Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 24

Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 24
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| SKOÐUN | 24 Opið frá kl. 11–20 alla daga Engihjalla og Granda FYRIR EINN MÁLTÍ[ 399kr. pk. Nautala sagne 399kr. pk. Kjúkling ur í karr í 399kr. pk. Spaghe ttí Bolo gnese 399kr. pk. Kjúkling ur í súrs ætri sós u Fréttablaðið hefur í frétta- flutningi sínum að undan- förnu beint sjónum að Þjóðskrá Íslands og slegið upp í fyrirsagnir hve van- búin stofnunin sé að tak- ast á við verkefni á tölvu- öld. Þessari umræðu fagna ég því mikilvægt er að efla skilning á því lykilhlut- verki sem Þjóðskrá gegnir og mun gegna í framtíðinni. Því miður hefur þessi skiln- ingur ekki alltaf verið fyrir hendi hjá fjárveitingarvaldinu á Alþingi eins og dæmin sanna. En nánar að því síðar. Þörf á endurnýjun Þjóðskrá Íslands er tiltölulega ný af nálinni í núverandi mynd. Hún stendur hins vegar á gömlum merg. Tvær stofnanir, sem annars vegar önnuðust fasteigna skráningu og hins vegar þjóðskrána, runnu saman í Þjóðskrá Íslands. Mörg ný verkefni hafa síðan verið falin stofnuninni. Forráðamenn og starfsmenn hafa innt þau verkefni vel af hendi við hin erfiðustu skil- yrði þar sem tölvukerfið, sem held- ur utan um sjálfa þjóðskrána, er að stofni til frá árdögum tölvualdar hér á landi. Við svo búið verður ekki unað lengur. Ekki þarf að fjölyrða um þá hröðu þróun sem orðið hefur í sam- félaginu síðustu áratugi, meðal annars á sviði upplýsinga- og sam- skiptatækni sem hefur nýst á æ fleiri sviðum hins daglega lífs. Íslendingar hafa að mörgu leyti staðið sig vel í þessum efnum. Fjar- skiptakerfi okkar er með því besta sem gerist í heiminum og stofnan- ir og sveitarfélög hafa byggt upp öflug tölvukerfi og margs konar rafræna þjónustu. En þjóðfélagið kallar á sífellt meiri rafræna þjón- ustu og hið opinbera þarf að geta tekið nauðsynleg skref til að svara því kalli og ef vel á að vera, fara á undan og sýna fram á gagnsemi rafrænnar þjónustu á sem flestum sviðum. Þar á Þjóð- skrá Íslands að vera flagg- skipið. Fasteignaskrá og þjóð- skrá eru enn meðal umfangs mestu verkefna Þjóðskrár Íslands, enda er þar um að ræða tvær af mikilvægustu grunn skrám Íslands. Á meðal mikil- vægra verkefna sem hafa verið falin í ábyrgð hennar á undanförnum árum má nefna upp- lýsinga- og þjónustuveituna Ísland. is, undirbúning og þróun nýs auð- kenningarlykils, Íslykils, og undir- búning fyrir rafrænar kjörskrár sem gefur möguleika á rafrænum íbúakosningum og undirskrifta- söfnunum svo dæmi séu nefnd. Þessi verkefni byggjast fyrst og fremst á nýtingu tölvutækninnar og krefjast margs konar sérfræði- þekkingar og reynslu, frum kvæðis og útsjónarsemi sem bæði forráða- menn og starfsmenn Þjóðskrár Íslands búa ríkulega yfir. Þessi verkefni krefjast líka þess að stofn- uninni séu annars vegar búin þau fjárhagslegu starfsskilyrði að hún geti staðið undir þeim verk efnum og hins vegar þau lagalegu skilyrði sem gera henni kleift að útfæra þjónustuna. Á það hefur skort af hálfu stjórnvalda og ég endurtek að þetta þurfum við að laga. Umfjöllun á Alþingi Í nóvember 2011 mælti ég á Alþingi fyrir frumvarpi um breytingu á lögum um þjóðskrá og almanna- skráningu sem hafði það mark- mið að styrkja stoðir fyrir gjald- töku upplýsinga úr þjóðskrá og skapa fjárhagslegan grundvöll til að hefja endurgerð tölvukerfa Þjóðskrár Íslands. Ljóst var að þetta yrði umfangsmikið verk- efni og kostnaðar samt en jafn- ljóst var að mjög brýnt var að hefja þessa vinnu og hafði meðal annars umboðs maður Alþingis bent á það í tveimur álitum. Frumvarpið fór til umfjöllunar í þingnefnd sem kall- aði ýmsa aðila á sinn fund og leit- aði umsagnar fjölmargra. Ekki náð- ist að ljúka afgreiðslu málsins á því þingi og höfðu komið fram margs konar athugasemdir þar sem meðal annars var kallað eftir heildar- endurskoðun á lagarammanum öllum. Allt var það satt og rétt en í umræðunni á þingi kom berlega í ljós að skilning skorti á bráðavand- anum. Og það er þess vegna sem ég fagna sérstaklega gagnrýninni umræðu um málefnið í fjölmiðlum. Framtíðarsýn Í Innanríkisráðuneytinu hafa málefni Þjóðskrár Íslands verið til rækilegrar skoðunar. Ég tek hjartan lega undir þau sjónarmið sem að framan er getið og komu fram í umræðu á Alþingi að nauð- synlegt er að móta stofnuninni nýja framtíðarsýn og setja síðan fram raunhæf markmið og leiðir til að ná þeim. Í því verki þarf að taka tillit til hinna öru framfara á sviði upp- lýsingatækni og fjarskipta sem leiða af sér þá eðlilegu kröfu að stjórn- sýslan breytist, að þjónustan breyt- ist og taki mið af þörfum nútímans. Hvað varðar