Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.2008, Blaðsíða 22
22
Fréttir / Fimmtudagur 22. maí 2008
Skóladagur og árshátíð Grunnskólans:
Fallegt handverk og prúðbúnir
nemendur
Skóladagur var haldinn hátíðlegur á
laugardag og hófst með danssýn-
ingu nemenda í íþróttamiðstöðinni.
Eftir hádegi voru sýningar með
verkum nemenda bæði í Hamars-
skóla og Bamaskóla auk þess sem
gestir gátu sest niður og fengið sér
kaffi og kökur en foreldrar 5. og 6.
bekkjar stóðu fyrir kaffisölu í
skólahúsunum. Það ríkti því nota-
leg kaffihúsastemmning í skólunum
auk þess sem gestum bauðst að
skoða fallegt handverk sem nem-
endur hafa unnið í vetur. Auk þess
voru ýmsar uppákomur í gangi og
skemmtilegt þegar nemendur tóku
sig til og sungu fyrir gesti í anddyri
skólans.
Nemendur í sínu fínasta
pússi
Árshátíð unglingastigs Grunn-
skólans var haldin í Höllinni á
föstudag en dagana áður höfðu
Öðruvísi dagar staðið yfir í skól-
anum. Sannkölluð hátíðarstemmn-
ing ríkti í salnum þar sem nem-
endur voru mættir í sínu fínasta
pússi ásamt kennurum og starfs-
fólki skólans. Sannarlega flottir
krakkar sem eiga framtíðina fyrir
sér.
Að loknu borðhaldi með veislumat
frá Einsa kalda hófst skemmti-
dagskrá sem einkenndist öðru frem-
ur af afhendingu verðlauna og
viðurkenninga en skemmtiatriðum.
Auk hefðbundinna atriða eins og
þegar tilkynnt var um val á mesta
krúttinu, mestu ljóskunni, besta
námsmanninum o.fl. voru einnig
veittar viðurkenningar fyrir afrek
sem unnin voru á Öðruvísi dögum.
Tónlistaratriði voru reyndar flutt á
milli þess sem viðurkenningar og
verðlaun voru afhent og stóðu ungu
tónlistarmennirnir sig vel.
Leiksýning sem leiklistarhópurinn
vann að á Öðruvísi dögum var sýnd
fyrr um daginn en hún hefur hingað
til verið hluti af skemmtidagskrá
árshátíðar. Sýningin mun hafa tek-
ist vel og var efni hennar tengt eld-
gosinu á Heimaey.
Árshátíðin í Höllinni á laugardag
var sú fyrsta síðan Hamarskóli og
Bamaskóli voru sameinaðir undir
einn gmnnskóla. I raun má segja að
þetta hafi verið uppskemhátíð eftir
veturinn og með talsvert öðru sniði
en verið hefur undanfarin ár. Að
lokinni dagskrá var dansað og eftir
því sem næst verður komist voru
allir grunnskólakrakkarnir til
fyrirmyndar.--------------------
HENNÝ Dröfn og Kristján voru Ungfrú og Herra GRV 2008.
SELMA Jónsdóttir tók lagið.
INN á milli afhendingar viðurkenninga var skotið inn tónlistaratriðum og stóðu hljómsveitirnar sig vel.
ÞAU stóðu uppi með hina ýmsu titla.
KYNNARNIR, Kristinn Pálsson og Elín Sólborg stóðu sig vel.
SUMARSTÚLKUKEPPNI Vestmannaeyja 2008 fer fram í Höllinni þann 21. júní nk. Alls munu 15 stúlkur taka þátt í ár. Þær eru: Hólmfríður Hartmannsdóttir, Elísabet
Þorvaldsdóttir, Rakel Ýr ívarsdóttir, Sara Sjöfn Grettisdóttir, Björg Brynjarsdóttir, Sara Dögg Guðjónsdóttir, Guðrún Benónýsdóttir, Eydís Halldórsdóttir, Kristín Rannveig Jónsdóttir,
Jóhanna Björk Gylfadóttir, Thelma Rut Grímsdóttir, Erna Valtýsdóttir, Hafdís Guðnadóttir, Guðlaug Sigríður Gunnarsdóttir og Svava Kristín Grétarsdóttir. Undirbúningur keppninnar
er hafinn og mun fara á fullt á allra næstu dögum. Keppnin mun verða með svipuðu sniði og undanfarin ár, þar sem stelpurnar munu koma fram í opnunaratriði, tískusýningum og
kjólainnkomu auk þess sem ýmis önnur skemmtiatriði verða í boði. Veisluþjónusta Einsa kalda mun sjá um matinn og kynnir kvöldsins er hinn eini sanni Bessi hressi sem kemur frá
Selfossi og hefur mikla reynslu, var meðal annars kynnir á ungfrú Suðurland 2008. Framkvæmdastjóri er Hjördís E Guðlaugsdóttir og Ijósmyndari keppninnar er Haraldur Ari Karlsson