað og höfðum hann með okkur í ferðina. Var nú ekið um Mýrar og Suðursveit, framhjá Hala bæ Steinþórs Þórðarsonar og þeirra bræðra, allt að Jökulsárlóni, u.þ.b. 80 km leið. Þarna skammt frá vatnsbakkanum er hið myndarlegasta þjónustu- og veitingahús með fjórum burstum, hjólabáturinn Jaki albúinn til siglinga og fleiri hjóla- og vélbátar til vara. Allmargir fara í siglingu með Jaka. Ferðin tekur 45 mín. og kostar 1000 kr. Það er stórkostlegt að sigla um lónið og virða fyrir sér jakana stóra og smáa, suma alveg tröllaukna. Nú vantar sólskin svo verulega góðar myndir náist. Hverj- um farþega er fengið björgunarvesti til öryggis, en veður er kyrrt og gott „í sjó- inn.“ Ohætt mun að fullyrða að það voru þakklátir farþegar sem stigu frá borði þegar Jaki hafði tekið land og ekið að landgöngubrúnni, tilbúinn í siglingu með næsta hóp. Gott er að fá sér hressingu hjá Ferðaþjónustunni Jökulsárlóni. Uti á ver- öndinni er stiginn dans við undirleik Að- alsteins ísfjörð og Gríms á Rauðá. Nú er ekið til Hafnar og enn er Þrúð- mar að fræða okkur um það sem fyrir augu ber og einnig hitt sem í þoku var hulið, því margt býr í þokunni. Næst lá fyrir að fá sér í svanginn og síðan fórum við nokkrir í Mánagarð til að koma hljóðfærunum fyrir og undirbúa dansleikinn. Nokkrir vafningar urðu við að finna húsvörðinn, en það hafðist þó að lokum. Ekki leið á löngu þar til hann fékk svo mikið dálæti á formanni okkar - sem var nú reyndar hinn traustasti - að hann afhenti honum lyklakippu hússins, sýndi honum hvar ætti að kveikja og slökkva, kvaddi og fór. Þetta þótti okkur nú hálf kyndugt en allt bjargaðist þetta, þótt okkur yrði taf- samt um kvöldið að finna rétta lykla að innihurðum hússins. Þegar þessu var lok- ið var haldið aftur „heim" og farið í sinn skásta skrúða, áður en farið yrði til kvöldverðar á Hótelinu. Þar beið okkar ilmandi sjávarréttahlaðborð. Var þar ým- islegt á boðstólum, sem sumir höfðu aldrei áður upp í sig látið, s.s. skötuselur. En allt var þetta merkt, svo menn vissu nú hvað þeir hefðu á milli tannanna. Eft- ir máltíðina var ekið í Mánagarð á dans- leik Þingeyinga og Hornfirðinga, því ráð- gert hafði verið að heimamenn sæu um hljómlist að nokkru leyti, en þar sem meirihluti Hafnarbúa og allir harmoniku- leikarar þeirra - utan einn - voru á ættar- móti vestur á Kirkjubæjarklaustri, þá máttu okkar menn halda hljóðfærum heitum dansleikinn á enda. Var þetta því heldur fámennur hópur sem þarna kom saman. Fyrir einhvern misskilning komst það inn í kollinn á einum hinna innfæddu, að Þingeyingar neyttu ekki víns, og færði hann þetta í tal við mig. Ekki hirti ég um að leiðrétta það. Um kl. 5 voru allir komnir til gistingar í Asgarð og þar sem mannskapurinn var svo vel á sig kominn, var ákveðið að taka sunnudaginn snemma og aka um Suður- firði á heimleiðinni. Sunnudaginn 22. júní kl. 9 var hópur- inn mættur til síðustu máltíðar á Hótel- inu. Ekki var hægt að segja að menn væru útsofnir, en allhressir samt og hresstust enn frekar við góðan morgun- verð. Þegar allir höfðu snætt lyst sína, var okkur ekkert að vanbúnaði að halda heim á leið. Við kvöddum Björn Sigfússon með kærleikum og lýsti Óli formaður því yfir að reynt yrði að taka á móti og greiða götu þeirra Hornfirðinga, ef þeir hefðu áhuga á að líta á lífið í Þingeyjarsýslu. Skammt frá Hvalnesi undir hrika- bröttu Víkurfjalli var reistur torfbær - gervibær - þegar skáldsaga Halldórs Lax- ness Paradísarheimt var kvikmynduð. Sjálfsagt þótti að líta á þetta fyrirbæri sem hefur nú mátt muna fífd sinn fegri. Næsti áfangastaður var Hótel Bláfell á Breiðdalsvík og skyldi þar snæddur há- degisverður. A eftir var spilað fyrir gesti og heimamenn. Nú var ekið til Stöðvarfjarðar til Petru Sveinsdóttur í Sunnuhlíð. Petra er löngu landsfræg orðin fyrir steinasafn sitt, sem er bæði innanhúss og einnig úti í garðin- um. Líka er hún með uppstoppaða fugla og allskonar minjagripi til sölu. Varð maður alveg dolfallinn að líta öll þessi undur, sem ekki verður með orðum lýst. Þarna hefði ekki veitt af 2-3 klukkutím- um til skoðunar, en til þess var ekki tími að sinni. I sunnanverðum Reyðarfirði heilsaði Frá v. Friðrik Jónsson og Jón Arni Sigfússon. 6

x

Harmoníkan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Harmoníkan
https://timarit.is/publication/1087

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.