Fréttir - Eyjafréttir - 03.07.2008, Síða 4
4
Fréttir / Fimmtudagur 3. júlí 2008
Bloggh«lmar
Ragna Birgisdóttir:
Búkolla baular
Shellmót á lokadegi
Það hefur verið
frekar lítill tími til
að skrifa að undan-
förnu, enda telst
mér til að ég hafi
róið 5 sinnum
undanfarna 8
dagana og fiskað
ca. 7 til 8 tonn.
Langar að óska ÍBV strákunum til
hamingju með sigurinn á móti
Njarðvík, en það verður að
viðurkennast eins og er, að það var
sanngjarnt þegar þeir jöfnuðu
leikinn, en gerði sigurinn þeim
meira sætari að gera sigurmark í
lok leiksins. Liðið er greinilega
mun sterkara en á síðasta ári, en
virðist vera að upplifa svolítið erfitt
tímabil núna, eins og um sama
leytið í fyrra, en sem betur fer erum
við með sterkari einstaklinga heldur
en þá, sem geta klárað leikinn.
Margir hafa haft áhyggjur af því
að undanförnu að lítið hafi sést til
lundans, bæði í fjöllunum og á
sjónum, en þetta er ósköp eðlilegt
ástand og eftir að ég rak augun í
það í dag að mikið af fugli var
komið á sjóinn við Sæfjall, án þess
að nokkuð flug væri í fjöllunum, þá
fór ég sjónauka-rúnt kl. 10 í kvöld
og var þá t.d. Miðklettur orðinn
þakinn af lunda frá toppi og niður,
svo nú kætast lundaveiðimenn,
enda aðeins 12 dagar í að veiðar
megi hefjast.
Það vakti athygli mína, forsíðu-
greinin í Fréttum á fimmtudaginn,
þar sem íhaldsmenn gráta sáran yfir
því að nýja ferjan komi hugsanlega
ekki fyrr en síðla árs 2011 og get
ég svo sem að vissu leyti tekið
undir það, en það merkilega samt
að mínu mati, er sú staðreynd að
fyrir síðustu bæjarstjómarkosningar
töluðu íhaldsmenn mikið um það,
hversu gott það væri fyrir eyjamenn
að hafa Sjálfstæðisflokkinn sem
ráðandi afl, bæði í ríkisstjóm og
bæjarstjóm, vegna þess að það
gerði okkur eyjamönnum svo miklu
auðveldara að ná okkar málum í
gegn. Eins og reynslan hefur nú
sýnt okkur, þá er svo alls ekki og
vonandi lærir fólk eitthvað af
atburðum síðustu mánaða og ára.
Shellmótinu lýkur í kvöld.Það er
alltaf jafn gaman að
fylgjast með þess-
um strákum og
gleðinni sem er á
hverju andliti þrátt
fyrir misjafnt gengi.
Nú eru línur famar
að skýrast og
seinnipartinn í dag
fara fram lokaleikir mótsins. Síðan
verðlaunaafhending og grillveisla.
Við hjónakornin höfum verið í
sveit þeirri sem sér um grillið.
Ógleymanlegar stundir og ýmis
tilsvör hafa hrotið af vörum
drengjanna þegar þeir eru að bíða
eftir pulsunni sinni. Ég ætla fá eina
allsbera. Með öllu takk og passa að
sinnepið sé ofan á því annars er
hún óæt.
Ég ætla að fá sama og áðan (ég
var kannski búin að afgreiða 500
peyja í millitíðinni). Má ég bara fá
brauð? Hvað eru margar á mann?
Af hverju eruð þið ekki með steikt-
an? Það gefur náttúrulega auga leið
að það er ekki hægt að hafa steikt-
an og hráan lauk þegar mörg
þúsund pylsur eru afgreiddar.
Aðeins er sinnep, tómatssósa og
remúlaði í boði. Þeir eru yfirhöfuð
kurteisir þessi grey. Frekar að full-
orðna fólkið sé með dónaskap. En
sem sagt framundan er hörkutörn í
pulsuafgreiðslu. Þetta er svooooo
gaman.
Georg Eiður Arnarson:
ÍBV, lundinn ofl.
Eyjamaður vlkunnar:
Skemmtilegast að vinna leiki
Matgazðingur vikunnar:
Pakkir:
Þessi fríði hópur er
allur óþekktur og hafa
nefnd við okkur
nöfn. Meginþorrinn er
ekki kominn fram enn og
tilefni myndatökunnar vitum
við ekki. Því biðjum við
lesendur Frétta að hjálpa
okkur með því að koma til
okkar niður á Bókasafnið
eða hringja í síma 48 i 1184.