auðkennismál er þar um að ræða grunnþátt í stoð- kerfi samfélags sem ætlar að halda inn á brautir rafrænnar stjórnsýslu og beins lýðræðis. Og hvað varðar gáttina að öllum þeim upplýsinga- miðlum sem nú spretta upp innan stjórnsýslunnar, hvort sem er hjá ríki eða sveitarfélögum, er augljóst í mínum huga að sú gátt á heima hjá Þjóðskrá Íslands enda er sú að verða reyndin. Þjóðskrá Íslands: Flaggskip á tölvuöld Ritstjóri Fréttablaðsins, Mikael Torfason, ritar í leiðara blaðsins þann 2. apríl sl. undir yfirskrift- inni „Námsmannabólan“ um það meðal annars hvort fjárfesting í háskólanámi borgi sig á Íslandi, fyrir einstaklinga og samfélagið í heild. Í leiðaranum bendir Mikael réttilega á að hlut- fall framhalds- og háskóla- menntaðra á vinnumarkaði hefur aukist undanfarna áratugi og veltir því upp hvort tími sé kominn til að staldra við, enda sé „engu samfélagi hollt að útskrifa fólk úr ríkisstyrktum háskólum sem á ekki von á góðu þegar komið er út í atvinnulífið“. Ísland er reyndar talsverður eftir bátur samanburðarlanda hvað menntunarstig varðar, því þrátt fyrir jákvæða þróun í átt að hærra menntunarstigi færast viðmiðunar- hóparnir – þau lönd sem lengra eru komin – líka áfram með tímanum. Mikael bendir á mikilvægi þess að auka samsvörun milli mennt- unar og atvinnulífs og nefnir í því samhengi skort á tæknimennt- uðu fólki á vinnumarkaði, sem nú er staðreynd. Lítil aðsókn í raun- greinanám er vissulega vandamál sem vert er að laga. Aðgerðir gegn þeirri þróun þarf þó að hefja strax við upphaf skólagöngu barna ef vel á að vera. Mikael leggur til að tekið verði upp hvatakerfi á háskólastig- inu, sem beint gæti nemendum á tilteknar brautir, og er það eflaust góðra gjalda vert, svo framarlega sem slíkt er hluti af stærra átaki á öllum skólastigum. Í leiðaranum er jafn- framt minnst á þá stað- reynd að ævitekjur háskóla- genginna vega ekki alltaf upp kostnaðinn við að afla sér menntunar. Athug- anir á arðsemi menntun- ar á Íslandi sýna reynd- ar að menntun borgar sig, enn sem komið er. Banda- lag háskólamanna (BHM) tekur þó undir með Mik- ael að til þess að íslenskt atvinnulíf megi eflast og halda í við samkeppni á alþjóðavísu þarf að gæta þess að hér verði áfram hagstætt að sækja sér þekkingu. Íslenskt menntakerfi er óhagstætt, hvað ævitekjur varðar, að því leyti að hér tekur lengri tíma en í sam- anburðarlöndum að afla þeirrar grunnmenntunar sem er forsenda háskólanáms. BHM leggur því til að tími til stúdentsprófs verði styttur. Menntun borgar sig Samfélagslega sýnin sem lýst er í leiðara Mikaels, að mögulega væri rétt að hverfa frá áætlunum um að auka menntunarstig á íslenskum vinnumarkaði, er óneitanlega sér- kennileg. Í skýrslu McKinsey og félaga „Charting a growth path for Ice- land“, sem birt var síðastliðið haust, er rýnt í hagstærðir með það fyrir augum að greina vaxtarmöguleika Íslands í átt til aukinnar hagsæld- ar. Þar er bent á það með skýrum hætti að Ísland eigi hvað mesta vaxtarmöguleika á hinum alþjóð- lega hluta vinnumarkaðarins, sem ekki byggir beint á staðbundnum auðlindum eða aðstæðum. Forsenda þess að nýta þá möguleika er að efla menntunar stig og styrkja atvinnu- möguleika háskólamenntaðra. Mikael bendir í leiðara sínum réttilega á að samsvörun skort- ir milli námsvals þeirra sem nú stunda háskólanám og þess hvers konar þekkingu vantar nú helst á vinnumarkaði. Þetta misræmi mun þó ekki endilega leiða til atvinnu- leysis þeirra sem útskrifast með menntun sem ekki er eftirspurn eftir. Þeir einstaklingar munu lík- lega eiga betri atvinnumöguleika vegna menntunar sinnar, enda þótt þeir fái kannski ekki starf við hæfi. BHM hefur ítrekað bent á þá staðreynd að yfirsýn skortir í opin- berum hagtölum yfir það hvort háskólamenntaðir á vinnumarkaði eru í störfum sem samsvara mennt- un þeirra. Slík greining er nauðsyn- leg ef raunverulegur vilji er til að efla samsvörun milli námsvals og þarfa atvinnulífsins. Við eigum ekki að hafa áhyggjur af því að fólk mennti sig í auknum mæli. Áhyggjurnar ættu fremur að beinast að því að okkur mistakist að nýta menntunina til að efla hagsæld Íslands. Áhyggjur af áhyggjum Mikaels Torfasonar ÞJÓÐSKRÁ Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra ➜ Fjarskiptakerfi okkar er með því besta sem gerist í heiminum og stofnanir og sveitarfélög hafa byggt upp öfl ug tölvukerfi og margs konar rafræna þjónustu. MENNTUN Guðlaug Kristjánsdóttir formaður Banda- lags háskólamanna ➜ Lítil aðsókn í raungreina- nám er vissulega vandamál sem vert er að laga. Aðgerðir gegn þeirri þróun þarf þó að hefja strax við upphaf skóla- göngu barna ef vel á að vera.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.