Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 46

Fréttablaðið - 11.04.2013, Qupperneq 46
11. apríl 2013 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 30TÍMAMÓT Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða hringja í síma 512 5000. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÁRNI VILHJÁLMUR JÓNSSON frá Mjóafirði, Fífuhvammi 17, Kópavogi, lést á Landspítala í Fossvogi mánudaginn 8. apríl. Útförin fer fram frá Fossvogs kirkju mánudaginn 15. apríl kl. 15.00. Jenný G. Godby Jim Dale Godby Jón Steinar Árnason Gunnhildur Olga Jónsdóttir Halla María Árnadóttir Tryggvi L. Skjaldarson barnabörn, langafa- og langalangafabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR ÓLAFSSON Dvalarheimilinu Höfða, Akranesi, andaðist á Landspítalanum í Fossvogi föstudaginn 5. apríl sl. Útför hans verður gerð frá Akraneskirkju föstudaginn 12. apríl kl. 14.00. Halldór Ólafsson Guðlaug Sigurjónsdóttir Jóhannes Ólafsson Herdís Þórðardóttir Ólafur Ólafsson Ingiríður Kristjánsdóttir Þráinn Ólafsson Helga Jóna Ársælsdóttir Lárus Þór Ólafsson Valgerður Sveinbjörnsdóttir Steinunn Helga Ólafsdóttir Halldór Hauksson afa- og langafabörn. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN SIGURÐSSON frá Raufarhöfn, sem lést á Skjóli mánudaginn 8. apríl, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 18. apríl kl. 13.00. Heiðar Bergur Jónsson Þorbjörg Sandra Sveinsdóttir Guðlaug Sjöfn Jónsdóttir Guðlaugur Vilberg Sigmundsson barnabörn og barnabarnabörn. Innilega þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, afa og langafa, ANDRÉSAR HAFLIÐA GUÐMUNDSSONAR Miðleiti 7, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjartadeildar Landspítalans. Kristín Magnúsdóttir Örn Andrésson Guðbjörg Erla Andrésdóttir Ingibjörg Ólöf Andrésdóttir Magnús Andrésson afa- og langafabörn. Okkar ástkæra móðir og systir, GUÐMUNDA V. GUÐMUNDSDÓTTIR (STELLA) Sigtúni 33, Reykjavík, sem lést á föstudaginn langa, verður jarðsungin föstudaginn 12. apríl kl. 13.00 í Laugarneskirkju. Kristjana Ársælsdóttir Einar G. Ársælsson Jón Óskar Guðmundsson Elskulegur eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURÐUR LEIFSSON fyrrverandi rafverktaki, Lækjarseli 13, Reykjavík, lést á heimili sínu sunnudaginn 7. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. María Helga Guðmundsdóttir Sigríður Sigurðardóttir Guðjón Sigurðsson Louisa Aradóttir Hólmfríður Sigurðardóttir Eggert ólafsson Kolbrún Alda Sigurðardóttir Gunnar Sigurðsson Margrét Svavarsdóttir Kristín Svala Sigurðardóttir Kristín Guðmundsdóttir Rósa S. Guðmundsdóttir Rúnar H. Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eigninmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, AUÐUNN VALDIMARSSON Kríuhólum 2, Reykjavík, sem lést 4. apríl, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju, föstudaginn 12. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Von, styrktarfélag gjörgæsludeildar Landspítala Fossvogi. Gréta Oddsdóttir Þuríður L. Auðunsdóttir Þ. Skorri Steingrímsson Valdimar Auðunsson Julia Doppler Sæunn Auðunsdóttir Róbert Ó. Skúlason Steingrímur og Bjarkar Þormóðssynir „Það er mikill heiður fyrir mig að fá að taka þátt í uppbyggingu sem stofn- un á borð við Lista háskólann mótast af,“ segir Fríða Björk spurð hvernig nýja starfið leggist í hana. Hún seg- ist ekki geta svarað því á þessu stigi málsins hvaða breytingar rektors- skiptin muni hafa í för með sér, enda taki hún ekki við embætti fyrr en 1. ágúst. „Auðvitað fylgja alltaf nýjar áherslur nýju fólki, en ég get ekki sagt til um hverjar þær muni verða þar sem ég þekki skólann ekki innan frá enn sem komið er.