Fréttir - Eyjafréttir - 22.05.2008, Blaðsíða 23
Fréttir / Fimmtudagur 22. maí 2008
17
Knattspyrna mfl. karla - Pór □ - ÍBV 2 - 6 stig eftir tvær umferðir
Tíu Eyjamenn stóðust raunina
Á sunnudaginn sótti ÍB V Þór heim á
Akureyri. Bæði lið unnu fyrstu leiki
sína í deildinni og því var við hörku
viðureign að búast.
Jafnræði var með liðunum í fyrri
hálfleik en það voru þó Eyjamenn
sem voru hættulegri í sókninni. Á
28. mínútu gerðu Þórsarar slæm
mistök í vöminni og það var Atli
Heimisson sem færði sér þau í nyt
og skoraði auðveldlega fram hjá
Árna Skaftasyni, markverði Þórs.
Atli fékk svo skömmu síðar að líta
rauða spjaldið fyrir brot á Árna
markverði. Þar með voru Eyjamenn
orðnir tíu en vom samt sem áður
mun hættulegri fram á við. Þessi
sóknarþungi skilaði sér þegar Andri
Olafsson skoraði með skalla eftir
aukaspymu. I seinni hálfleik bættu
Þórsarar í sóknina með nokkrum
skiptingum og skoruðu tvö mörk
sem vom bæði dæmd af. Þórsarar
voru sterkari aðilinn í seinni hálfleik
en það voru tíu baráttuglaðir
Eyjamenn sem fóm með sigur af
hólmi.
Leikið á gervigrasi
Leikurinn fór fram í Boganum,
gervigrashöll þeirra Akureyringa
þar sem grasvellir á Akureyri eru
ekki tilbúnir. Það getur reynst þeim
liðum, sem ekki æfa á gervigrasi,
svolítill hausverkur að spila á því.
Lið eins og Leiknir og Stjaman hafa
yfirhöndina á heimavelli á móti
liðum sem ekki æfa á gervigrasi.
Þetta er ósanngjarnt og það sama á
gilda um alla, það eiga öll lið að
spila á grasvöllum.
Eyjamenn stilltu upp óbreyttu liði
gegn Þórsumm og komu ákveðnir til
leiks. Jafnræði var þó með liðinum
en Eyjamenn voru þó mun ákveðn-
ari og markvissari í sínum sóknar-
aðgerðum. Það var þó ekki fyrr en á
28 mínútu sem Eyjamenn brutu
ísinn. Það var reynsluboltinn Láms
Orri Sigurðsson sem gerði hroðaleg
mistök þegar hann ætlaði að senda
boltann aftur á markmann Þórs.
Sendingin reyndist þó vera heldur
máttlaus og Atli Heimisson komst
inn í hana og afgreiddi boltann auð-
veldlega framhjá Árna Skaftasyni.
Atli Heimisson var mjög sprækur í
leiknum og kannski heldur mikið en
Atli fékk að líta rauða spjaldið fyrir
glæfralegt brot á Áma markverði
Þórs sem fór út af meiddur tíu mín-
útum seinna. Tíu Eyjamenn áttu því
mikið verk fyrir höndum en þeir létu
ekki rauða spjaldið á sig fá og héldu
ótrauðir áfram að sækja og voru
hættulegir.
Á 38. mínútu fengu Eyjamenn
aukaspymu rétt fyrir utan teig sem
Matt Gamer spyrnti fyrir markið.
Þar var Andri Olafsson mættur og
skallaði boltann í netið. Staðan 2:0
fyrir tíu Eyjamenn í hálfleik.
Seinni hálfleikurinn átti eftir að
reynast Eyjamönnum erfíður. Þórs-
arar skiptu tveimur vamarsinnuðum
leikmönnum út af fyrir tvo sóknar-
leikmenn. Við þetta breyttist
leikurinn til muna og Þórsarar tóku
öll völd á vellinum. Á 56. mínútu
skoruðu Þórsarar en mark Hreins
Hringsonar, sem lítið hafði farið
fyrir, var dæmt af réttilega vegna
rangstöðu. Þórsarar sóttu linnulaust
þegar líða fór á seinni hálfleikinn og
skoruðu á 78. mínútu en þar var að
verki Ibra Jagne.
Það mark var hins vegar ranglega
dæmt af og voru Þórsarar langt frá
því að vera sáttir við slakan dómara
leiksins, Frosta Viðar Gunnarsson.
Þórsarar gáfust hins vegar ekki upp
og 79. mínútu átti Sigurður Marfnó
góðan skalla að marki Eyjamanna
en Albert sá við Þórsurum eins og
svo oft áður í leiknum en hann átti
stórleik í marki Eyjamanna.
