Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 30
FÓLK|
■ JÁRNFRÚIN
Margaret Thatcher verður
borin til grafar þann 17. apríl
næstkomandi með viðhöfn.
Eftir látið er hennar minnst
sem sterks þjóðarleiðtoga
þótt oft hafi hún þótt óvægin.
Erlend blöð hafa safnað saman
myndum frá ferlinum sem sýna
fata- og greiðslustíl sem ein-
kenndi hana. Thatcher kom
aldrei fram án þess að vera
með uppsett, túberað hár
með miklu hárlakki. Hún hafði
klassískan en þó formlegan
fatastíl. Dragtir voru í upp-
áhaldi, enda áttu þær ágætlega
við þann karlaheim sem hún
hrærðist í. Silkiblússur voru
áberandi í fatastíl hennar, oft
með slaufu í hálsi eða hún bar
perlufesti.
Thatcher var fræg fyrir að vera
alltaf með svart veski í hönd
og átti hún margar gerðir af
svipuðum töskum, flestar frá
breska fyrirtækinu Asprey.
Hún átti til að slá veskinu í
borð þegar hún vildi leggja
áherslu á orð sín. Eitt slíkt
veski var selt á uppboði árið
2011 fyrir tæpar fimm millj-
ónir króna. Það hafði Thatcher
borið árið 1980 þegar hún hitti
forsetana Ronald Reagan og
Mikhail Gorbatsjov á frægum
fundi.
LAMDI VESK-
INU Í BORÐIÐ
TÍSKA
KÁPUR KÖTU
KONUNGLEG TÍSKA Kate Middleton hefur heillað tískuspekúlanta
frá því hún gekk að eiga Vilhjálm sinn. Hún er þekkt fyrir fágaðan
stíl ekki síður í yfirhöfnum en kjólum eins og hér má sjá.
GRÆN OG VÆN
Kate Middleton í
grænni kápu frá
Emilia Wickstead á
degi heilags Patreks
í mars á þessu ári.
KONUNGLEG Kate
í kóngablárri kápu
eftir Malene Birger,
sem hún klæddist í
heimsókn á Baker
Street-neðanjarðar-
lestarstöðina, í tilefni
af 150 ára afmæli
neðanjarðarlestar-
kerfisins í mars.
DÖNNUÐ Í
grárri kápu
frá Reiss við
opnun nýrrar
knattspyrnu-
miðstöðvar í
október á síðasta
ári.
Í LJÓSBLÁU
Kate í blárri
Missoni-kápu og
skóm frá Rupert
Sanderson í
heimsókn til
Fortnum &
Mason í London
í mars í fyrra.
Skipholti 29b • S. 551 0770
Parísartízkan
fagnar 50 ára afmæli
15% afsláttur
af yfirhöfnum þessa vikuna
50% afsláttur
af völdum vörum í verslun
Holtagörðum, s. 553-1800
Opið virka daga 11-18, laugardaga 11-15
www.facebook.com/fondurlist
mituf tau að úrvakiiM ll
fyrir náttúru eg og gerviefnil
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ
sem býður auglýsendum að
kynna vörur og þjónustu í formi
viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum
auglýsingum. Blaðið fylgir Fréttablaðinu
daglega.
Útgefandi: 365 miðlar
Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn:
Jónína María Hafsteinsdóttir
jmh@365.is s 512 5473
Sverrir Birgir Sverrisson
sverrirbs@365.is, s 512 5432
Elsa Jensdóttir
elsaj@365.is s. 512-5427
HEIMSFRÆGUR
SAUMASKAPUR
Tískubiblían Vogue
valdi nýverið
tuttugu frægustu
kjóla sögunnar sem
þóttu samboðnir
frægðarhöll Vogue.
Kjólarnir koma af
sviði kvikmynda,
tónlistar og tísku
og eiga allir sam-
eiginlegt að verða
ógleymanlegir í
sögubókum tísk-
unnar um aldir og
ævi. Hér eru þrír
minnisstæðir og
heimsfrægir nefndir
til sögunnar.
ÓGLEYMANLEG Í SVANI
Okkar eigin Björk klæddist
einum af frægustu kjólum tísku-
sögunnar, að mati Vogue. Kjóll-
inn er jafnan kallaður Svanurinn
og var hannaður af makedónska
hönnuðinum Marjan Pejoski.
Svaninum klæddist Björk við
afhendingu 73. Óskarsverð-
launanna árið 2001 og var hjá-
lagt svansegg sviðsett á rauða
dreglinum.
ALVÖRU KJÖTSTYKKI
Lady Gaga var íklædd kjötkjól úr
hráu nautakjöti þegar hún tók
við átta verðlaunum á VMA-
tónlistarhátíðinni 2010. Kjólinn
hannaði argentínski hönnuður-
inn Franc Fernandez sem fékk
kjötið hjá slátraranum á horninu
og þurfti ítrekað að stinga hálf-
kláruðum saumaskapnum í
kæli svo efniviðurinn rotnaði
ekki. Kjötkjóllinn hefur nú verið
uppstoppaður og er til sýnis á
Frægðarhöll rokksins í Ohio.
SEXÍ OG SEIÐANDI
Hvíti, plíseraði kjóllinn sem
Marilyn Monroe klæddist í
The Seven Year Itch 1955 varð
heimsfrægur eftir að kyn-
bomban lét loft úr grind ofan
við neðanjarðarlest á mótum
Lexington-traðar og 52. strætis
í New York blása pilsinu upp
um fagra fótleggina. Kjóllinn
var sköpunarverk búninga-
hönnuðarins William Travilla og
talinn týndur þar til hann fannst
í eigum Travillas við andlát hans
á tíunda áratugnum. Kjóllinn var
seldur á uppboði 2011 fyrir 5,6
milljónir dala.
FRÆGUSTU KJÓLAR SÖGUNNAR
GEFÐU
VATN
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
Sími 585 8300 | www.postdreifing.is
Við flytjum þér
góðar fréttir