Fréttablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 18
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR NEYTENDUR | 18
MATVÆLI
Til þess að reiðhjólahjálmur geri
sitt gagn þarf hann að vera rétt
stilltur og sitja rétt á höfðinu.
Öryggið verður lítið sé þessara
atriða ekki gætt.
„Af öllum tegundum hjálma er
einna flóknast að stilla reiðhjóla-
hjálma og setja þá á sig. Reið-
hjólahjálmur er ekki svo djúpur
þannig að það skiptir öllu máli
að hann sitji rétt,“ segir Her-
dís Storgaard, starfsmaður hjá
Landlæknisembættinu.
„Maður sér oft fólk með reið-
hjólahjálm rúllandi aftan á höfð-
inu. Það er ekki skrýtið að mann-
eskja höfuðkúpubrotni eða að það
blæði inn á heilann við fall ef
hjálmurinn situr ekki rétt.“
Herdís segir vanta betri þjón-
ustu í verslunum við kaup á reið-
hjólahjálmum. „Það þarf í raun
að mæla á manni höfuðið. Mál-
bandið á að vera rétt fyrir ofan
augabrúnir þegar ummálið er
mælt til þess að vita hvaða stærð
eigi að kaupa.“
Líftími hjálms er um það
bil fimm ár frá því að hann er
keyptur. Ef hjálmur skemmist
þarf að kaupa nýjan. Ekki má
líma límmiða á hjálm eða skrifa
með tússpenna á hann því að
slíkt getur eyðilagt virkni hans.
„Það má ekki vera með spennu
í hárinu eða tagl undir hjálmin-
um og heldur ekki laus höfuð-
föt eins og húfu. Það má einung-
is nota buff eða lambhúshettu
sem fellur þétt að höfðinu undir
hjálminum. Húfa er ekki skorð-
uð á höfðinu og getur færst til og
hjálmurinn þá líka.“
Herdís segir það jákvæða
þróun hversu margir fullorðnir
eru farnir að nota hjálm við hjól-
reiðar. „Foreldrar kvarta hins
vegar yfir því að börn hætti að
nota hjálm þegar þau komast á
fermingaraldur og þá einkum
stelpur.“
Upplýsingar um slysavarnir
barna má finna á vef Miðstöðv-
ar slysavarna barna, msb.is.
Hjálmur verð-
ur að sitja rétt
Öryggið verður lítið ef reiðhjólahjálmurinn er ekki
rétt stilltur og situr ekki rétt á höfðinu. Líftími hjálma
er fimm ár. Nauðsyn á betri þjónustu í verslunum.
HJÁLMAR MÁTAÐIR Reiðhjólahjálmar gera lítið gagn sitji þeir ekki rétt á höfðinu.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Efni sem líkjast amfetamíni og hafa líklega sömu áhrif eru í bandaríska fæðubótar-
efninu Craze frá Driven Sports. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sænsku lögregl-
unnar, sem gerð var fyrir sænska ríkissjónvarpið. Alþjóðalyfjaeftirlitið flokkar eitt af
virku efnunum í Craze sem fíkniefni þar sem það er svo líkt metamfetamíni, að því er
segir í frétt á vef Aftenposten.
Samkvæmt upplýsingum sænsku eiturefnamiðstöðvarinnar hefur efnið sömu áhrif og
fíkniefni og veldur meðal annars ofvirkni, vöðvakippum og hjartsláttartruflunum.
Í tölvupósti Driven Sports til sænska ríkissjónvarpsins segir að Craze innihaldi ekki
meint efni. Eftirlíking á fæðubótarefninu hljóti að hafa verið rannsökuð.
Fíkniefni í fæðubótarefni
Fyrirtækið Sunprojuice í Danmörku
hefur verið dæmt til að greiða
jafngildi rúmlega 120 milljóna
íslenskra króna í sekt vegna þess
að innihaldið í saft fyrirtækisins
var ekki í samræmi við merkingar
á umbúðum. Í fjölda tilfella hafði
eplum verið blandað saman við
sólberja- og hindberjaþykknið og
aðrar vörur. Dómurinn var kveðinn
upp vegna svindls sem átti sér stað
á árunum 2004 til 2008.
