Fréttablaðið - 11.04.2013, Page 6

Fréttablaðið - 11.04.2013, Page 6
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 6 FÓLK „Við eigum að gerast sér- fræðingar í kaffihúsarekstri,“ segir Steinunn Ása Þorvalds- dóttir, einn fimm nemenda í starfs- tengdu diplóma námi fyrir fólk með þroskahömlum í Háskóla Íslands. Gísli Björnsson, Lára Steinars- dóttir, María Þ. Hreiðarsdóttir og Unnur Jónsdóttir ætla ásamt Stein- unni Ásu að opna kaffihúsið Gæs í Tjarnarbíói og reka það í sumar. Um er að ræða sumarverkefni á vegum Reykjavíkurborgar með möguleika á áframhaldi ef vel tekst til. „Fatlað fólk getur allt ef það fær tækifæri til þess,“ undirstrik- ar Steinunn. Hópurinn undirbýr nú opnun Gæsarinnar í byrjun júní, meðal annars með vali á réttu hús- gögnunum. Steinunn kveðst afar ánægð með staðsetningu kaffihússins og ekki síður nafnið, sem standi fyrir Get- ætla-skal og ekki síður fyrir það að grípa gæsina. Gæs verði vinnu- staður án aðgreiningar þar sem ófatlaðir og fatlaðir vinni saman. „Ég hugsa að þetta sé í fyrsta skipti á Íslandi sem fatlað fólk gerir eitthvað þessu líkt. Hópurinn er æðislegur og ég er afar ánægð með að þetta sé að verða að veru- leika. Fatlað fólk þarf virkilega að fá vinnu við hæfi,“ segir Steinunn. Að sögn Steinunnar verður opið á Gæs frá morgni og fram til klukkan sex síðdegis. Stemningin eigi að vera hugguleg með góðu kaffi og bakkelsi og kannski súpu. „Þetta verður eins konar prufu- sumar hjá okkur í sumar og maður er eiginlega orðin hálfspenntur hvernig þetta fer allt saman. Það er mikill hugur í okkur. Þetta er eins og keppni; það er annaðhvort að vinna eða tapa,“ segir Steinunn ákveðin. Sjálf segist Steinunn hafa unnið á sumrin í Elliðaárdalnum við að að tína rusl og trjágreinar. „Mér fannst nóg komið af því í bili að gera það sama aftur og aftur. Ég nenni ekki að þurfa að vinna í þessum Elliðaárdal aftur – þó að hann sé fallegur,“ segir hún og hlær hjartanlega. Steinunn er ein þeirra sem stað- ið hafa að gerð sjónvarpsþáttanna Með okkar augum. Þriðja serían verður framleidd í sumar. Það eru því næg verkefni fram undan hjá Steinunni. „Sáttmáli Sameinuðu þjóðanna segir að við eigum að fá vinnu og höfum rétt á því að fara í skóla. Ég sé ekki annað en að við eigum rétt á því að fá að opna okkar eigin fyrirtæki líka.“ gar@frettabladid.ist Þroskahamlaðir opna kaffihús í Tjarnarbíói Fimm manna hópur í starfsnámi fyrir fólk með þroskahömlun undirbýr nú opnun sumarkaffihúss í Tjarnarbíói. Eigum rétt á að opna okkar eigin fyrirtæki, segir einn úr hópnum, sem þessa dagana leitar að húsgögnum fyrir kaffihúsið sitt. HEIMSÓKN Í IKEA Diplómahópurinn sem hyggst reka kaffihúsið Gæs leitaði í gær í Ikea að hentugum húsgögnum fyrir nýja staðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Ég nenni ekki að þurfa að vinna í þessum Elliðaár- dal aftur – þó að hann sé fallegur. Steinunn Ása Þorvaldsdóttir diplómanemi 1 Hvað heitir sóknarprestur þjóð- kirkjunnar á Húsavík? 2 Með hvaða óvenjulegu leið, sem tengist höfninni, verður Listahátíð í Reykjavík sett í ár? 3 Hvað heitir þýska handboltaliðið sem sagði Kára Kristjáni Kristjánssyni upp? SVÖR: 1. Sighvatur Karlsson. 2. Með því að þeyta skipsfl autur. 