Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 16

Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 16
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | A B D ➜ Lækka þarf verðbólgu varanlega. Þar skiptir stöðugur gjald- miðill meginmáli ásamt auknum útflutningstekjum og aðhaldi í ríkisfjármálum. ➜ Björt framtíð vill „skoða allar hugmyndir“ til að grípa til aðgerða vegna lánavanda heimila þar til stöðugri gjaldmiðill býðst. ➜ Dæmi um slíkar hugmyndir er að setja þak á verðbætur verðtryggðra lána, hluti inngreiðslna í lífeyrissjóði geti farið í afborganir af húsnæðislánum, og að stimpilgjöld verði af- numin. Einnig að 110 prósenta leiðin gildi líka fyrir lánsveð, að forsendur fyrir útreikningi vísitölunnar séu endurskoð- aðar og að koma á fjölbreyttum leigumarkaði. VILJA „SKOÐA ALLAR HUGMYNDIR“ ➜ „Stökkbreytt“ verðtryggð húsnæðislán verði leiðrétt. ➜ Áhættu af húsnæðislánum verði skipt jafnt milli lánveitanda og lántakanda. ➜ Sett verði „lyklalög“ sem leyfa fólki að skila lyklunum að húsnæði og sleppa þannig undan lánum sem á því hvíla. ➜ Verðtrygging á nýjum neytendalánum verði afnumin. Um leið verði að tryggja hagsmuni neytenda gagnvart of miklum sveiflum á vöxtum óverðtryggðra lána. ➜ Gera þarf breytingar á húsnæðismarkaðnum og búa til sambærilegt húsnæðislánakerfi og í nágrannalöndunum. VILJA LEIÐRÉTTA „STÖKK- BREYTT“ HÚSNÆÐISLÁN ➜ Veita þarf skattaafslætti og nýta skattfrjálsan séreignar- sparnað til að ná fram því sem jafngildir 20 prósentum lægri höfuðstól meðal íbúðaláns á næstu árum. ➜ Þeir sem greiða af húsnæðislánum fái skattaafslátt sem verði notaður til að greiða niður höfuðstól lánanna. ➜ Verðtrygging verði ekki almenn regla heldur geti lántakendur valið á milli óverðtryggðra og verðtryggðra lána. Lántakendur eigi kost á sambærilegum óverðtryggðum lánum og tíðkast hjá nágrannaþjóðunum. Stuðlað verður að efnahagskerfi þar sem verðtryggingin verður óþörf. ➜ Lántakandi geti skilað lyklunum að húsnæði sínu og losnað þannig undan skuldum sínum án þess að fara í gjaldþrot sjái hann sér engan veginn fært að standa undir rekstri hús- næðisins. ➜ Komið verði á skattalegum hvötum til að spara. Með því má auðvelda fyrstu íbúðakaup. ➜ Stimpilgjöld verði afnumin. SKULDURUM ÍVILNAÐ MEÐ SKATTKERFIÐ ASKÝRING | 16 2013 STÓRU KOSNINGAMÁLIN– SKULDAMÁL HEIMILANNA Kolbeinn Óttarsson Proppé kolbeinn@frettabladid.is Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is S V Þ Það málefni sem fengið hefur hvað mesta athygli það sem af er kosningabaráttunni er skulda- vandi heimilanna. Áherslur flokk- anna í þessum málaflokki eru mismunandi, en allir setja fram einhverjar hugmyndir til að taka á honum í stefnuskrá sinni. Ákveðinn samhljóm má finna í stefnuskrám sumra flokka um markmiðin, þótt stundum séu leiðirnar að þeim markmiðum mismunandi. Sumir flokkanna útfæra raunar leiðirnar lítið eða ekki í stefnuskrám sínum fyrir komandi kosningar. Björt framtíð sker sig nokk- uð úr. Lítið er fjallað um skulda- vanda heimilanna í stefnumálum á vef flokksins. Að uppistöðunni til er talað um að flokkurinn vilji „skoða allar hugmyndir“ til að grípa til aðgerða vegna lánavanda heimilanna þar til stöðugri gjald- miðill bjóðist. Nefnd eru nokkur dæmi um hugmyndir en hvorki er tekin frekari afstaða til þeirra eða þau útfærð á nokkurn hátt. Hjá hinum flokkunum fimm sem líklegir eru til að ná mönnum á þing samkvæmt síð- ustu skoðana könnun Fréttablaðs- ins og Stöðvar 2 má finna nokkur atriði sem fjallað er um og tengj- ast skuldavandanum. Bæði er þar fjallað um beinar aðgerðir til að bregðast við vandanum, til dæmis með niðurfellingum skulda, og leiðir til að breyta húsnæðis- kerfinu, til dæmis með breytingu á verðtryggingu. Framsóknarflokkurinn virðist ganga lengst þegar kemur að lof- orðum um að leiðrétta húsnæðis- lán. Sjálfstæðisflokkurinn vill einnig leiðréttingu, en með því að nota skattkerfið. Samfylkingin vill einnig nota skattkerfið til að leiðrétta „ósann- gjarnar byrðar“, og talar einnig fyrir því að bankarnir fjármagni „sanngjarna lækkun“ á lánum skuldara sem keyptu