Fyrrverandi forstjóri fyrir-
tækisins hlaut fjögurra mánaða
skilorðsbundinn fangelsisdóm. Auk
þess var lagt hald á um jafngildi
100 milljóna íslenskra króna hjá
fyrirtækinu. Það hafði þegar endur-
greitt nokkrum viðskiptavinum
jafngildi 20 milljóna íslenskra
króna. Ákæran tók til nær eitt
þúsund tonna af ávaxtaþykkni
sem selt var í Danmörku og öðrum
löndum.
120 milljóna sekt vegna saftarsvindls
SÓLBER Saftin var ekki í samræmi við
merkingar á umbúðum.
■ Setja þarf hjálminn beint
niður á höfuðið þegar hann er
stilltur.
■ Bandið undir hökunni á að
falla það þétt að að einungis sé
hægt að koma einum fingri á
milli.
■ Hjálmurinn má ekki færast
til nema um nokkra millimetra
þegar prófað er hvort hann sitji
ekki örugglega þétt að höfðinu.
Að stilla
reiðhjólahjálminn
RANNSÓKN
NÝ OG STÍLFÖGUR
ELDHÚSTÆKI FRÁ AEG
SEM GERA GOTT ELDHÚS
ENN BETRA
Fjölkerfa blástursofn með
innbyggðum kjöthitamæli,
hjálparkokki með sjálfvirkum
uppskriftum og sjálfhreinsikerfi.
Íslensk notendahandbók.
Einnig fáanlegur sem gufuofn.
Íslensk notendahandbók.
B
P
9
3
0
4
1
5
1
-M
Fjölkerfa blástursofn með
innbyggðum kjöthitamæli og
hjálparkokki með sjálfvirkum
uppskriftum.
Íslensk notendahandbók.
Einnig fáanlegur með sjálfhreinsikerfi
B
E
7
3
1
4
4
0
1
-M
Fjölkerfa blástursofn með
hraðhitakerfi, sérstaklega
þægilegur í notkun og allri
umgengni.
Íslensk notendahandbók.
Einnig fáanlegur með sjálfhreinsikerfi og
innbyggðum kjöthitamæli.
Íslensk notendahandbók.
B
E
5
3
0
3
0
7
1
-M
Fjölkerfa blástursofn sem er
sérstaklega einfaldur og
auðveldur í notkun og allri
umgengni.
Íslensk notendahandbók.
ar
B
E
3
0
0
3
0
0
1
-M
„Afburða hönnun“
3 LÍNAN 5 LÍNAN 7 LÍNAN 9 LÍNAN
Nýju ofnarnir frá búa yfir miklum fjölbreytileika í lögun og leikni.
Nýtanlegt innra rými ofnanna er nú 30% stærra en áður og eru þeir nú 74 lítrar
að stærð án þess að ummál þeirra hafi aukist.
AÐ ELDA MEÐ
Þegar þú eldar með AEG máttu búast við framþróaðri tækni, flottri hönnun og fjölmörgum
stillingarmöguleikum sem bjóða upp á svo margt, margt fleira.
FULLKOMIN HÖNNUN
AEG ofnarnir eru hannaðir til að skara fram úr á öllum sviðum. Þeir eru einstaklega fjölhæfir,
áreiðanlegir og þar að auki glæsilegir útlits.
AEG HELLUBORÐ AF ÖLLUM STÆRÐUM OG GERÐUM
Ný glæsileg lína helluborða frá AEG býður upp á fullkomnustu tækni, hvort sem þú velur spansuðu-
eða venjulegt hraðsuðuhelluborð eða fyrir gas þá er úrvalið mikið og útfærslurnar fjölbreyttar.
LÁGMÚLA 8 · SÍMI 530 2800
www.ormsson.is
OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ 10-18
OG LAUGARDAGA FRÁ 11-15
*
3
.5
%
L
Á
N
T
Ö
K
U
G
J
A
L
D
Nú er tækifærið til að endurnýja:
Virðing
Réttlæti
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS
sem verður haldinn á Grand Hótel Reykjavík,
miðvikudaginn 17. apríl nk. og hefst kl. 19:30.
Minnum á aðalfund VR
Dagskrá
Venjuleg aðalfundarstörf
Innborgun í VR varasjóð
Lagabreytingar