3. Wetzlar. VEISTU SVARIÐ? Save the Children á Íslandi TÆKNI Vefsíðan vinsæla Íslendingabók, sem Íslensk erfðagreining heldur úti, verður brátt aðgengileg í gegnum sérstakt app fyrir snjall- síma. Tólf hópar háskólanema vinna hörðum höndum að hönnun apps þessa dagana og verð- ur besta lausnin gerð aðgengileg almenningi. „Íslendingabók er að halda upp á tíu ára afmæli sitt um þessar mundir og af því til- efni var vilji til þess að uppfæra síðuna og bjóða þjónustu hennar í gegnum snjallsíma,“ segir Ingi Rafn Ólafsson, markaðs- og kynn- ingarstjóri verkfræði og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands. „Þeir höfðu því samband við okkur varðandi samstarf og við samþykkt- um enda skemmtilegt verkefni fyrir háskóla- nema.“ Flestir þátttakendur eru nemendur í Háskóla Íslands en Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands eiga einnig sína fulltrúa. Fyrstu verðlaun eru ein milljón króna. Dómnefnd mun velja bestu lausnina út frá frumleika, útliti, virkni og vinnubrögðum auk þess sem litið verður til þess hvernig liðin kynna lausnir sínar á samskiptamiðlum. Úrslit keppninnar verða kynnt næsta laugardag. - mþl Tólf lið háskólanema keppast um að búa til app fyrir Íslendingabók: Kapp um Íslendingabókar-app SPJALDTÖLVA Markmiðið með keppninni er að Íslensk erfða- greining geti boðið þjónustu Íslendingabókar á þægilegan hátt í gegnum snjallsíma og önnur snjalltæki. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA FERÐAMÁL Helmingur þeirra sem teknir eru fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunar á Hvolsvelli er erlendir ferðamenn, að sögn Sveins Kristjáns Rúnarssonar, yfirlög- regluþjóns á svæðinu. „Þetta er að sjálfsögðu ekki einkamál lögreglunnar. Það eru fjöl- margir sem þurfa að leggja sín lóð á vogarskálarnar svo hægt sé að snúa við þessari þróun. Það er mikilvægt svo koma megi í veg fyrir alvarleg slys,“ segir Sveinn. Hann segir einnig mikla aukningu í umferðaróhöppum og að bregðast þurfi við vandanum strax. „Við erum að sjá gríðarlega umferð af ferðamönnum og það held ég að eigi ekki síður við annars stað- ar á landinu.“ Engin skýring er að sögn Sveins á fjölda ökubrotanna. Ferðamennirnir bera þó margir fyrir sig þekkingar- leysi. „Öðrum finnst hraðakstur ekki tiltökumál. Það fólk gerir sér ekki endilega grein fyrir ástand- inu sem getur skapast skyndilega á íslenskum vegum og mikilvægi þess að fara gætilega um náttúruna.“ Sveinn segir að vegna þessa sé mikið um útafakstur ýmist þar sem malarvegur hefst eða í hálku og slæmu skyggni. „Sem betur fer er ekki mikið um stórslys vegna þessa en vissulega fylgir þessu aukið álag á lögregluna á svæðinu.“ Spurður hvað sé til ráða segir hann svarið einfalt. „Það þarf bara að ráðast í viðamikla fræðslu og betri merkingar. Ekki bara á íslensku.“ - mlþ Aukinn fjöldi ferðamanna kallar á átak í umferðarmálum að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli: Útlendingar keyra allt of hratt á Íslandi YFIRLÖGREGLUÞJÓNN Á HVOLSVELLI Sveinn Kristján Rúnarsson verður með fyrirlestur á aðalfundi Samtaka ferða- þjónustunnar sem haldinn er á Hótel Sögu í dag.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.