Fréttablaðið - 11.04.2013, Síða 37
FIMMTUDAGUR 11. APRÍL 2013 5mastersmótið 2013 ● fréttablaðið ●
Bandaríski kylfingurinn Bubba
Watson á titil að verja á Aug-
usta National-vellinum á Masters-
mótinu. Hann vann mótið í fyrra
eftir bráðabana við Louis Oost-
huizen frá Suður-Afríku. Watson
sló ótrúlegu höggi úr vonlausri
stöðu inn á flöt á annarri holu bráða-
banans og tryggði sér sigur. Högg-
ið er talið eitt það ótrúlegasta í sögu
golfsins en Watson náði að láta bolt-
ann taka nánast 90 gráðu vinkil-
beygju og inn á flöt í fuglafæri eftir
að hafa verið umkringdur trjám.
Watson er einn af skemmtilegri
kylfingum á PGA-mótaröðinni.
Hann er ærslafullur bæði innan
vallar sem utan og leikur hans er
ólíkur leik flestra. Þótt alla dreymi
um að vinna risamót fylgir því oft
aukin athygli og í íþróttum getur
það haft slæm áhrif á frammi-
stöðu. Watson hefur fundið fyrir at-
hyglinni.
„Ég leitaði til nokkurra leik-
manna eins og Graeme McDowell,
(Rory) McIlroy, spurði Tiger og
fleiri ráða. Ég spurði hvernig maður
ætti að höndla alla þessa athygli frá
aðdáendum og fjölmiðlum? Allt
verður þetta til þess að maður fjar-
lægist golfið,“ segir Watson.
Það varð honum kannski til happs
að hann og eiginkona hans, Angie,
ættleiddu á sama tíma son og því fór
mikill tími hjá Watson í að annast
nýjasta fjölskyldumeðliminn. „Ég
sleppti nokkrum mótum eftir að
við eignuðumst Caleb. Ég náði þar
með að slaka á með fjölskyldunni og
endur stilla mig.“
GOLFIÐ Í FYRSTA SÆTIÐ
Watson hefur ekki unnið mót síðan
hann sigraði á Masters fyrir ári.
Hann hefur lítinn áhuga á því að
falla í gleymsku sem kylfingur sem
sigraði bara á einu risamóti. „Ég
vil ekki verða þekktur fyrir að hafa
unnið eitt mót. Ég ætla mér stærri
hluti en það,“ segir Watson.
Hann gæti vel orðið fjórði kylf-
ingurinn í sögu Masters-mótsins
til að verja titil sinn um helgina.
Jack Nicklaus, Nick Faldo og Tiger
Woods hafa afrekað það. Þó að Wat-
son hafi ekki leiðst að sýna sig í
spjallþáttum í græna jakkanum
eftir sigurinn á síðasta ári heldur
hann báðum fótum á jörðinni.
„Umboðsmaðurinn minn gaf mér
gott ráð strax eftir sigurinn á Mast-
ers. Hann ráðlagði mér að setja golf-
ið í fyrsta sætið. Við sögðum nei við
mörgum beiðnum frá fjölmiðlum.
Bubba Watson er fyrst og fremst
kylfingur, höfðum þetta einfalt og
golf var alltaf númer eitt.“
Golfið er alltaf númer eitt
● Bubba Watson vann Masters-mótið í fyrra og leitaði sér ráða um hvernig best væri að vinna með alla athyglina frá aðdáendum og fjölmiðlum.
Græni jakkinn kallar á gríðarlega athygli Bubba Watson vann
Masters-mótið í fyrra og hér sést hann mæta í viðtal í þætti
David Letterman. NORDICPHOTOS/GETTY
Phil Mickelson mun ekki nota hefð-
bundinn dræver á Masters í ár held-
ur „brautartré á sterum“ eins og
hann orðaði það sjálfur á blaða-
mannafundi fyrir mótið. Mickel-
son er búinn að blanda saman eig-
inleikum brautartrés og drævers
í eina kylfu sem er 45 tommur að
lengd með 8,5° fláa og skafti líkt og
á venjulegum dræver.
Mickelson hafði notað Callaway
X-Hot brautartréð sitt mikið og var
farinn að slá jafnlangt með þeirri
kylfu og hann er vanur að gera með
drævernum. Hann talaði því við
tæknideildina hjá Callaway og bað
mennina þar um að útbúa fyrir sig
trékylfu sem hann gæti notað sem
dræver en væri jafn auðvelt að slá
með og brautartré.
Útkoman er ný kylfa sem hefur
hlotið nafnið FrankenWood og mun
Mickelson nota hana í Masters-
mótinu sem hefst í dag. Mickelson
kveðst slá 15-22 metrum lengra með
þessari nýju kylfu en gamla dræ-
vernum. Það gæti skipt sköpum enda
skiptir högglengd miklu máli á Aug-
usta National-vellinum þar sem Mic-
kelson hefur þrisvar staðið uppi sem
sigurvegari.
Notar „brautartré á
sterum“ sem dræver
Öflug kylfa Phil Mickelson slær 15 til 22
metrum lengra með nýju kylfunni sinni.
Nordicphotos/Getty
Ein af hefðum Masters-móts-
ins er kvöldverður meistaranna
en þar koma saman fyrrverandi
sigurvegarar í mótinu og snæða
saman. Sigurvegari síðasta árs
fær að velja hvað er á matseðlin-
um og hafa í gegnum tíðina marg-
ir sérstakir réttir frá heimalandi
ríkjandi meistara verið á boð-
stólum.
Bubba Watson er ríkjandi meist-
ari og hann sá um að velja hvað
yrði í matinn að þessu sinni. Wat-
son hafði verið þögull sem gröfin
yfir því hvað væri á matseðlinum
en hann valdi svo að lokum sinn
uppáhaldsrétt. Hann fær engin
verðlaun fyrir frumleika því hann
bauð upp á grillaðan kjúkling,
kartöflumús, kornstöng og makka-
rónur með osti.
Nick Faldo var ekki lengi að
hnýta í Watson eftir kvöldverðinn
á Twitter og skrifaði: „Þú hafðir
heilt ár til að velja grillaðan kjúk-
ling, kartöflumús og makkarón-
ur með osti.“ Flestir sjá þó spaugi-
legu hliðina á málinu enda er Wat-
son mjög uppátækjasamur og stutt
í spaugið.
Bauð upp á kjúkling
MASTERS VORTILBOÐ
FRÍR KASSI AF PRO V1/x OG FRÍ SÉRMERKING
Pro V1/x er flaggskip Titleist og golfbolti sem hentar öllum kylfingum
Titleist Pro V1 er vinsælasti boltinn á MASTERS
og sigursælasti golfbolti frá upphafi
PANTAÐU 3 KASSA AF SÉRMEKTUM TITLEIST PRO V1 EÐA PRO V1X
Í NÆSTU GOLFVERSLUN OG ÞÚ FÆRÐ FJÓRÐA KASSANN FRÍTT
FRÍ MERKING* OG FRÍR KASSI | BOLTAR AFHENTIR 16. APRÍL – 16. MAÍ
TILBOÐIÐ GILDIR TIL 1. MAÍ
ALLIR KASSAR Í SÖMU GERÐ OG MEÐ SÖMU MERKINGU
*1-3 LÍNUR AF TEXTA – HÁMARK 17 STAFIR Í LÍNU
– HÁSTAFIR Í RAUÐU EÐA SVÖRTU – ÍSLENSKIR STAFIR Í BOÐI