Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 34

Fréttablaðið - 11.04.2013, Side 34
11. APRÍL 2013 FIMMTUDAGUR2 ● fréttablaðið ● mastersmótið 2013 Þorsteinn Hallgrímsson og mynda- tökumaðurinn Friðrik Þór Halldórs- son hafa undanfarna daga dvalið í Georgíu og fylgst með aðdraganda Masters-mótsins á Augusta National- vellinum. Þeir eru þar að safna efni í sjónvarpsþátt sem sýndur verður á Stöð 2 Sport. Þetta er annað árið í röð sem þeir félagar skella sér á Masters og munu gefa íslenskum golfáhuga- mönnum innsýn inn í þetta vinsæla risamót. „Við erum búnir að vera hér frá því á sunnudag og höfum verið dug- legir við að safna efni. Við urðum t.d. vitni að því á mánudag þegar banda- ríski kylfingurinn John Huh fór holu í höggi á 16. braut. Við misst- um reyndar af högginu þar sem við vorum að mynda Tiger Woods á sama tíma slá af 17. teig,“ segir Þor- steinn og hlær. Gríðarleg öryggisgæsla er á Aug- usta National-vellinum og það er ekki hlaupið að því að ná kylfingum í viðtal. „Við erum reynslunni rík- ari frá því í fyrra og kunnum betur á þetta. Við náðum í nokkur góð við- töl við kylfinga eins og Henrik Sten- son, fyrrverandi risameistarana Ben Crenshaw og Jose Maria Olazabal, og David Toms. Við ræddum einnig við Belgann Nicolas Colsaerts. Það hefur hins vegar verið mjög erfitt að ná þessum stórstjörnum í viðtöl. Það er mikil gæsla og aðeins hægt að ná viðtali við þessa kappa við klúbbhús- ið. Aðgengi að leikmönnum er mjög takmarkað. Okkur hefur hins vegar tekist að ná í mikið af góðu efni sem við munum sýna í sérstökum þætti um ferð okkar á Masters,“ segir Þor- steinn. ALLIR VEÐJA Á TIGER WOODS Tiger Woods fær mikla athygli í að- draganda Masters-mótsins og nafn hans virðist vera á allra vörum. Hann hefur fjórum sinnum staðið uppi sem sigurvegari á Masters og Þorsteinn telur hann líklegan til af- reka um helgina. „Það spá allir Tiger Woods sigri í þessu móti. Það er hins vegar ekk- ert nýtt enda hefur hann verið tal- inn sigurstranglegastur í þessu móti síðast liðin fimmtán ár. Af öðrum kylfingum minnast margir á Phil Mickelson, Justin Rose og Lee Westwood. Þetta eru allt kylfingar sem hafa verið í toppbaráttunni und- anfarin ár. Völlur inn hentar auðvitað sumum kylfingum betur en öðrum. Þó að Rory McIlroy hafi ekki gengið vel í ár er hann líklegur eftir að hafa orðið í öðru sæti í Texas um síðustu helgi,“ segir Þorsteinn, sem telur að mótið muni vinnast á flötunum. „Flatirnar eru gríðarlega erfið- ar og mikið landslag. Við fylgdumst með mörgum kylfingum að pútta á vellinum í gær og það kemur manni hreinlega á óvart hversu mikið brot er í flötunum. Það skiptir miklu máli að hafa góða lengdarstjórnun, sjálfstraust á flötunum og vera réttu megin við holuna.“ AUGUSTA NATIONAL SKARTAR SÍNU FEGURSTA Það er ekkert til sparað til að gera þetta fyrsta risamót ársins eins glæsilegt og mögulegt er. Starfs- menn vallarins vinna baki brotnu við að fínpússa hvert einasta smá- atriði í vellinum og var 14. flötin á vellinum sem dæmi endurbyggð frá grunni fyrir mótið í ár. Þorsteinn segir að völlurinn líti jafnvel betur út en fyrir ári síðan. „Völlurinn er í frá- bæru ásigkomulagi og margir vilja meina að hann sé betri í ár en á síð- asta ári. Vorið kom aðeins fyrr á síð- asta ári og það varð til þess að blóm- in voru búin að blómstra fyrir mótið. Þau eru akkúrat að blómstra núna og völlurinn skartar sínu fegursta. Nokkrir kylfingar höfðu það á orði við okkur að flatirnar væru hraðari en á síðasta ári og ef það reynist rétt þá verður gífurlegur hraði á flötun- um,“ segir Þorsteinn. Líklega er ekkert golfmót í heim- inum sem hefur sama sjarma og Masters-mótið á Augusta National. Mótið er eina risamótið sem ávallt fer fram á sama vellinum og það að klæðast græna jakkanum í mótlok er draumur allra kylfinga. „Það er mögnuð stemning á Aug- usta National. Miðar á æfingahring á mánudeginum voru að fara á svört- um markaði fyrir um 1.000 dali, sem eru gríðarlega fjárhæðir og sýnir ótrúlegar vinsældir mótsins,“ segir Þorsteinn. „Það er einnig magnað að allt sem selt er inni á svæðinu er merkt Masters bak og fyrir. Það er hreinlega allt grænt á Augusta National.