rétt fyrir hrun. Vinstri græn eru ekki með nein- ar niðurfellingar í sinni stefnu- skrá. Þar er þó mörkuð sú stefna að fólk með mikið veðsettar íbúð- ir geti flutt þær í samvinnu félög eða leigufélög gegn búseturétti. Píratar vilja að þeir sem telja sig eiga rétt á leiðréttingu á lánum geti farið með mál sín í gegn- um dómskerfið, óháð efnahag. Þá vilja þeir koma í veg fyrir að venjulegt fólk verði gert gjald- þrota vegna skulda sem tengjast bankahruninu. Þrír flokkar, Framsóknar- flokkur, Sjálfstæðisflokkur og Píratar, eru með það í sínum stefnuskrám að sett verði svoköll- uð „lyklalög“. Orðalagið er mis- munandi hjá þeim en hugmyndin er að skuldari sem ekki stendur undir af borgunum á húsnæði sínu geti skilað lánastofnun lyklunum og losnað þar með undan skuldum sínum vegna húsnæðisins. Fréttablaðið mun fram að kosningum halda áfram að fjalla um stefnumál flokkanna. Á morgun verður rýnt í stefnu þeirra í heilbrigðismálum. Allir með ráð við skuldavandanum Þeir sex flokkar sem líklegir eru til að ná mönnum á þing eru með misjafnar leiðir til að takast á við skuldavanda heimilanna. Allir flokk- arnir víkja að þessum málaflokki í stefnuskrám á vefjum sínum. Útfærslurnar eru ólíkar og sumar útfærðar mun ýtarlegar en aðrar. ➜ Bjóða þarf upp á bæði verðtryggð og óverðtryggð húsnæðis- lán. Einnig millileiðir eins og verðtryggð lán með verðbóta- þaki. ➜ Með upptöku evru „í fyllingu tímans“ muni vextir lækka og verðtryggingin hverfa. ➜ Bankarnir fjármagni „sanngjarna lækkun“ skulda hjá þeim sem keyptu á versta tíma fyrir hrun. ➜ Skattkerfið verði notað til að leiðrétta „ósanngjarnar byrðar“ þeirra sem keyptu húsnæði rétt fyrir hrun. ➜ Tekið verði upp nýtt húsnæðiskerfi að norrænni fyrirmynd sem dregur úr áhættu lántakenda. Byggður verði upp öruggur leigumarkaður og boðið upp á búseturéttaríbúðir. ➜ Nýjar húsnæðisbætur verði innleiddar fyrir þá sem kaupa jafnt sem þá sem leigja. ➜ Stimpilgjöld og uppgreiðslugjöld verði afnumin. ➜ Lántakendum bjóðist sambærilegir valkostir og öryggi í hús- næðismálum og á hinum Norðurlöndunum, til dæmis með fjölbreyttu framboði á eignar-, leigu- og búseturéttaríbúðum. VEXTIR LÆKKI MEÐ UPPTÖKU EVRU ➜ Fólki með mikið veðsettar íbúðir geti flutt þær yfir í íbúa- samvinnufélög eða fasteignaleigufélög gegn búseturétti. ➜ Verðtryggð lán miðist við nýja húsnæðisvísitölu þar sem áhættunni sé dreift milli lántakanda og lánveitanda. ➜ Húsnæðisbótakerfinu verði breytt og tekin upp „húsnæðis- framlög“ í stað vaxta- og húsaleigubóta. Framlögin taki mið af stærð fjölskyldu, húsnæðis og efnahags. ➜ Stuðla á að einföldu húsnæðiskerfi þar sem nægt framboð er af húsnæði til leigu og kaups. Hlutfall leiguhúsnæðis verði aukið og horft verði til íbúasamvinnufélaga. ➜ Löggjöf um húsnæðismál verði endurskoðuð svo hún snúist ekki eingöngu um lán á „alltof háum“ verðtryggðum vöxtum. NÝ VÍSITALA SKIPTI ÁHÆTTUNNI BETUR ➜ „Lyklalög“ geri lántakendum kleift að gera upp húsnæðislán með því að afsala sér fasteigninni til lántakandans. Það geti þeir lántakendur nýtt sem vilja fá forsendubrest hrunsins leiðréttan hratt. ➜ Lántakendur sem vilja fá lán sín lækkuð geti farið í mál til að láta reyna á rétt sinn fyrir dómstólum óháð efnahag. ➜ „Venjulegt fólk“ verði ekki gert gjaldþrota vegna bankahruns sem lánveitandi þess orsakaði. LYKLALÖG LEIÐRÉTTI FORSENDUBREST HRATT 123.900 HEIMILI ERU Á ÍSLANDI➜ Útlán fjármálafyrirtækja til heimila 1.478.449 1.587.658 31. des 2008 31. des 2012 1.200 milljarðar LIGGJA Í VERÐTRYGGÐUM HÚSNÆÐISLÁNUM 4.661 umsókn um greiðsluaðlögun hefur borist Umboðsmanni skuldara. 1.058 milljarðar eru heildarútlán Íbúðalánasjóðs. 9,2% heimila eru með lán sín í vanskilum. 7,6 milljarðar eru heildarfj árhæð vanskila hjá sjóðnum. 11,5% heimila áttu erfitt með að ná endum saman 2012 10% heimila voru í vanskilum með húsnæðislán eða leigu 2012 10,4% heimila voru í vanskilum með önnur lán 2012 DREGIÐ ÚR VÆGI VERÐ- TRYGGINGAR LYKLALÖG BREYTING Á HÚSNÆÐIS- LÁNAKERFI milljónir milljónir Hvar ná flokkarnir saman?

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.