Fréttablaðið - 26.03.2013, Page 12
ÞRIÐJUDAGUR 26. mars 2013 | FRÉTTIR | 12
ÁVINNINGUR HINS OPINBERA AF VERSLUN
Tekjur af verslun Samgönguútgjöld Menntakerfi ð
38
Íslendingar sem
vinna í verslun eru
38 þúsund talsins.
205
Tekjur launþega sem vinna
í verslun verða um 205
milljarðar kr. á þessu ári.
Samtals greiða launþegar í verslun 75 milljarða kr. til ríkisins í ár.
Það er álíka og það sem ríkið ver samanlagt til menntamála og samgöngu-
mála á þessu ári.
EFNAHAGSMÁL Verslun
á Íslandi stendur undir
fimmtungi hagkerfisins.
Þetta er helsta niðurstaða
skýrslunnar Hagræn
áhrif verslunar sem Ágúst
Einarsson, doktor í hag-
fræði, og Axel Hall, hag-
fræðingur við Háskólann í
Reykjavík, hafa unnið.
„Umfang verslunar er
miklu meira í íslensku efnahags-
lífi en áður hefur verið talið. Versl-
unin er að leggja 20% til lands-
framleiðslunnar á ári hverju og
það vinna um 38 þúsund
manns í greininni. Þær
mikla skatttekjur sem
fara í gegnum verslunina
koma líka á óvart,“ segir
Ágúst um skýrsluna.
Þá bætir Ágúst við að
verslun á Íslandi hafi
ekki notið sannmæl-
is til þessa. „Það eimir
kannski enn eftir af til-
finningum gagnvart einokun-
arverslun Dana því menn hafa
stundum litið svo á að verslun sé
einhver óþarfa milliliður en það
er þverstæða. Verslun er frekar
smurningin sem knýr allar vélar
efnahagslífsins.“
Loks segir Ágúst að rannsóknir
á verslun leiði fljótt í ljós hversu
mikilvægt sé fyrir hana að fá að
starfa hindrunarlaust. „Öll höft
eins og við höfðum hér fyrir
nokkrum áratugum eru mikill
bölvaldur, ekki bara fyrir versl-
unina heldur einnig lífskjör fólks-
ins í landinu. Og nú erum við með
gjaldeyrishöft sem eru mikil vá
og vond fyrir íslenskt efnahags-
líf.“ magnusl@frettabladid.is
Verslunin knýr allar
vélar hagkerfisins
Verslun á Íslandi hefur ekki notið sannmælis að mati annars höfunda skýrslu
um Hagræn áhrif verslunar. Fram kemur í skýrslunni að verslun standi að baki
fimmtungi landsframleiðslu og að 38 þúsund Íslendingar starfi í greininni.
Fram kemur í skýrslunni að tals-
verðar breytingar séu fyrirsjáan-
legar á umhverfi verslunar á
næstu árum og áratugum. Ágúst
nefnir að vaxandi netverslun og
möguleikar á sjálfsafgreiðslu í
verslunum, auk fleiri þátta, valdi
því að starfsfólki í greininni
muni sennilega fækka, auk
þess sem laun í greininni muni
líklega lækka. Við þessu þurfi að
bregðast, svo sem með því að
mennta það fólk sem hverfur úr
greininni.
➜ Verslun gæti breyst
mikið á næstu árum
ÁGÚST EINARSSON
ÍS
LE
N
SK
A/
SI
A.
IS
/N
AT
6
18
85
1
1/
12
Settu hátíðarkraft í
sós una með Knorr
– kraftinum sem þú
þekkir og treystir!
...kemur með góða bragðið!
Hátíðarkrafturinn
kemur úr Knorr
Háaleitisbraut 66, 1O3 Reykjavík, sími 528 44OO
Einnig er hægt að
hringja í söfnunar-
símann 9O7 2OO2,
gefa framlag á
framlag.is,
gjofsemgefur.is eða
á söfnunarreikning
O334-26-886,
kt. 45O67O-O499.
Valgreiðsla hefur verið send í
heimabanka þinn. Með því að greiða
hana styður þú innanlandsaðstoð
Hjálparstarfs kirkjunnar og hjálpar
til sjálfshjálpar.
Hjálpum heima
Hjálparstarf kirkjunnar veitir fjölbreytta
aðstoð á Íslandi. Við hjálpum til sjálfshjálpar.
LÖGREGLUMÁL Yfir 100 innbrot eru
skráð hjá lögreglu í hverjum mán-
uði síðustu tólf mánuði. Innbrot-
unum hefur fækkað um helming
á skömmum tíma, en þau voru um
200 á mánuði fyrir tveimur árum.
Samkvæmt samantekt Ríkis-
lögreglustjóra voru 1.292 innbrot
framin á tímabilinu frá mars 2012
út febrúar 2013. Á sama tíma-
bili tveimur árum áður voru þau
2.698.
„Þetta er ágætis þróun sem var
reyndar byrjuð fyrr,“ segir Stefán
Eiríksson, lögreglustjóri höfuð-
borgarsvæðisins.
Hann segir þrennt skýra fækk-
unina. Lögreglan hafi frá árinu
2009 lagt mikla áherslu á að upp-
lýsa innbrot og stöðva virkustu
brotamennina, enda hafi reynslan
sýnt að þeir beri ábyrgð á stórum
hluta innbrota. Þá hafi breytingar
á skipulagi lögreglunnar árið 2009
fært rannsókn brota nær vett-
vangi og leyft lögreglumönnum
að sérhæfa sig í ákveðnum hverf-
um. Þriðja atriðið sé svo efling
nágrannavörslu í borginni.
Eignaspjöllum hefur einnig
fækkað, úr 2.906 fyrir tveimur
árum í 2.034 nú, sem er um þriðj-
ungs fækkun. Fjöldi líkamsárása
hefur hins vegar verið svo til
óbreyttur síðustu ár, um 1.100 á
ári. - bj
Lögreglu tilkynnt um rúm 100 innbrot á mánuði:
Helmingsfækkun inn-
brota á tveimur árum
VARSLA
Efling
nágranna-
vörslu í borg-
inni er meðal
þess sem
hefur fækkað
innbrotum í
borginni.
F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N