Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 17

Harmonikublaðið - 01.09.2012, Blaðsíða 17
í Heimskautagerdinu hefði líka unnið á Austurlandi, fyrir einhverjum áratugum og auð- vitað urðu við strax viss um að þeir hefðu verið aðal töffararnir þar þá. Á hógværð þekkist Þingeyingur þó hann viti hvað hann syngur og geti allt sem enginn getur öðrum mönnum langtum betur. Minningin er mæt og góð mættum við svo heyra Hvort eru hérna einhver fljóð sem ennþá muna Geira. Það yrði sjálfsagt undra kraftur ef einhver daman færi á stjá að hitta Grím og Geira aftur og gæti borið kennsl á þá. Fía Síðast var stoppað í Ásbyrgi og þar var að sjálfsögðu tekið í harmonikurnar, svo bergmálaði í hóffari Sleipnis. Sigurður Ólafsson og Hólmfríður Bjartmarsdóttir tóku saman. Dansad og spilad íÁsbyrgi Inni á Hótel Norðurljós Gott væri að hafa góðan bar svo geti menn dottið íða og hentugt ráð að hafa þar hengirúm fyrir þá sem skríða. Fía Um morguninn risu nokkrir félagar árla úrrekkju oghugðustsækja hljóðfærin í Miklagarð. Geiri fór á fætur við fyrsta hanagal. Að gefa að því gætur sem geymt var uppi í sal. En víst er verri saga ef vantar lykilinn að norpa úti og naga, naga þröskuldinn. Síðan var haldið heimleiðis, ekin ströndin og stansað á Þórshöfn og Raufarhöfn. Þar skoðuðum við Heimskautagerðið og fengum ágætan hádegisverð á Hótel Norðurljósum. Ekki man ég á hvorum staðnum það varsem Sigrfður orti eftirfarandi um Smára Kárason og Dag Jóhannesson gjaldkera af gefnu tilefni. Smári nú hrópaði hastur í hættu er gjaldkerinn Daggi í falsinu fastur farið að hleyp'onum inn. Á heimleið sagði Ásgeir Stefánsson ýtumannasögur af sjálfum sér, afeinstakri hógværðogGrímurVilhjálmssontókfram að hann

x

Harmonikublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Harmonikublaðið
https://timarit.is/publication/1088

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.