Þórsarar sóttu lokamínútumar en
allt kom fyrir ekki, Eyjamenn fóru
með sigur af hólmi og hafa unnið
tvo fyrstu leiki sína í deildinni og
líta nokkuð sannfærandi út.
Mæta Stjörnunni á föstu-
daginn
Næsti leikur ÍBV er á móti Stjörn-
unni á heimavelli á föstudaginn
næstkomandi. Eyjamenn eiga þó við
framherjavandamál að stríða því
Atli Heimisson verður í leikbanni
og ekki er víst hvort hinn framherji
liðsins verði tilbúinn fyrir leikinn.
Leikurinn er hins vegar gríðarlega
mikilvægur því Stjarnan gæti farið
að berjast við IBV um sæti í efstu
deild í lok sumars. Því verða þjálf-
arar Eyjamanna að koma með lausn
og það fljótt.
Hvað segja þjálfarar Víkings og Stjörnunnar um sumarið?
Hlakka til að koma til Eyja
Stuðningsmannafélagið hélt fund fyrir mót sem var vel sóttur.
Knattspyrna
Leikmanna-
hópurinn
2008
Albert Sævarsson - Markmaður
Elías Fannar Stefnisson - Mark-
maður
Páll Þorvaldur Hjarðar - Vamar-
maður
Arnór Ólafsson - Vamarmaður
Matt Garner - Vamarmaður
Anton Bjamason - Varnar/
Miðjumaður
Steinar Emir Knútsson - Vamar-
maður
Þórarinn Valdimarsson - Vamar/-
Miðjumaður
Bjami Hólm Aðalsteinsson - Varn-
armaður
Andrew Mwesigwa - Vamar/-
Miðjumaður
Yngvi Magnús Borgþórsson -
Varnar/Miðjumaður
Kristinn Baldursson - Vamarmaður
Birkir Hlynsson - Vamar/Miðju/-
Sóknarmaður
Andri Ólafsson - Vamar/Miðju-
maður
Bjami Rúnar Einarsson - Miðju-
maður
Eiður Aron Sigurbjörnsson -
Miðjumaður
Guðjón Ólafsson - Miðjumaður
Egill Jóhannsson - Miðju/-
Sóknarmaður
Gauti Þorvarðarson - Miðju/-
Sóknarmaður
Pétur Runólfsson - Miðjumaður
Italo Maciel - Miðjumaður
Augustine Nsumba - Miðjumaður
Ingi Rafn Ingibergsson -
M i ðj u/S óknarmaður
Alexandre Cerdeira - Sóknarmaður
Atli Heimisson - Sóknarmaður
Jesper Tollefsen þjálfari Víkings
tók við liðinu af Magnúsi Gylfasyni
sem hætti eftir fallið úr úrvalsdeild-
inni. Jesper er einn menntaðasti
þjálfari landsins enda með UEFA
Pro þjálfaragráðu. Hann var yfir-
þjálfari unglingastarfs AGF og
einnig aðstoðarþjálfari hjá aðalliði
félagsins. Hann kom til landsins
um mitt tímabil í fyrra og tók við
Leikni sem var í bullandi fallbar-
áttu í I. deildinni.
Hann náði að rétta skútuna við og
stýrði Leikni í sjötta sætið sem er
besti árangur sem liðið hefur náð.
Nú er hann hins vegar kominn við
stjómvölinn hjá Víkingum og
hlakkar til sumarsins.
„Ég hlakka mikið til sumarsins og
ég held að þetta verði áhugaverð
áskorun fyrir mig og mitt lið.“
Jesper telur fullsnemmt að fara að
segja til um hvaða lið verði í topp-
baráttunni en hann telur Eyjamenn
þó eiga góða möguleika. „Mér
finnst mörg lið vera í sama styrk-
leikaflokki í þessari deild en það
em kannski tvö til þrjú lið sem
munu berjast um að komast upp og
ÍBV er eitt þeirra.“
Jesper segir mikinn metnað vera
fyrir því að komast upp hjá sínu
liði og hann vonar að svo verði.
„Ég vona það besta, ég er með
góðan hóp af leikmönnum sem allir
eru tilbúnir að gera sitt besta."
Jesper hlakkar einnig mikið til að
koma til Eyja og spila á Hásteins-
velli. „Ég hlakka mikið til að koma
til Eyja, sérstaklega af því að ég
vann þar með Leikni í fyrra en
þetta er góður heimavöllur og
þangað er erfitt að sækja stig.“
Bjarni Jóhannsson var ráðinn
þjálfari Stjörnunnar eftir síðasta
tímabil. Bjarni er mjög reyndur
þjálfari og var m.a. aðstoðarmaður
Eyjólfs Sverrissonar hjá lands-
liðinu. Hann hefur þjálfað víða,
gerði Fylki að bikarmeisturum og
hefur einnig stýrt Grindavík og
Breiðabliki. Hátindur Bjarna á
þjálfaraferlinum var þegar hann
stýrði ÍBV 1997-1999.