Einnig er unnt að hringja
893 3488 (Gunnar Ólafsson
er sér um skráningu á myn-
dum úr Ijósmyndasafni
Kjartans). Jafnframt minni
ég enn á að frammi f and-
dyri Safnahússins liggja
tvær gildar möppur og þar
höfum við sett myndir af
okkur óþekktum
Vestmannaeyingum. Er gott
að geta sagt frá því
drjúgur hluti myndanna er nú orðinn nafngreindur. Enn eru þó skörð í og hvet ég þá sem tíma hafa til að setjast
andartaksstund niður í anddyrinu, fá sér kaffi og blaða í gegnum möppurnar. Næsta skref er að myndirnar birtist á
Heimaslóð og væri þá gott að sem allra flestar myndir væru nafngreindar.
Shellmótið var haldið um síðustu
helgi og var bæði spennandi og
skemmtilegt. Eyjapeyjarnir stóðu
sig vel enda allir duglegir í
boltanum. Einn þeirra, Asgeir
Elíasson var valinn í landslið
mótsins og á lokahófinu var hann í
hópi tíu bestu manna mótsins.
Asgeir er Eyjamaður vikunnar að
þessu sinni.
Nafn: Asgeir Elíasson
Fæðingardagur: 29. apríl 1998.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Mamma heitir Kol-
brún, pabbi heitir Elías og systir
mín heitir Katrín Bára.
Draumabíllinn: Benz.
Versti matur: Hákarl.
Uppáhalds vefsíða: Youlube.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Popp.
Aðaláhugamál: Fótbolti, golf og
handbolti.
Hvaða mann/konu myndir þú
vil ja hitta úr mannkynssögunni:
Steven Gerrard.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Gerrard.
Ertu hjátrúarfullur: Nei.
Asgeir Elíasson er Eyjamaður vikunnar.
Stundar þú einhverja íþrótt: Já,
fótbolta, golf og handbolta.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Simpsons.
Hvenær byrjaðir þú að æfa fót-
bolta: 5 ára.
Er ekki frábært að spila á
Shellmóti: Jú alveg meiriháttar
Hvað er skemmtilegast við svona
mót: Að vinna leiki.
Indverskur humarréttur
Ég þakka Sigga Óla fyrir áskorunina. Ég ætla að bjóða
upp á indverskan humarrétt sem hefur heldur betur
slegið í gegn hjá fjölskyldunni.
Indverskur humarréttur
500 gr humar
2 laukur
2 hvítlauksrif saxað
15 gr smjör
1 msk. karrý
1 msk. chilli
2 msk. tómatpúrré
1 lítri kjúklingasoð
1 msk. sýróp
Salt og pipar og skvetta af sítrónusafa.
Smjör brætt, chilli og karrý stráð út í og hrært saman.
Lauk og hvítlauk bætt út í og látið krauma í um 3 til 4
mínútur.
Svo allt sett í nema humarinn og látið malla á litlum
hita í eina klukkustund.
Humarinn er settur í síðustu 3 til 4 mínúturnar.
Má þykkja með sósujafnara eða rjóma.
Meðlæti: Bananar - kókosmjöl - salthnetur - hrísgrjón
- hrásalat - smábrauð.
Ég ætla að skora á frænda minn, Guðmund Guðmunds-
son (Gvend Hákonar). Hann og Sigga eru að flytja
heim frá Spáni en það var einmitt þar syðra sem ég
sannreyndi að hann getur eldað.
Kristinn Jónsson er rnatgœðingur vikunnar.
Kirkjcir bazjarins:
landakirkja
Sunnudagur 6. júlí
Kl. 11.00. Samkirkjuleg Göngu-
messa á Goslokahátíð hefst í
Landakirkju, þaðan er gengið að
krossinum við Eldfell og endað í
Stafkirkjunni. Boðið er upp á
rútuferð fyrir þá sem það vilja eða
þurfa. Félagar úr Lúðrasveit
Vestmannaeyja sjá um tónlistina og
Kór Landakirkju um söng. Súpa í
boði hússins við Stafkirkjuna að
messu lokinni. Tökum þátt í
þakkargjörð og þiggjum andlega
næringu og síðan líkamlega að
lokinni göngu.
Miðvíkudagur 9. júlí
Kl. 11.00. Helgistund á
Hraunbúðum.
Viðtalstímar prestanna eru
þriðjudaga til föstudaga milli 11.00
og 12.00.
Hvítasunnu-
kirkjan
Laugardagur
Bænaganga kl. 20:30 Tökum þátt í
„Skipað í skarðið“ Bænaátaki
Lindarinnar, allir velkomnir.
Laugardagur: Bænasamkoma kl.
20:30 "Bið þú mig og ég mun gefa
þér...“
Sunnudagur:
Mætum öll í göngumessu í
Landakirkju kl. 11:00 og minnumst
miskunnar Drottins við okkur.
Aðventkirkjan
Laugardagur
Vertu velkominn að rannsaka með
okkur Biblíuna kl. 10:30. Sérstök
dagskrá fyrir börnin.
Sjáumst!
Kári Bjarnason