“ Búist við gífurlega hröðum flötum á Masters í ár Þorsteinn Hallgrímsson og Friðrik Þór Halldórs- son fá tækifæri til að kynnast Masters- mótinu á einstakan hátt. Þorsteinn sést hér við háborðið í blaða- mannaherberginu þar sem kylfingarnir á Mastersmótinu munu fara yfir gang mála eftir hvern hring. Friðrik Þór Halldórsson er síðan að sjálfsögðu klár með vélina en þáttur um ferð þeirra verður sýndur á Stöð 2 Sport. Körfuknattleiksmaðurinn Páll Axel Vilbergsson er mikill aðdáandi Tiger Woods. Hann þefar uppi allar beinar útsendingar frá þeim mótum sem Woods leikur í en áhuginn dvínar ansi hressilega þegar Woods er ekki með. Páll Axel spáir Woods öruggum sigri á Masters í ár. „Ég er rosalegur Tiger-maður. Ég sit límdur við skjáinn þegar hann er að keppa. Tiger er búinn að vera í uppsveiflu og hrista af sér persónuleg vandamál. Það mun hjálpa honum að hann tók sér frí fyrir mótið og kemur mjög ferskur og hungraður inn í mótið. Ætli að hann verði ekki með 5-6 högga forystu fyrir lokadaginn og svo klárar þetta örugg- lega,“ segir Páll Axel, sem á ekki von á óvæntum úrslitum. „Það getur auðvitað allt gerst og það hafa nöfn unnið þetta mót sem maður hafði aldrei heyrt um. Ég held hins vegar að þetta verði árið hans Tigers. Það verða samt þekkt nöfn í næstu sætum fyrir neðan og kæmi mér ekkert á óvart ef það væru bara stórstjörnur í lokaráshópunum á sunnudag.“ Páll Axel Vilbergsson Tiger Woods Leikarinn Gunnar Hansson er liðtækur kylfingur en hann er með í kringum fjóra í forgjöf. Gunnar ætlar ekki að láta Mastersmótið fram hjá sér fara og hefur mikið dálæti af mótinu. Hann segir að erfitt verði að horfa fram hjá Tiger Woods í ár og að hann sé mjög sigurstranglegur. „Það eru mestar líkur á að Tiger vinni þetta. Hann hefur verið frábær í ár og er kominn með blóðið á tennurnar. Það væri auðvelt að veðja á hann. Rory McIlroy gæti einnig náð góðum árangri. Hann varð í öðru sæti um síðustu helgi og þó að hann hafi ekki verið að spila eins vel og í fyrra þá gæti hann alveg unnið. Það eru alveg 25 kylfingar sem koma til greina,“ segir Gunnar. Hann ætlar þó að veðja á sinn uppáhaldskylfing til sigurs í ár. „Sergio Garcia hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér og það er rosalega gaman að sjá hann spila. Hann fór í niðursveiflu fyrir nokkrum árum og virtist ekki hafa sjálfur gaman af þessu. Það er allt annað að sjá til hans núna og hann hefur verið góður síðustu mánuði. Það er kannski frekar óskhyggja en eitthvað annað að hann vinni. Það væri leiðinlega skynsamlegt að veðja á Tiger og því segi ég Garcia.“ Gunnar Hansson Sergio Garcia Fjölmiðlamaðurinn Heimir Karlsson er gríðarlega spenntur fyrir Masters-mótinu í ár og reiknar með því að fylgjast með öllum fjórum keppnisdögunum. Heimir er líka hinn fínasti kylfingur og hefur verið duglegur að þræða golfmót í vetur og hita upp fyrir golfsumarið sem er handan við hornið. Hann þarf ekki langan umhugsunarfrest til að spá fyrir um sigurvegara. „Ég spái Dustin Johnson sigri – ekki spurning,“ segir Heimir. „Ég hef mikla trú á Johnson í ár. Þetta er gríðarlegur íþróttamaður og hefur allt til þess að ná mjög langt í íþróttinni. Hann hefur mikla högg- lengd, er ungur og mjög fær kylfingur. Ég veðja á hann.“ Heimir telur að mótið í ár eigi eftir að verða spennandi. „Já, ég reikna með því. Það spá allir Tiger Woods sigri í mótinu og það kæmi mér ekkert á óvart. Tiger verður án efa meðal efstu manna. Svo eru kylfingar líkt og Rory McIlroy, Brandt Snedeker og Phil Mickelson sem gætu allir unnið þetta mót. Masters-mótið er ásamt Opna breska það mót sem maður lætur ekki fram hjá sér fara.“ Heimir Karlsson Dustin Johnson Atvinnukylfingurinn Ólafur Björn Loftsson á von á spennandi Masters-móti í ár. Hann hefur mikla trú á kylfingum á borð við Charl Schwartzel, Keegan Bradley, Lee Westwood, Matt Kuchar, Brandt Snedker og Steve Stricker. „Þetta á eftir að verða mjög spennandi mót. Westwood er talinn vera besti kylfingur heims sem ekki hefur unnið risamót enda hefur hann sjö sinnum lent í þremur efstu sætunum í risamóti án þess að sigra. Ég held að hann verði í baráttunni í ár ef pútterinn verður í lagi. Keegan Bradley, Matt Kuchar og Brandt Snedker eru einnig líklegir. Ég hef mikla trú á Steve Stricker,“ segir Ólafur. „Ég myndi aldrei veðja gegn Rory McIlroy eða Phil Mickelson sem eru alltaf líklegir en mér finnst engin spurning um hver er besti kylfingur heims um þessar mundir. Tiger Woods er langsigurstrang- legastur að mínu mati. Hann hefur sigrað þrisvar í ár og það er ekki annað hægt en að spá honum 15. risatitlinum á Masters í ár.“ Ólafur Björn Loftsson Tiger Woods

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.