Fyrri tvö árin gerði hann liðið að
íslandsmeisturum og þriðja árið
enduðu þeir í öðru sæti deildar-
innnar. Éyrri tvö árin komst IBV
einnig í bikarúrslit og vann bikar-
inn í síðara skiptið.
Bjarni mun vafalaust gera atlögu
að toppbaráttunni í sumar en
hvernig líst honum á stöðuna fyrir
sumarið. „Mér líst vel á þetta, ég
tel að það séu mörg lið jöfn í þess-
ari deild en það eru þessi rótgrónu
lið eins og Víkingur og ÍBV sem
munu verða í toppbaráttunni í
sumar. Það kom mér þó svolítið á
óvart hversu neðarlega Akureyrar-
liðunum tveimur var spáð því ég
held að þau eigi eftir að standa í
stóru liðunum í sumar.“
Bjarni segir að Stjarnan sé félag á
uppleið og mikill metnaður sé fyrir
velgengni hjá félaginu. „Menn eru
að reyna að byggja upp lið sem
getur farið alla leið í efstu deild.
Við höfum gjörbreytt okkar leik-
mannahóp og höfum fengið gríðar-
legan liðsstyrk í Bjarna Þórði og
Tryggva sem báðir hafa reynslu af
efstu deildinni. Við erum þó með
ungt lið sem á bara eftir að verða
betra."
Bjami hlakkar mikið til að koma
til Eyja og segist verða með annan
fótinn í Vestmannaeyjum í allt
sumar. „Ég verð meira og minna í
Eyjum í sumar. Ég kem með liðið
að keppa, fylgi syninum á Shell-
mót, síðan verður haldið upp á tíu
ára afmæli íslandsmeistaraliðsins
frá 1998 og svo mun ég reyna að
komast á þjóðhátíð. Þannig að ef
einhver er með lausa íbúð þá má
hann slá á þráðinn til mín,“ segir
Bjarni á léttu nótunum.
Iþróttir
Annar
flokkur
byrjar illa
Um helgina lék 2. Ilokkur karla í
knattspyrnu tvo leiki gegn
Hetti/Spymi á Egilstöðum. Til að
spara ferðakostnað var ákveðið að
leika báða leikina í riðlinum um
sömu helgi.
Fyrri leikurinn var leikinn á
laugardagskvöldið. Þeim leik
tapaði flokkurinn með einu marki
2:1. Mark Eyjamanna skoraði
Guðjón Ólafsson.
Seinni leikurinn var leikinn á
sunnudeginum og þá komu Eyja-
menn aðeins ákveðnari til leiks en
slök vöm strákanna leiddi til þess
að leikurinn endaði með jafntefli
2:2.
Þessum slæmu úrslitum má
kannski kenna um manneklu.
Með flokknum fóru aðeins tólf
leikmenn en það vantaði fjóra
menn til að ná heilu liði.
í fyrri leiknum meiddist síðan
Njáll Aron og því spiluðu Eyja-
menn seinni leikinn án þess að
hafa varamenn. Þetla eru gríðar-
lega slæm úrslit fyrir flokkinn en
þeir mega ekki við öðru tapi ef
þeir ætla sér að komast upp úr C-
riðli í lok sumars.
Gerum okkar besta
Fréttir tóku fyrirliða liðsins,
Sigurð Kristjánsson, tali eftir leik-
ina en hann er þó bjartsýnn fyrir
sumarið. „Sumarið leggst bara
mjög vel í mig. Við erum með
flotlan hóp og það er góður andi
innan liðsins.“
Flokkurinn hefur ekki æft vel í
vetur og svo telur Sigurður að
fleiri leikir hefðu kannski hjálpað
hópnum að berja sig saman. „Við
spiluðum ekki nógu marga leiki,
svo er mjög erfitt að æfa t Vest-
mannaeyjum á veturna eins og
flestir vita. Þrátt fyrir það hefur
veturinn verið ágætur."
Lengi hefur 2. flokkur karla
verið gagnrýndur fyrir slakan
árangur en hefur Sigurður ein-
hverjar áhyggjur af þessum gagn-
rýnisröddum.
„Við hlustum ekkert á þetta, við
gerum okkar besta og það er nóg
fyrir okkur. Við finnum ekkert
fyrir meiri pressu á okkur núna en
á síðustu árum.” Að lokum viljum
við vita hvar Sigurður telur
flokkinn enda í lok sumars. Við
vinnum riðilinn og vinnum
bikarinn líka,“ segir Sigurður á
léttu nótunum.
Framundan
Föstudagur 23. maí
Kl. 16.00 ÍBV - ÍA mætast í
kvennaboltanum.
19.00 ÍBV-Stjama mætast í karla-
boltanum.