Fréttablaðið - 11.04.2013, Blaðsíða 36
11. APRÍL 2013 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● mastersmótið 2013
' G
R
A
P
H
IC
N
E
W
S
Tea Olive Pink Dogwood
Camellia
White
Dogwood Golden Bell Azalea Chinese Fir Firethorn Redbud Nandina Holly
Flowering
Peach
Flowering
Crab Apple Magnolia Juniper Pampas
Yellow
Jasmine
Carolina
Cherry
1. hola
Par 4
406 metrar
2. hola
Par 5
525 metrar
3. hola
Par 4
320 metrar
4. hola
Par 3
220 metrar
5. hola
Par 4
416 metrar
6. hola
Par 3
165 metrar
7. hola
Par 4
411 metrar
8. hola
Par 5
521 metri
9. hola
Par 4
431 metri
10. hola
Par 4
453 metrar
11. hola
Par 4
462 metrar
12. hola
Par 3
142 metrar
13. hola
Par 5
466 metrar
14. hola
Par 4
402 metrar
15. hola
Par 5
485 metrar
16. hola
Par 3
155 metrar
17. hola
Par 4
402 metrar
18. hola
Par 4
425 metrar
Augusta National Golf Club völlurinn
er par 72 og 6800 metrar á lengd.
Svona á að spila Augusta-völlinn
Tiger Woods er sá kylf-
ingur sem fl estir veðja á
í aðdraganda Masters-
mótsins í ár. Hann er á ný
í efsta sæti heimslistans
í golfi eftir að hafa unnið
þrjú mót í PGA-móta-
röðinni í ár og er í góðu
formi fyrir fyrsta risamót
ársins. Woods mun þó
líklegast ekki viðurkenna
að hann sé aftur orðinn
sá besti í heimi fyrr en
15. risa titillinn er kominn
í hús.
Woods var á tímabili nánast ósigr-
andi og er eini kylfingurinn í sögu
golfsins sem hefur verið handhafi
allra fjögurra risamótanna á sama
tíma. Ferill Woods tók hins vegar
væna dýfu eftir að upp komst
um vafasöm mál í einkalífi hans
í lok árs 2009. Eiginkonan fór frá
honum og algjör brotlending varð
á golfvellinum. Woods hefur unnið
sig til baka síðustu tvö ár og nú
hillir undir endurkomu Woods sem
sigurvegara í risamóti á ný. Síðast
fagnaði Woods sigri á Opna banda-
ríska meistaramótinu fyrir fimm
árum, en það var hans 14. sigur í
risamóti.
Það sem helst hefur breyst frá
síðasta ári er að Woods er heilsu-
hraustur. Hann hefur verið plagað-
ur af meiðslum síðustu tvö ár sem
urðu til þess að Woods gat ekki æft
af þeim krafti sem hann er vanur.
Í ár hefur Woods verið meiðslalaus
og telur hann það vera lykilinn að
góðum árangri þessa fyrstu mán-
uði ársins.
„Það eru liðin ár síðan ég gat
slegið og æft eins mikið og ég geri
í dag. Ég er að nálgast mitt besta
form. Ég er mjög ánægður með að
þau högg sem ég átti í erfið leikum
með í fyrra eru nú orðin mín sterk-
ari hlið. Ég þarf að auka stöðug-
leikann því góðu höggin verða sí-
fellt betri,“ segir Woods.
Þegar Woods var upp á sitt
besta var enginn kylfingur honum
fremri í stutta spilinu. Það er ein-
mitt sá leikur golfsins sem hefur
brugðist honum á síðustu árum en
ef marka má frammistöðu hans
í undanförnum mótum þá hefur
Woods farið mikið fram á flötun-
um.
„Í þeim þremur mótum sem ég
hef unnið í ár hef ég púttað mjög
vel. Það hjálpar svo sannarlega.
Það er eitt að pútta vel á æfinga-
flötinni heima og annað á sunnu-
degi í risamóti,“ segir Woods.
Þessi 37 ára kylfingur er einn
sá sigursælasti frá upphafi. Mark-
mið Woods er þó að verða sá besti
frá upphafi. Til þess að hljóta þann
titil verður Woods að ná meti Jacks
Nicklaus yfir flesta sigra í risa-
móti. Nicklaus sigraði í 18 risamót-
um á mögnuðum ferli og Woods er
fjórum sigrum þar á eftir. „Ég vil
sigra á fleiri en fjórum risamótum
í viðbót – ég vil slá met Nicklaus,“
segir Woods. Það kemur svo í ljós
á sunnudag hvort hann verður einu
skrefi nær því markmiði.
Klæðist heilsuhraustur Tiger
græna jakkanum í fimmta sinn?
Tiger Woods er aftur
kominn í efsta sæti
heimslistans og er
farinn að líkjast sér
sjálfum á ný eftir
nokkur erfið ár.
Það bíða því margir
spenntir eftir því
hvort honum takist
að klæðast græna
jakkanum í fimmta
sinn, en hann vann
Mastersmótið í
fjórða sinn árið
2005.
NORDICPHOTOS/GETTY
Hin árlega par 3 keppni fór
fram á par 3 vellinum á Aug-
usta National-golfvellinum í
gær. Mótið er að mestu haldið til
skemmtunar og fá kylfingar þar
frábært tækifæri til að eyða deg-
inum með fjölskyldu og vinum.
Fyrst var leikið í þessu móti
árið 1960 þegar Sam Snead stóð
uppi sem sigurvegari. Fjölmarg-
ir fyrrverandi risameistarar
sem eru komnir á gamals aldur
taka þátt í par 3 keppninni á ári
hverju og nýtur mótið mikilla
vinsælda meðal áhorfenda. Alls
hafa kylfingar farið 75 sinnum
holu í höggi í par 3 mótinu frá
upphafi og var met sett árið 2002
þegar fimm kylfingar fóru holu
í höggi.
Ef þú ert þátttakandi í
Masters-mótinu þá er ekkert sér-
staklega spennandi að vinna par
3 keppnina. Aldrei í sögu Mast-
ers-mótsins hefur kylfingi tekist
að vinna bæði par 3 keppnina og
síðan sjálft Masters-mótið. Írinn
Padraig Harrington hefur unnið
þetta mót þrisvar á síðastliðnum
áratug og síðast í fyrra þegar
hann og Johnathan Byrd voru
jafnir og efstir. Vallarmetið á par
3 vellinum er 20 högg og er í eigu
þeirra Art Wall og Gay Brewer.
Bölvun að vinna
par þrjú keppnina