“ Fríða Björk er með MA-gráðu í 19. og 20. aldar skáldsagnagerð frá háskólanum í East Anglia í Norwich, en námið var samtvinnað deild háskól- ans í ritlist. Veigamikill þáttur í nám- inu var menningarfræðileg greining á skapandi listum og samhengi þeirra við umhverfið. Bókmenntir eru ekki hluti af námsgreinum Listaháskólans en Fríða Björk segist engu að síður álíta að nám í þeim sé góður grunn- ur fyrir starfið. „Gamli kennarinn minn í mastersnáminu í bókmenntum í Bretlandi vísaði iðulega til þess að í því námi væri okkur kennt að greina tengingar og sjá stóru myndina. Bæði þessa sögulegu yfirsýn og innbyrðis tengsl og vinna úr því. Í raun og veru er það það sem ég hef verið að gera á mínum starfsferli; skoða, greina og tengja fólk og verkefni saman þvert á margvísleg mæri. Ég hef unnið í flestum greinum menningarinnar, ekki bara innan bókmenntanna þótt ég hafi vissulega einungis kennt bók- menntir. Og þessi greinandi aðferða- fræði sem bókmenntirnar nota nýt- ist manni við menningar greiningu, greiningu á sköpunarferlinu og áhrif- um þess á þjóðlífið.“ Þannig að þú hlakkar til að takast á við þetta verkefni? „Já, mér finnst þetta ögrandi og skemmtilegt verk- efni. Mér finnst líka ástæða til að taka það fram að þótt manni finnist Listaháskólinn alltaf hafa verið til þá var hann bara stofnaður fyrir fimm- tán árum og á þeim tíma er núver- andi rektor, ásamt sínu fólki, búinn að byggja upp heilan skóla úr nánast engu. Og þótt auðvitað hafi verið til fagleg viðmið og metnaður í kennslu listgreina áður en LHÍ var stofnað- ur þá er hann að miklu leyti ábyrg- ur fyrir því að byggja upp akadem- ísk gildi á þessu sviði. Hann er fyrsta stofnunin sem vinnur markvisst að því að búa til slík viðmið á sviði sköp- unar og listmenningar inn í íslenskt samfélag.“ Svona ungur skóli er náttúrulega enn í mótun þannig að þín bíður það hlutverk að taka þátt í að fullmóta hann, ekki satt? „Jú, og það sem þarf að huga að í framtíðinni er að vinna frekar að þverfaglegri nálgun innan skólans, auk þess að styrkja þetta bakbein í skólanum sem lýtur að ein- stökum listgreinum, listamönnum og þeirra framtíð. Síðan þarf vitaskuld að standa vörð um þau gildi sem fylgja háskólanámi yfirleitt – standa undir þeirri ábyrgð.“ fridrikab@frettabladid.is Standa þarf vörð um akademísk gildi Fríða Björk Ingvarsdóttir hefur verið ráðin rektor Listaháskóla Íslands. Hún tekur við embætti 1. ágúst næstkomandi af Hjálmari H. Ragnarssyni, sem hefur verið rektor frá stofnun. Hún segist ekki hafa plön um að bylta starfsemi skólans, en nýju fólki fylgi auðvitað alltaf nýjar áherslur. NÝR REKTOR Fríða Björk Ingvarsdóttir segist hlakka til að takast á við þá ögrun sem nýja starfinu sem rektor Listaháskóla Íslands fylgi. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fríða Björk hefur getið sér gott orð sem bókmennta- og menningarrýnir, rithöf- undur, blaðamaður og þýðandi. Undanfarin ár hefur hún starfað sjálfstætt, m.a. sem þýðandi og fyrirlesari, en einnig sem þáttagerðarmaður hjá Ríkisútvarpinu. Hún hefur verið fastur gagnrýnandi Víðsjár á Rás 1 og í Kiljunni í Sjónvarpinu. Um þessar mundir er hún gestaumsjónarmaður í vikulegum þætti á Rás 1, Íslensk menning– getum við gert betur?. Fríða Björk starfaði hjá Morgunblaðinu í tæp 10 ár (2000-2009) og gegndi þar ýmsum störfum. Hún var ritstjórnarfulltrúi menning- ar um árabil, einn af leiðarhöfundum blaðsins, pistla- og greinahöfundur. Einnig skrifaði hún bókmenntagagnrýni bæði um íslenskar bókmenntir og erlendar. Fríða Björk vann einnig sem sérfræðingur í þýðingardeild utanríkisráðuneytisins um skeið og kenndi við Háskóla Íslands á árunum 1997-2008. Fríða Björk er gift Hans Jóhannssyni hljóðfærasmið og eiga þau tvö börn, Elínu Hansdóttur myndlistarmann og Úlf Hansson tónskáld. Starfsferill Fríðu Bjarkar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.